Fara í efni

Fjárfestahátíð Norðanáttar 2022

Fjárfestahátíð Norðanáttar 2022

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og lofslagsráðherr…
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og lofslagsráðherra , Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV og Eyþór Björnsson, framkvæmdastjóri SSNE

Á dögunum var haldin glæsileg fjárfestahátíð á Siglufirði. Nýsköpunarhreyfingin Norðanátt stóð fyrir hátíðinni og var hún lokaskref í nýsköpunarhringrás sem hófst á hraðli, að honum loknum tók við vaxtarrými – 8 vikna þjálfunarbúðir þar sem átta fyrirtæki fengu stuðning við að þróa sínar hugmyndir og móta enn frekar. Lokaskrefið var svo fjárfestahátíðin. Norðanátt var styrkt af Lóu, nýsköpunarsjóði fyrir landsbyggðina.

Á hátíðinni, sem hefur fengið verðskuldaða athygli um land allt, kynntu 10 teymi verkefni sín sem snerta orkuskipti, hringrásarhagkerfið eða fullnýtingu auðlinda í takt við áherslur Norðanáttar; matur, orka, vatn. Viðburðurinn er eingöngu ætlaður fjárfestum sem horfa til landsbyggðarinnar sem ákjósanlegs fjárfestingakosts og voru um 30 fjárfestar mætti til leiks auk aðila úr stoðkerfi nýsköpunar, fulltrúar sveitarfélaga og annarra hagaðila. 

Norðanátt er öflugt samstarf SSNE, Eims, SSNV, Nýsköpun í Norðri, Hraðinu og RATA sem sá um þjálfun fjárfestateymanna fyrir kynningarnar á hátíðinni. Samstarfið nær því yfir Norðurland allt og hefur gengið afar vel.

,,Saman ætlum við að finna frekari tækifæri og skapa lausnir framtíðarinnar." - Norðanátt

Auk fjárfestakynninga fluttu ráðherrar kraftmikil og hvetjandi erindi. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra opnaði hátíðina, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og lofslagsráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fluttu einnig ávörp. Einnig héldu Josh Klein, athafnamaður og frumkvöðull, Þór Sigfússon stofnandi Sjávarklasans og Hólmfríður Sveinsdóttir nýskipaður rektor Háskólans á Hólum erindi.

,,Hér gæti verið að fæðast eitt af stóru fyrirtækjum framtíðarinnar", sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra í samtali við fréttastofu Rúv.

Fréttaumfjöllun um fjárfestahátíðina: