Fara í efni

Fjárfestahátíð Norðanáttar 2023

Fjárfestahátíð Norðanáttar 2023

Ljósmynd: Aníta Eldjárn
Ljósmynd: Aníta Eldjárn

Annað árið í röð komu allir helstu fjárfestar landsins saman á Siglufirði til fundar við frumkvöðla í auðlinda- orku- og umhverfismálum.

Fjárfestahátíð Norðanáttar var haldin í fyrsta skipti árið 2022 en þá var áherslan eingöngu á sprotaverkefni á Norðurlandi. Vegna þess hversu vel tókst til fyrir ári var ákveðið að stækka hátíðina verulega í ár og höfða til frumkvöðla og fjárfesta hvaðan æva að landinu. Ef til vill er það til marks um gróskuna í grænni nýsköpun um allt land að viðbrögð fjárfesta og frumkvöðla voru slík að mun færri komust að en vildu. Uppselt var á hátíðina en um 150 gestir sóttu hátíðina að þessu sinni.

Yfir 30 verkefni sóttu um að vera á hátíðinni og var sérstök valnefnd fengin til að velja þau verkefni sem fengu að kynna fyrir forsvarfólk fjárfestingasjóða og sjálfstæðum fjárfestum. Í framhaldi fjárfestakynninga fór fram stefnumót frumkvöðla og fjárfesta og annarra lykilaðila í stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi. Það var samdóma álit gesta og þátttakenda að svona vettvangur sé gríðarlega mikilvægur fyrir verkefni í leit að fjárfestingum þar sem þarna gefst gott tækifæri til þess að mynda tengingar og eiga fyrsta skrefið í átt að framtíðar samvinnu.

Yggdrasill Carbon, Melta, Frostþurrkun, Skógarplöntur, GeoSilica, E1, Gull úr Grasi, Kaja Organic, Fiskeldið Haukamýri, Biopol, Gefn, IceWind og Vínland Vineyard voru þau verkefni sem komust að í ár auk þess sem Bambahús voru með í stefnumóti við fjárfest

Landinn og Stöð2/Vísir fylgdust með hátíðinni og hér má einnig finna viðtal við Sesselju Barðdal um Fjárfestahátíðina 2023.

Á heimasíðu Norðanáttar má finna nánari upplýsingar um verkefnin - www.nordanatt.is 


Dagskrá Fjárfestahátíð Norðanáttar – 29. mars 2023

10:00 Hátíð hefst - Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra fer með innblásturserindi og opnar hátíðina á kaffi Rauðku.

SPJALLIÐ Í SKÍÐASTÓLNUM
Ráðstefnustjóri - Guðmundur Gunnarsson, fréttastjóri

- NÝSKÖPUN Á NORÐURLANDI
Linda Fanney Valgeirsdóttir, ALOR
Árni Örvarsson, Icelandic Eider
Kolbeinn Óttarsson Proppé, Grænafl
Dagbjört Inga Hafliðadóttir, Mýsköpun

-TÆKIFÆRI OG NÝTING AUÐLINDA TIL NÝSKÖPUNAR
Guðlaugur Þór Þórðarson, Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Háskóla-, viðskipta-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra
Kjartan Ólafsson, Transition Labs
Sesselja Barðdal, EIMUR

13:30  ÞEIR FISKA SEM RÓA -  FJÁRFESTAKYNNINGAR í BÁTAHÚSINU
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla, iðnaðar og nýsköpunarráðherra fer með innblásturserindi

FRUMKVÖÐLAR KYNNA SPROTAFYRIRTÆKIN SÍN :
YGGDRASILL, GEFN, ICEWIND, E1, MELTA, FROSTÞURRKUN, VÍNLAND, BIOPOL, SKÓGARPLÖNTUR, KAJA ORGANIC, BAMBAHÚS, HAUKAMÝRI, GULL ÚR GRASI, GEOSILICA

15:00 STEFNUMÓT FRUMKVÖÐLA OG FJÁRFESTA

Afþreying á Sigló með Sóta summits

Aprés ski á Segli 67 

Að Norðanátt standa EIMUR, SSNE, SSNV og RATA með stuðningi frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.
Bakhjarlar Fjárfestahátíðar Norðanáttar 2023 eru KPMG, KEA og REGUS á Íslandi.