Fara í efni

Norðanátt hlýtur styrk úr Lóunni

Norðanátt hlýtur styrk úr Lóunni

Það eru sannarlega spennandi tímar framundan í frumkvöðlaumhverfi Norðurlands en í vikunni tilkynnti háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið úthlutanir úr Lóu – nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina.

Norðanátt hlaut styrk úr sjóðnum uppá 3,9 milljónir króna fyrir verkefnið Norðanátt í Víking til Noregs en samtals var tæpu­­­m 100 m.kr. úthlutað til þeirra verkefna sem matshópur um veitingu Lóu nýsköpunarstyrkja taldi skara fram úr. Hlutverk Lóu er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæða á landsbyggðinni. Styrkirnir veita aukinn slagkraft inn í nýsköpunarverkefni og stuðla að auknu samstarfi um land allt.

Verkefnið, sem er samstarfsverkefni Norðanáttar og Innovasjon Norge, er tvíþætt. Í fyrsta lagi er frumkvöðlum af landsbyggðinni veitt tækifæri til að vinna í norsku frumkvöðlaumhverfi og tengslanet þannig eflt til muna. Í öðru lagi mun Norðanátt samhliða þessu eflast með auknum tengslum við norska nýsköpunargeirann með uppbyggingu grænnar atvinnustarfsemi í dreifðum byggðum að markmiði.
 
Hér getur þú lesið um þau 21 verkefni sem hlutu styrk í ár.
 
Við óskum öllum styrkhöfum til hamingju.