Fara í efni

Nýsköpunarverkefnið Roðleður er Norðansprotinn 2022

Nýsköpunarverkefnið Roðleður er Norðansprotinn 2022

Eyjólfur Guðmundsson rektor HA ásamt umsækjendum í Norðansprotann 2022
Eyjólfur Guðmundsson rektor HA ásamt umsækjendum í Norðansprotann 2022

Lokaviðburður Norðansprota 2022 fór fram föstudaginn 20. maí sl. þar sem leitað var að áhugaverðustu nýsköpunarhugmyndum Norðurlands á sviði matar, vatns og orku. Að viðburðinum stóðu samstarfsaðilar að nýsköpunarverkefninu Norðanátt, Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Hólum.

Þrettán fjölbreyttar umsóknir bárust í hugmyndasamkeppnina, sem jafnframt var upphaf á nýrri hringrás nýsköpunarsstarfs hjá Norðanátt og voru sex teymi valin af dómnefnd til að kynna verkefni sín á lokaviðburðinum sem fór fram í Háskólanum á Akureyri. Viðburðurinn var einnig í streymi og er hægt að nálgast upptöku hér.

María Dís Ólafsdóttir lífverkfræðingur og framkvæmdastjóri AMC ehf bar sigur úr býtum með nýsköpunarverkefnið Roðleður og hlaut titilinn Norðansprotinn 2022 ásamt 500.000 kr. í verðlaunafé, en með henni í teymi er Leonard Jóhannson.

,,Ég hef alltaf haft rosalega mikinn áhuga á hliðarafurðum frá því ég var lítil og ég endaði svolítið á roðinu af því ég hef komið að rannsóknum á roði og fengið að kynnast þessu magnaða hráefni og sá bara tækifæri, “ sagði María Dís meðal annars í kynningu sinni sem hefst á mín 42:00.  ,,Verkefnið Roðleður snýst um að þróa nýja aðferð til að búa til leður úr roði í stærri einingum en áður hefur fengist. Roðleður verður fáanlegt í metravís, í mörgum litum og þykktum”, segir María Dís.

Í dómnefnd Norðansprota 2022 sátu Hólmfríður Sveinsdóttir, verkefnastjóri og verðandi rektor Háskólans á Hólum, Hreinn Þór Hauksson, framkvæmdastjóri viðskipta- og vöruþróunar hjá Íslenskum verðbréfum, Rannveig Björnsdóttir, dósent hjá Háskólanum á Akureyri, Lilja Pálmadóttir hjá Horfstorfu, Eyrún Gígja Káradóttir verkefnastjóri hjá Vistorku og Svava Björk Ólafsdóttir, stofnandi RATA.

Liðin sex sem valin voru í úrslit voru:

  • Roðleður – Sigurvegari Norðansprota 2022
  • Tólgarsmiðjan
  • Pelliscol
  • Ylur
  • Nordic Wine & View
  • Ísponica

Á viðburðinum var skrifað undir samning við Háskólann á Akureyri um að vera virkur samstarfsaðili Norðanáttar í þeirri nýsköpunarhringrás sem nú er að hefjast. Þá var einnig undirrituð viljayfirlýsing við Háskólann á Hólum fyrr í þessum mánuði um samstarf og samvinnu með það að markmiði að skapa öflugt vistkerfi nýsköpunar á svæðinu.

Næsti viðburður í hringrás Norðanáttar verður viðskiptahraðallinn Vaxtarrými sem fer fram í haust.

Um Norðanátt
Samstarfsverkefnið Norðanátt er hreyfiafl sem miðar að því að skapa kraftmikið umhverfi á Norðurlandi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Norðanátt samanstendur af viðburðum sem styðja við frumkvöðla með hugmyndir á ólíkum stigum. Að Norðanátt standa Eimur, SSNE, SSNV, RATA, Nýsköpun í Norðri og Hraðið Húsavík.