Viltu rækta með mér? Opinn fundur um samfélagsgróðurhús á Húsavík
Viðburðir
Viltu rækta með mér? Opinn fundur um samfélagsgróðurhús á Húsavík
22.08.2022
Fréttir
Crowdthermal
Eimur, SSNE og Hraðið boða til opins kynningarfundar mánudaginn 5. september n.k.
Efni fundarins er möguleg uppbygging á samfélagsgróðurhúsi við Ásgarðsveg á Húsavík. Hugmyndin er hluti af Evrópuverkefninu Crowdthermal sem Eimur tekur þátt í.
Fundurinn fer fram í fundarsal Fosshótels, milli kl. 16:30 og 18:00.
Við hvetjum alla sem hafa áhuga á ræktun lands og lýðs til þess að koma og taka þátt á fundinum.
Hér má finna viðburðinn á Facebook