Fara í efni

Sumarskóli EIMS 2019

Sumarskólinn 2019

Sumarskóli Eims gengur út á að kalla fram hugmyndir að því hvernig nýta megi betur þær jarðhitaauðlindir sem á svæðinu eru. Nemendum er skipt upp í hópa sem hverjum er úthlutað svæði þar sem jarðhiti er til staðar og talin tækifæri til að nýta hann með fjölbreyttari hætti. Hópunum er svo falið að greina sóknarfæri svæðanna og útbúa tillögur um það með hvaða hætti væri best að auka nýtingu þeirra með sjálfbærum hætti. 

Sumarskólinn var haldinn í annað sinn dagana 20.-25. maí 2019 á NA-landi. Nemendur skólans þetta árið voru 29 talsins og komu frá Stuttgart Media University og Listaháskóla Íslands. Sem fyrr var nemendum skipt upp í hópa sem hver fékk sitt svæði til að þróa með sjálfbærni að leiðarljósi. Afraksturinn má sjá hér að neðan.

MAGMA - 
Museum About Geothermal 
and Magma Activities
  Sym-Bakki
 
     
Kósí   Greenhood
 
     
Volcanic oasis   HúsaTorg