Fara í efni

Kynning á LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun ESB

Kynning á LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun ESB
Viðburðir

Kynning á LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun ESB

Ísland tekur nú þátt í LIFE áætlun Evrópusambandsins, samkeppnissjóði sem fjármagnað hefur verkefni á sviði loftslags- og umhverfismála frá árinu 1992. Núverandi tímabil áætlunarinnar tekur til áranna 2021-2027 og eru rúmlega 5,4 milljarðar evra til úthlutunar á tímabilinu. Undir áætlunininni eru fjórar undiráætlanir:
  • Náttúra og líffræðileg fjölbreytni,
  • Hringrásarhagkerfið
  • Loftslangsbreytingar, aðlögun og aðgerðir og
  • Orkuskipti
Þann 9. mars kl. 14.30-16.00 verður kynning á LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun ESB í Háskólanum á Akureyri.

Dagskrá:
Hvað er LIFE? Gyða Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís og landstengiliður áætluninnar, segir frá áætluninni; markmiðum hennar, undiráætlunum og gerðum styrkja.

Á ég mér LIFE?  Hvernig Ottó reyndi en mistókst og reyndi svo aftur að sækja LIFE styrk. Ottó Elíasson, rannsókna- og þróunarstjóri hjá Eimi, mun svo fjalla um reynslu sína af því að taka þátt í umsóknarferlinu.
 
Fundurinn er ætlaður öllum sem áhuga hafa á að kynna sér þessa áætlun og hvaða tækifæri hún hefur uppá að bjóða.
 

Kynningarnar fara fram á ensku en hægt verður að spyrja og spjalla á íslensku að kynningum loknum.