Fara í efni

Mikill áhugi um næstu skref orkuskipta á Norðurlandi

Mikill áhugi um næstu skref orkuskipta á Norðurlandi

Þann 21. febrúar sl. héldu Eimur, SSNE og Íslensk Nýorka málstofu í Hofi og í streymi. Efni málþingsins var staða mála í orkuskiptum á Norðurlandi, olíunotkun svæðisins ásamt sérstakri umfjöllun um orkuskipti í þungaflutningum og við hafnir. Erindi málstofunnar markaði gott upphaf að þeirri vinnu sem er nú hafin með RECET á Norðurlandi eystra. Málstofan var afar vel sótt, en um 70 gestir sóttu málstofuna í Hofi og um 50 fylgdust með í beinu streymi.

Ottó Elíasson fór með fyrsta erindi dagsins þar sem hann sagði gestum stuttlega frá RECET verkefninu, en Sigurborg Ósk hjá SSNE stýrði svo fundi.

Birgir Ásgeirsson frá Umhverfisstofnun fór yfir losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og minnti á að verkefnið framundan væri ærið og krefðist þess að við brettum öll upp ermar. Magnús Örn frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu fór yfir ferlið á bakvið nýja aðgerðaráætlun í loftslagsmálum sem verður gerð opinber í marsmánuði.

Sigurður Friðleifsson frá Orkustofnun fór yfir langlífar mýtur um rafmagnsbíla og skerpti á því að hagkvæmustu orkuskiptin væru að minnka notkun einkabílsins. Hann fór einnig yfir stöðuna á hraðhleðslutengingum um allt land og hvar helstu áskoranirnar væru í því að tengja allan hringveginn við hraðhleðslustöðvar.

Skúli Gunnar frá Eimi fór yfir nákvæmar tölur um alla olíunotkun á Norðurlandi eystra, og í hvað olían færi í mismunandi sveitarfélögum. Anna Margrét frá Íslenskri Nýorku fjallaði sérstaklega um þá rafmagnsvörubíla sem væru komnir í almenna sölu og fór yfir fyrstu kaup Íslands á þeim. Í hennar umfjöllun kom skýrt í ljós, að skortur er á hleðslustöðvum fyrir þungaflutninga og hún kallaði eftir auknum stuðningi opinbera aðila við að byggja þær upp.

Að lokum fór Þorsteinn Másson frá Bláma á Vestfjörðum yfir þær fjölbreyttu lausnir sem hafnir landsins eru þegar farnar að nýta sér og teiknaði upp skýra mynd af þeim umfangsmiklu breytingum sem orkuskiptin munu hafa á skipulag og rekstur hafna á Íslandi.

Mikill hugur var í fundargestum og miðað við þá einstaklega góðu þátttöku sem var á málþinginu er ljóst að orkuskiptin eru fólki ofarlega í huga. Það verður spennandi að fylgjast með næstu skrefum í orkuskiptum á Norðurlandi.

Upptöku af fundi má nálgast hér : https://www.youtube.com/watch?v=iqWMucqNJ38 
Einnig er athygli vakin á viðtali við Ottó Elíasson við RÚV frá málþinginu „Eins og við fylltum Akureyrarlaug af olíu tvisvar í viku“ - RÚV.is (ruv.is)

Dagskrá
11:00-11:15 SSNE – Sigurborg Ósk Haraldsdóttir
Ávarp/Opnun málstofu

11:20-11:40 Umhverfisstofnun – Birgir U. Ásgeirsson
Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi
 
11:45-12:05 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið – Magnús Örn Agnesar Sigurðsson
Uppfærsla aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum

12:10-12:30 Orkustofnun – Sigurður Friðleifsson
Staða og áskoranir í Orkuskiptum – Ísland og Norðurland Eystra

13:10-13:30 Eimur – Skúli Gunnar Árnason
Olíunotkun á Norðurlandi Eystra: Í hvað fer olían?

13:35-13:55 Íslensk Nýorka – Anna Margrét Kornelíusardóttir
Orkuskipti í þungaflutningum

14:00-14:20 Blámi – Þorsteinn Másson
Orkuskipti við hafnir

14:25-14:30 Eimur – Ottó Elíasson
Samantekt og málstofu lokið