Fara í efni

Orkar þú orkuskiptin? Laust starf í teymi með Eimi

Orkar þú orkuskiptin? Laust starf í teymi með Eimi

Hefur þú áhuga á vinna að Evrópuverkefni í teymi með EIMI?

Eimur óskar eftir að ráða öflugan einstakling til að leiða Evrópuverkefni um orkuskipti í dreifðum byggðum, sem verður samstarfsverkefni níu aðila í fimm Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að efla getu sveitarfélaganna og atvinnulífsins til að takast á við orkuskipti og smíða orkuskiptaáætlun fyrir svæðið í samstarfi við sveitarfélögin, SSNE, og atvinnulífið á svæðinu.

 
Starfssvið og helstu verkefni:

  • Aðkoma að mótun og innleiðingu aðgerða til orkuskipta hjá sveitarfélögum og atvinnulífi á Norðurlandi eystra
  • Verkefnastjórnun og eftirfylgni
  • Söfnun, greining og úrvinnsla gagna
  • Vinnsla texta til opinberrar birtingar á íslensku og ensku
  • Utanumhald og stýring vinnustofa og samráðsfunda
  • Samskipti við sveitarfélög, hagsmunaaðila á svæðinu og erlenda samstarfsaðila
  • Önnur verkefni sem snúa að orkuskiptum í samstarfi við hagsmunaaðila

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Farsæl og haldgóð starfsreynsla sem nýtist í starfi
  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
  • Þekking á orku- og umhverfismálum og áhugi á nýsköpun
  • Færni í meðferð tölulegra gagna
  • Færni í að koma frá sér efni í ræðu og riti
  • Framúrskarandi enskukunnátta
  • Frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum

Eimur er samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Norðurorku, Orkuveitu Húsavíkur, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytisins. Markmið verkefnisins er að bæta nýtingu auðlinda á Norðurlandi eystra með sjálfbærni, nýsköpun og verðmætasköpun að leiðarljósi og að styðja við uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu á grænum forsendum.

Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2023

 Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir I sigga@mognum.is Telma Eiðsdóttir I telma@mognum.is

 Með umsókn þarf að fylgja ítarleg ferilskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UM