Fara í efni

Stafræn námskeið um rafhleðslu og rafknúin öktæki

Stafræn námskeið um rafhleðslu og rafknúin öktæki

Norræna ráðherranefndin hefur stutt við gerð fræðsluefnis um rafbílaeign og rekstur, sem og fræðsluefnis um hvað þarf að hafa í huga þegar settar eru upp hleðslustöðvar fyrir rafbíla. SSNE og EIMUR eru samstarfsaðilar við verkefnið sem er jafnframt einn liður í verkefninu Hraðari rafvæðing vegasamgangna á Norðurlöndum.

Stafræna fræðsluefnið er einkar aðgengilegt og hefur verið þýtt yfir á öll norðurlandamálin, þ.m.t. íslensku, og tekur fræðslan mið af innlendum aðstæðum.

Við hvetjum öll til að kynna sér fræðsluefnið hér.