Fara í efni

Vinnudagar á Austurlandi

Vinnudagar á Austurlandi

Eygló hefur aðstöðu í Múlanum í Neskaupsstað, en það er samvinnurými og miðstöð nýsköpunar sem opnað…
Eygló hefur aðstöðu í Múlanum í Neskaupsstað, en það er samvinnurými og miðstöð nýsköpunar sem opnaði árið 2021. Á mynd eru starfsmenn Eims, Orkídeu, Bláma og Eyglóar ásamt fulltrúum frá Landsvirkjun og Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytinu

Í síðustu viku hélt Eimur austur á land til fundar með samstarfsverkefnunum Bláma Orkídeu og Eygló, ásamt Landsvirkjun og Umhverfis orku og loftslagsráðuneytinu.

Á tveimur dögum fórum við yfir kjarnastarfsemi hverjar og einnar einingar fyrir sig, skammtíma- og langtímamarkmið og kryfjuðum ýmis tækifæri í því samhengi. 



Eitt fullkomnasta álver í heimi og stærsta orkuverk landsins

Sem hluta af ferðinni, bauð Landsvirkjun hópnum í skoðunarferð um Fljótsdalsstöð, sem er stærsta aflstöð Landsvirkjunar og jafnframt stærsta orkuverk landsins.

 

Fljótsdalsstöð er 690 megavött að uppsettu afli og getur unnið 4.800 gígavattstundir af rafmagni á ári. Stöðvarhús Fljótsdalsstöðvar er staðsett neðanjarðar, inni í Valþjófsstaðafjalli og er aðkoma að því um sérstök 1000 metra löng aðkomugöng.

 

Við fengum einnig leiðsögn um Alcoa Fjarðarál, sem er eitt nútímalegasta og tæknivæddasta álver í heimi með framleiðslugetu allt að 360.000 tonn af áli á ári. Álverið er stærsti vinnustaður landshlutans, en á svæðinu starfa í kringum 800 manns.

Ferðin gaf okkur einstakt tækifæri til að kynnast orkuframleiðslu og metnaðarfullum iðnaði á Austurlandi, sem jafnframt skapar um fjórðung útflutningstekna hér á landi.

Við þökkum kærlega fyrir góðar mótttökur og hlökkum til næstu heimsóknar.