Um Eim
Markmið og stefna Eims
Eimur er samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Norðurorku, Orkuveitu Húsavíkur, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytisins.
Markmið Eims er að bæta nýtingu auðlinda á Norðurlandi eystra með verðmætasköpun, sjálfbærni og nýsköpun að leiðarljósi.
Í þessu felst að:
- stuðla að bættri nýtingu orkuauðlinda, hvort sem þær eru á formi varma eða raforku.
- bæta nýtingu hliðarstrauma, frá iðnaði, landbúnaði, eða innviðum samfélagsins, í anda hringrásarhagkerfisins
- greiða leið orkuskipta með samstarfi við sveitarfélög, atvinnulíf og aðra hagsmunaaðila svæðisins.
- styðja við hagnýtar rannsóknir á bættri nýtingu auðlinda
- stuðla að sjálfbærni samfélagsins og samspili umhverfis, efnahags og samfélags
- efla atvinnulíf og verðmætasköpun svæðisins með stuðningi við frumkvöðlastarfsemi og nýsköpun innan starfandi fyrirtækja
- miðla tækifærum á þessum sviðum og kynna þau fyrir atvinnulífi, fjárfestum, opinberum aðilum, skólum og rannsóknaraðilum
Eimur miðar að því að leiða saman fólk og fyrirtæki til samstarfs um tilraunir, rannsóknir og þróunarverkefni á sviði orku-, auðlinda-, og loftslagsmála, meðal annars með öflun alþjóðlegs fjármagns.