Fara í efni

Kynningarfundur um Startup Storm *Uppfærð frétt

Kolfinna María, verkefnastjóri Norðanáttar
Kolfinna María, verkefnastjóri Norðanáttar
Viðburðir

Kynningarfundur um Startup Storm *Uppfærð frétt

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í hraðalinn STARTUP STORM - Vaxtarrými fyrir norðlenska sprota.

Startup Stormur er sjö vikna hraðall beint að sjálfbærni, með áherslu á mat, vatn og orku þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki og vaxa með vindinn í bakið. Hraðallinn er byggður upp að fyrirmynd viðskiptahraðla og er dagskrá sérhönnuð með þarfir teymanna sem taka þátt í huga og hafa þau þannig áhrif á þá fræðslu sem stendur þeim til boða.

Rafrænn kynningarfundur fór fram þriðjudaginn 5. september sl. frá kl. 11:30 - 12:00, þar var farið yfir öll helstu atriði Startup Storms ásamt því að fólki gafst kostur á að spyrja spurninga.

>>>>>>>  Horfðu á kynningarfundinn hér:

Startup Stormur hefst 4. október og lýkur 16. nóvember með lokaviðburð þar sem teymin sem taka þátt halda fjárfestakynningar.
Umsóknarfrestur er til og með 21.september nk.
 
Nánar á www.nordanatt.is
 
Samstarfsverkefnið Norðanátt er hreyfiafl sem miðar að því að skapa kraftmikið nýsköpunarumhverfi á Norðurlandi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Að verkefninu Norðanátt koma EIMUR, SSNV og SSNE með stuðningi frá Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytinu.