Fara í efni

Krubbur - Hugmyndahraðhlaup á Húsavík

Krubbur - Hugmyndahraðhlaup á Húsavík

Aðstandendur Krubbs 2023 ásamt Júlíu Margrét Birgisdóttir og Sólveigu Ósk Guðmundsdóttur í verkefnin…
Aðstandendur Krubbs 2023 ásamt Júlíu Margrét Birgisdóttir og Sólveigu Ósk Guðmundsdóttur í verkefninu Hugarró.

Krubbur var haldinn í fyrsta sinn á Húsavík dagana 8. - 9. mars síðastliðinn. Krubbur var settur upp sem tveggja daga hugmyndasmiðja þar sem unnið var að lausnum sem tengjast betri nýtingu auðlinda og lágmörkun úrgangs í Norðurþingi. Þátttaka var opin öllum frá 16 ára og var aldursbil þátttakanda frábært, svo þekking og reynsla ólíkra kynslóða spann spennandi vef.

Hraðið, miðstöð nýsköpunar stóð fyrir viðburðinum í samvinnu við KLAK-icelandic startups, Eim, SSNE og fleiri aðila. Um er að ræða samstarfsverkefni með fyrirtækjum á svæðinu og stoðkerfi atvinnulífsins og nýsköpunar.

Í Krubbi var unnið í teymum þar sem þátttakendur deildu þekkingu og reynslu og unnu saman að því að útfæra lausnir við áskorunum sem fyrirtæki á svæðinu kynntu. Teymin fengu ráðgjöf frá sérhæfðum leiðbeinendum sem gátu aðstoðað þau við að útfæra hugmyndirnar.

Með þessum nýsköpunarviðburði var markmiðið að efla

--> skapandi hugsun,
--> frumkvöðlastarf á sama tíma og
--> unnið yrði að markmiðum hringrásarhagkerfisins.

Um 70 gestir sóttu viðburðinn og voru þátttakendur 30 í 7 teymum. Hugmyndirnar sem voru kynntar voru afar áhugaverðar og verða vonandi sem flestar að veruleika. Fræjum hefur allavega verið sáð og nú er spurning um jarðveginn. Þær fjórar hugmyndir sem hlutu verðlaun voru eftirfarandi:

STERK STEYPA
sem dómnefnd frá fyrirtækinu PCC BakkiSilicon valdi sem bestu lausnina við þeirra áskorun. Verkefnið snérist um að skapa tækifæri úr þeim 3.000 tonnum af kvartssandi sem fellur til á á hverju ári hjá fyrirtækinu.  

Í teyminu voru Ingibjörg Benediktsdóttir verkefnastjóri ÞÞ og almannavarnarfulltrúi, Methúsalem Hilmarsson, sérfræðingur um áhættumat og öryggismál, Knútur Jónasson löggiltur hönnuður og Sigurður Páll Tryggvason sem hefur áralanga reynslu af byggingavinnu.

Teymið kynnti nýja vöru sem ber hið íslenska heiti Varnarhyrna og er til þess fallin að skapa leiðargarða í náttúruvá, s.s.gegn hraunflæði, vatni og aur. Hyrnan er forsteypt úr kvartsblandaðri steypu, en með því fæst aukin harka á sama tíma og steypan hefur meira slit- og efnaþol en hefðbundin steypa. Hver eining er um 1.400 kg og raðast í varnargarða á sama tíma og hægt er að stafla þeim þétt til að auðvelda flutning þeirra.

Hyrnurnar hefði verið hægt að nota í aurskriðunum í Útkinn til að gera örugga leið á meðan flytja þurfti bændur til að mjólka. Einnig hefði verið hægt að leggja þær yfir vatnslagnir til varnar í hraunflæðinu á Reykjanesskaga. Markhópurinn er ríki, sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklingar og næstu skref teymisins eru að leita að fjármögnun og vinna að frekari þróun eininganna.

NEKT
sem dómnefnd frá fyrirtækinu Íslenska gámfélaginu valdi sem bestu lausnina við þeirra áskorun. Verkefni þeirra snérist um endurvinnslu á textílúrgangi yfir í seljanlega vöru. 

Í teyminu voru Aldey Unnar Traustadóttir hjúkrunarfræðingur og sveitastjórnarfulltrúi, Þóra Katrín Þórsdóttir textíl kennari, Björg Sigurðardóttir kennari á eftirlaunum, Helga Dagný Einarsdóttir brugghússeigandi og Arna Þórarinsdóttir félagsliði, kokkur og yoga kennari.

Teymið kynnti hvernig tæta mætti textílúrgang í sérstökum vélum og búa til trefjahnoðra sem hægt væri t.d. að selja sem troð eða spinna úr honum  þráð til fataframleiðslu. Framtíðarsýn þeirra er að vefa efnið sjálfar en í upphafi verður megináherslan á hreinsun og þráðagerð. Sérstaða verkefnisins er að nýta orku á svæðinu til hreinsunar og þurrkunar á textílnum.

GREENWAVES
sem dómnefnd Ocean Missions og Norðurþings valdi sem bestu lausnina við áskorun Ocean Missions sem snýr að plastmengun í sjónum. Verkefnið snérist um að nota endurunnar plastflöskur til að búa til plastþræði sem síðan verða notaðir til að framleiða fatnað. Markhópur þeirra er ferðamenn sem heimsækja Húsavík og kynningarstarf fatnaðarins er með áherslu á málefni hafsins og umhverfisvernd. Í teyminu voru Michal Maciejewski starfsmaður GeoSea og frumkvöðull, Matteo, Rodrigo, Gaia og Valentina sem öll eru nemendur hjá Rannsóknasetri HÍ á Húsavík þar sem þau vinna að rannsóknaverkefnum á Skjálfanda.

HUGARRÓ
sem hlutu heildarverðlaun Krubbs. Verkefnið snýr að hönnun og framleiðslu á fallegum skynörvunarfatnaði fyrir börn. Afar takmarkað framboð er í dag á vörum sem fullnægja skynþörfum einstaklinga með greiningar eins og einhverfu, ADHD og kvíða. Teymið skipa þær Júlía Margrét Birgisdóttir og Sólveig Ósk Guðmundsdóttur sem báðar búa bæði yfir fagþekkingu og persónulegri reynslu. Sólveig er deildarstjóri og Júlía Margrét í sérkennsluteymi leikskólans Grænuvalla auk þess að halda úti hugmyndasíðu um sjónrænt skipulag fyrir börn. Samkvæmt tímalínu þeirra myndi fyrsta framleiðsluvaran vera peysa úr endurunnu efni sem býr yfir sérstakri hljóðeinangrun og skyggni í hettu, nag-hálsmáli, fidgets í vösum, þrengingum á ermum og efni sem hentar börnum með skynörvunarvanda.

Á Húsavík hefur mikil uppbygging átt sér stað í nýsköpunargeiranum undanfarið. Hraðið miðstöð nýsköpunar opnaði árið 2022 en þar er aðstaða í boði fyrir frumkvöðla og öll þau sem vilja nýta sér vinnuaðstöðu í skapandi og vel tækjum búnu umhverfi.

Hugmyndahraðhlaupið gekk afar vel. Eimur þakkar öllum fyrir gott samstarf og hlakkar til að koma að Krubbi að ári liðnu.