Glatvarmi á Bakka


Glatvarmi á Bakka er samstarfsverkefni Eims, PCC BakkiSilicon og Orkuveitu Húsavíkur. Markmið verkefnisins er að svara því hvort hagkvæmt sé að nýta glatvarma frá verksmiðju PCC BakkiSilicon á Bakka við Húsavík, ýmist í aðra iðnaðarstarfsemi eða fyrir hitaveitu á svæðinu.

Heimasíða verkefnisins

Eitt af þeim verkefnum sem hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði árið 2024, var verkefnið Glatvarmi á Bakka. Verkefnið Glatvarmi í Grænum iðngarði á Bakka er samstarfsverkefni EimsPCC BakkiSilicon og Orkuveitu Húsavíkur. Markmið verkefnisins var að svara því hvort hagkvæmt sé að nýta glatvarma frá verksmiðju PCC BakkiSilicon á Bakka við Húsavík, ýmist í aðra iðnaðarstarfsemi eða fyrir hitaveitu á svæðinu.


Vinna af þessu tagi er kjarninn í starfsemi 
Græns iðngarðs á Bakka, þar sem markmiðið er að nýta alla auðlindastrauma, sem þegar hafa verið virkjaðir, til fulls, og að þeir nýtist inn í aðra starfsemi á svæðinu. Þetta er fyrsta skrefið í því að leggja grunn að samstarfi fyrirtækja innan garðsins um nýtingu orku og hráefna sem falla til við vinnslu fyrirtækja.


Verkefnið var unnið í samvinnu við Eflu verkfræðistofu sem sá um að greina gögn sem aðrir aðilar innan verkefnisins tóku saman, fyrir hagkvæmnigreiningu á föngun glatvarma sem myndast í kælikerfi PCC BakkiSilicon. Þessi varmi kemur úr kælikerfi ljósbogaofna PCC, sem kældir eru með vatni í lokaðri hringrás, en í dag er þessi varmi algjörlega ónýttur.


Niðurstöður verkefnisins sýna að með auðveldum hætti og lítilli fjárfestingarþörf má sækja 8-9 MW af varma eða 100 l/s af 50 °C vatni, án breytingar á núverandi kælikerfi. Þar með geta skapast stór tækifæri fyrir ýmiskonar rekstur innan Græns iðngarðs. Grófir útreikningar sýna fram á hagkvæmni þess að nýta þennan varma samanborið við það að bora eftir heitu vatni, sem er hin hefðbundna leið til varmaöflunar.


PCC BakkiSilicon hefur nú þegar sett í stað áframhaldandi vinnu á hagkvæmnigreiningu þar sem skoða á fýsileikann á því að sækja meiri varma annarsstaðar í framleiðsluferlinu. Þetta verkefni hefur sýnt fram á, svo ekki verður um villst að það getur líka borgað sig fjárhagslega að fullnýta auðlindir sem við erum alltof gjörn á að sóa.

Grænn iðngarður á Bakka
18. desember 2025
Undanfarin ár hefur Eimur sinnt þróun græns iðngarðs á Bakka í samstarfi við Norðurþing, Landsvirkjun, Orkuveitu Húsavíkur og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Í þeirri vinnu voru dregnir saman helstu styrkleikar og tækifæri svæðisins, þar á meðal um kosti Bakka fyrir varmasækinn iðnað, möguleika í nýtingu glatvarma og mikilvægi samhæfðrar uppbyggingar iðnaðar og samfélags. Nú stendur yfir ráðning á nýjum verkefnastjóra sem tekur við keflinu af Eimi sem mun starfa undir hatti þróunarfélagsins Grænn iðngarður á Bakka ehf. Á þessum tímamótum hefur fyrrum verkefnastjóri græns iðngarðs tekið saman skýrslu um afrakstur verkefnisins hingað til. Skýrsluna má nálgast undir útgefið efni hér á vefsíðu Eims. Í skýrslunni er dregin upp mynd af stöðu mála, áskorunum, tækifærum og forsendum fyrir áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu, ásamt heildstæðri framtíðarsýn fyrir Bakka. Skýrslan markar jafnframt þáttaskil fyrir þróun svæðisins þar sem farið er frá hugmyndavinnu og stefnumótun yfir í markvissa framkvæmd, í kjölfar stofnunar þróunarfélagins.
17. október 2025
Yfirskrift viðburðarins er Framtíðin á Bakka – Samvinna, sjálfbærni og sóknarfæri og er liður í að efla umræðu og samstöðu um framtíðarsýn fyrir atvinnuuppbyggingu á Norðurlandi. Meðal fundarefna verður: • Hvernig orka, varmi og innviðir skapa ný tækifæri á Bakka • Hvernig hringrásarhagkerfi getur stutt við atvinnuþróun og alþjóðlega ímynd Íslands • Hvernig samfélagið getur tekið virkan þátt í sjálfbærri uppbyggingu Dagskrá: Húsið opnar kl. 12:00 – Skráning og súpuhlaðborð fyrir gesti á Fosshótel Húsavík Ráðstefna kl. 13:00 – 17:00 Fundarliður 1: Bakki í sókn – Tækifæri og uppbygging á grænum grunni Fundarliður 2: Grunnstoðir Bakka – orka, innviðir og samkeppnishæfni Fundarliður 3: Hvert stefnum við? – Framtíðarsýn Bakka til næstu kynslóða Boðið verður upp á leiðsögn um svæðið á Bakka fyrir hádegi frá kl. 10:30 - 12:00 þann 20. nóvember og er sú ferð opin öllum. Rútan fer frá Fosshótel á Húsavík og er nauðsynlegt að skrá sig því það er takmarkað pláss. Ráðstefnan er opin öllum en skráning er nauðsynleg - www.eimur.is/bakkiradstefna
11. júní 2024
Eitt af þeim verkefnum sem hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði árið 2024, var verkefnið Glatvarmi á Bakka . Verkefnið Glatvarmi í Grænum iðngarði á Bakka er samstarfsverkefni Eims, PCC BakkiSilicon og Orkuveitu Húsavíkur . Markmið verkefnisins var að svara því hvort hagkvæmt sé að nýta glatvarma frá verksmiðju PCC BakkiSilicon á Bakka við Húsavík, ýmist í aðra iðnaðarstarfsemi eða fyrir hitaveitu á svæðinu. Vinna af þessu tagi er kjarninn í starfsemi Græns iðngarðs á Bakka , þar sem markmiðið er að nýta alla auðlindastrauma, sem þegar hafa verið virkjaðir, til fulls, og að þeir nýtist inn í aðra starfsemi á svæðinu. Þetta er fyrsta skrefið í því að leggja grunn að samstarfi fyrirtækja innan garðsins um nýtingu orku og hráefna sem falla til við vinnslu fyrirtækja. Verkefnið var unnið í samvinnu við Eflu verkfræðistofu sem sá um að greina gögn sem aðrir aðilar innan verkefnisins tóku saman, fyrir hagkvæmnigreiningu á föngun glatvarma sem myndast í kælikerfi PCC BakkiSilicon. Þessi varmi kemur úr kælikerfi ljósbogaofna PCC, sem kældir eru með vatni í lokaðri hringrás, en í dag er þessi varmi algjörlega ónýttur. Niðurstöður verkefnisins sýna að með auðveldum hætti og lítilli fjárfestingarþörf má sækja 8-9 MW af varma eða 100 l/s af 50 °C vatni, án breytingar á núverandi kælikerfi. Þar með geta skapast stór tækifæri fyrir ýmiskonar rekstur innan Græns iðngarðs. Grófir útreikningar sýna fram á hagkvæmni þess að nýta þennan varma samanborið við það að bora eftir heitu vatni, sem er hin hefðbundna leið til varmaöflunar. PCC BakkiSilicon hefur nú þegar sett í stað áframhaldandi vinnu á hagkvæmnigreiningu þar sem skoða á fýsileikann á því að sækja meiri varma annarsstaðar í framleiðsluferlinu. Þetta verkefni hefur sýnt fram á, svo ekki verður um villst að það getur líka borgað sig fjárhagslega að fullnýta auðlindir sem við erum alltof gjörn á að sóa. Frekari upplýsingar um verkefnið veitir verkefnastjóri Græns Iðngarðs á Bakka, Karen Mist Kristjánsdóttir - karen@eimur.is
Skoða fleiri tengdar fréttir

Nánari upplýsingar um verkefnið veita:

Karen Mist Kristjánsdóttir - karen@eimur.is