Fara í efni

Startup Stormur - Vaxtarrými fyrir norðlenska sprota hefst í haust

Startup Stormur - Vaxtarrými fyrir norðlenska sprota hefst í haust

Norðanátt hefur opnað fyrir umsóknir í hraðalinn STARTUP STORM - Vaxtarrými fyrir norðlenska sprota. 

Startup Stormur er sjö vikna hraðall beint að sjálfbærni, með áherslu á mat, vatn og orku þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki og vaxa með vindinn í bakið.

Hraðallinn er byggður upp að fyrirmynd viðskiptahraðla og er dagskrá sérhönnuð með þarfir teymanna sem taka þátt í huga og hafa þau þannig áhrif á þá fræðslu sem stendur þeim til boða.

Startup Stormur fer að mestu leyti fram á netinu en teymin hittast þrisvar sinnum meðan á hraðlinum stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Norðurlandi. Þátttakendur kynnast reynslumiklum leiðbeinendum, frumkvöðlum, fjárfestum og stjórnendum fyrirtækja, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli.

Leitast er eftir þátttakendum, þ.e. frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Norðurlandi sem eru komin af hugmyndastigi.

Kynningarfundur um Startup Storm fer fram 5. september nk. í gegnum netið – auglýst síðar.

Startup Stormur hefst 4. október og lýkur 16. nóvember með lokaviðburð þar sem teymin sem taka þátt halda fjárfestakynningar.

Umsóknarfrestur er til og með 21. september.

Nánari upplýsingar og skráning á www.nordanatt.is 

Smellið hér til að opna umsóknarformið.

*Norðanátt er hreyfiafl nýsköpunar á Norðurlandi sem miðar að því að auka fjárfestingar á svæðinu og skapa kraftmikið umhverfi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki sem vinna að nýsköpun með áherslu á loftslagsmál og hringrásarhagkerfið. Að verkefninu Norðanátt koma EIMUR, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) með stuðning frá Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytinu.