Fara í efni

Landsvirkjun og sveitarfélagið Norðurþing undirrituðu samstarfsyfirlýsingu árið 2022 um forathugun á þróun og uppbyggingu Græns iðngarðs á Bakka við Húsavík. Samkvæmt nýútkominni skýrslu, eru tækifæri fyrir fullvinnslu og verðmætasköpun innan græns iðngarðs á Bakka raunveruleg og myndi falla vel innan stefnu og markmiða sem Ísland hefur sett sér bæði í hringrásarhagkerfinu, grænum lausnum og í samfélags og efnahagsmálum.

Sumarið 2022 boðaði Norðurþing  opinn íbúafund á Húsavík um mögulega uppbyggingu græns iðngarðs á Bakka enda skiptir vilji nærsamfélagsins miklu máli við alla slíka uppbyggingu. Þátttakendur voru almennt jákvæðir og töldu tækifærin trúverðug. Eimur var Norðurþingi innan handar við skipulagningu viðburðarins sem yfir 70 manns sátu og var haldinn á Fosshóteli þann 27. september sl. Fundurinn var sýndur í beinu streymi og má finna upptöku af honum hér. Á fundinum var kynnt vinna undanfarinna mánuða við samstarfsverkefni Íslandsstofu, Landsvirkjunar, Norðurþings og Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um tækifæri Íslands og aðgerðir til að efla samkeppnishæfni Íslands á sviði vistvænna iðngarða.

Meginmarkmið verkefnisins var að rýna þau tækifæri sem grænir iðngarðar geta skapað til að auka aðdráttarafl Íslands og einstakra svæða til atvinnuuppbyggingar og gera ferla fjárfestingaverkefna sem þessara einfaldari og skilvirkari. Í verkefninu var horft annars vegar til almennrar samkeppnishæfni Íslands fyrir græna iðngarða og hins vegar verður byggt á skilyrðum og aðstæðum á Bakka við Húsavík sem verkefnis til viðmiðunar af þessu tagi hér á landi. Kynntir voru punktar úr lokaskýrslu M/STUDIO Reykjavík og INNOV sem tóku saman þau tækifæri og áskoranir sem felast í uppbyggingu græns iðngarðar á Bakka.

Síðla árs 2022 var auglýst eftir verkefnastjóra til þess að halda utan um uppbyggingu grænna iðngarða á Bakka við Húsavík. Karen Mist Kristjánsdóttir var ráðin sem verkefnastjóri í lok árs 2022. Norðurþing og Umhverfis-, orku,- og loftslagsráðuneytið standa að verkefninu með ríkri aðkomu Landsvirkjunar, en starfsmaðurinn verður í teymi með Eimi.

Hafa samband við verkefnastjóra