Fara í efni

Eimur á alþjóðlegri klasaráðstefnu

Eimur á alþjóðlegri klasaráðstefnu

Þátttakendur klasaráðstefnunnar
Þátttakendur klasaráðstefnunnar

Dag­ana 7.-9. nóv­em­ber fór fram alþjóðleg klas­aráðstefna hér á landi á Hilt­on Reykja­vík undir yfirskriftinni New Landscapes in the Clu­ster Develop­ment. Þetta er í fyrsta sinn sem ráðstefn­an er hald­in hér á landi en í 26. sinn sem hún fer fram. Hátt í 200 manns frá 25 löndum tóku þar þátt.

Eig­andi ráðstefn­unn­ar er alþjóðlegu klasa­sam­tök­in TCI (The Com­pe­titi­veness Institu­te). Ásta Krist­ín Sigurjónsdóttir hjá Íslenska ferðaklasanum sit­ur í stjórn TCI og leiddi fram­kvæmd ráðstefn­unn­ar fyr­ir hönd gest­gjaf­anna en auk Íslenska ferðaklas­ans eru Orkuklas­inn, Sjáv­ar­klas­inn og Fjár­tækniklas­inn í sam­starfi við há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðuneytið sem koma að henni. Þá komu fjöl­marg­ir sam­starfsaðilar að verk­efn­inu, þar á meðal Landsvirkjun og samstarfsverkefnin Eimur, Eygló, Blámi og Orkídea.

Fyrsti dagur ráðstefnunnar var helgaður vettvangsferðum og klasaheimsóknum. Eimur tók þátt í ferðinni "Finndu orkuna", sem hófst með kynningu á skrifstofu Bláa Lónsins í Urriðaholti. Þá var förinni heitið í Ljósafossstöð, sem staðsett er á Sogssvæðinu við Úlfljótsvatn. Dóra Björk Þrándardóttir, nýsköpunarstjóri Landsvirkjunar og Matthildur María Guðmundsdóttir, stöðvarstjóri á Sogssvæði tóku vel á móti gestum með áhugaverðu innleggi um stöðina og sögu hennar. Ferðin endaði svo í Hellisheiðavirkjun þar sem gestirnir fengu innsýn í virkjun og nýtingu jarðvarma á Íslandi.

Á ráðstefnunni fengu samstarfsverkefnin tækifæri að kynna verkefni sín og segja frá þeim árangri sem hafa náðst á síðustu árum.  Samstarfsverkefnin beina kröftum sínum að verkefnum sem snúa að loftslagsmálum, hringrásarhagkerfinu, verðmætasköpun, virkjun og betri nýtingu auðlinda og hvetja til hraðari umskiptum yfir í græna orku. Kolfinna María Níelsdóttir, verkefnastjóri hjá Eim undirstrikaði í erindi sínu mikilvægi samvinnu og klasasamstarfs til að ná árangri í í þessum málaflokkum í víðum skilning t.a.m út frá verkefnunum RECET, Grænum Iðngörðum á Bakka og Norðanátt. 

Ráðstefnan var bæði fróðleg og skemmtileg og veitti innsýn í starfsemi hjá stórum og smáum klösum sem standa að fjölbreyttum verkefnum um allan heim. Rauði þráðurinn er að virkja samstarf og samvinnu til að koma góðum hugmyndum í verk, hjálpa grasrótinni að blómstra og nýta hugvit og verkþekkingu sem þar er til staðar. Samvinna, traust og tengsl eru mikilvæg til að tryggja framgang verkefna.