3. nóvember 2026

Eimur leitar að verkefnastjóra fyrir stórt Evrópuverkefni

Vilt þú leiða alþjóðlegt samstarfsverkefni og taka þátt í að móta framtíð sjálfbærrar orku og samfélagsþróunar í Evrópu?

Eimur leitar að öflugum verkefnastjóra til að leiða nýtt og metnaðarfullt Evrópuverkefni, DEPLOY-PED, sem félagið stýrir í samstarfi við 19 aðila í 10 löndum.


Um er að ræða einstakt tækifæri til að leiða umfangsmikið alþjóðlegt þróunarverkefni sem hefur það að markmiði að styðja samfélög við að nýta eigin auðlindir betur, auka sjálfbærni og draga úr háð þeirra á innfluttum orkugjöfum.

Verkefnið byggir á hugmyndafræði um orkujákvæð héruð (e. Positive Energy Districts), þar sem samfélög stefna að því að framleiða meiri endurnýjanlega orku en þau nota yfir árið. Verkefnið er til fjögurra ára, frá 1. janúar 2027 til 31. desember 2030, og felur í sér samstarf við sérfræðinga og stofnanir víðs vegar um Evrópu.


Fjölbreytt og krefjandi starf

Verkefnastjóri ber ábyrgð á daglegri samræmingu og utanumhaldi verkefnisins í nánu samstarfi við alþjóðlega samstarfsaðila. Meðal verkefna eru samskipti og samvinna við samstarfsaðila, eftirfylgni með verk- og kostnaðaráætlunum, skipulagning funda og viðburða, upplýsingamiðlun og gerð framvinduskýrslna.

Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun og reynslu af verkefnastjórnun, sem býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og góðri skipulagshæfni. Reynsla af alþjóðlegu samstarfi og Evrópuverkefnum er kostur, sem og áhugi á orku- og sjálfbærnimálum.

Starfsstöð er á Akureyri, en einnig kemur til greina að verkefnastjóri starfi frá öðrum stað á Norðurlandi.


Tækifæri til að hafa áhrif

Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni, alþjóðlegt tengslanet og tækifæri til að vinna að lausnum sem stuðla að sjálfbærari framtíð. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Eim og samstarfsaðila þess, þar sem nýjar hugmyndir, þekking og reynsla verða nýttar til að skapa raunveruleg verðmæti fyrir samfélög.



Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér starfið og sækja um.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Arna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Eims, í gegnum netfangið hildur@eimur.is.


Deila frétt

28. september 2026
Orka var rauður þráður á Hönnunarþingi sem fór fram á Húsavík um helgina. Eimur tók þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem orka, nýsköpun, auðlindanýting og sjálfbærni voru skoðuð frá ólíkum sjónarhornum.
7. september 2026
Tíunda Norræna lífgasráðstefnan (e. Nordic Biogas Conference) var haldin í Reykjavík dagana 2. til 4. september, á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár í samstarfi helstu aðila í lífgasiðnaði Norðurlandanna fimm, og ráðstefnustaðurinn færist milli landanna á ári hverju, frá því hún var fyrst haldin í Helsinki árið 2006. Þetta var í annað sinn sem hún er haldin hér á landi, en Ísland hýsti hana síðast árið 2014. Um tvö hundruð þátttakendur sóttu ráðstefnuna, og þar á meðal voru sveitarfélög, orkufyrirtæki, tæknibirgjar, fjárfestar, ráðgjafar, vísindafólk og fulltrúar landbúnaðarins. Sigurður Líndal Þórisson, sviðsstjóri sjálfbærra viðskipta hjá Eimi , flutti erindi í málstofu um landbúnað ásamt Sveini Aðalsteinssyni, framkvæmdastjóra Orkídeu. Útgangspunktur erindisins var sá að við fyrstu sýn virðist Ísland vera síðasta landið sem þarf á lífgasi að halda, enda húshitun og raforka að mestu úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Samgöngur, landbúnaður og orkukostnaður í dreifbýli segja hins vegar aðra sögu. Í erindinu var farið yfir tvær ólíkar leiðir að sama marki: uppbyggingu á einum stað við Dysnes í Eyjafirði og dreifða nálgun í Húnaþingi vestra, þar sem Orkusamfélag Steingerðar byggir á samstarfi 34 kúabænda . Sigurður fór yfir rekstrarforsendurnar eins og þær blasa við í dag, þar sem tekjurnar liggja að minna leyti í sölu á metani, heldur frekar í hliðgjöldum fyrir lífrænan úrgang og í meltunni sem til verður við gerjunina og nýtist sem áburður. Hindranirnar eru fremur skipulagslegar en tæknilegar, því aðilar máls bíða hver eftir öðrum meðan forystu og stefnumótun ríkisins skortir. Erindinu lauk á endurtekningu sameiginlegrar áskorunar Eims og Orkídeu til tveggja ráðuneyta frá því í maí, um að ráðist verði í tvö tilraunaverkefni í landbúnaðartengdri metan vinnslu, bæði fyrir norðan og sunnan. Þátttaka í ráðstefnum af þessu tagi skiptir miklu máli fyrir verkefni sem eru enn í mótun. Þar fæst samanburður við þau lönd sem eru komin lengra, tengsl myndast við tæknibirgja og mögulega samstarfsaðila í umsóknum, og ekki síst er þetta tækifæri til að koma íslenskum aðstæðum á framfæri. Þær eru sérstakar og þær rata ekki inn í norræna umræðu nema einhver mæti og segi frá þeim.