22. október 2026

Eimur stýrir nýju Evrópuverkefni um orkujákvæð héruð

Sex sýnisverkefni í fimm Evrópulöndum og Kanada, eitt þeirra í Húnaþingi vestra


Gengið hefur verið frá styrksamningi við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um verkefnið DEPLOY-PED, sem Eimur stýrir. Þetta er í fyrsta sinn sem Eimur fer með verkefnisstjórn í evrópsku samstarfsverkefni. Styrkurinn nemur tæpum fimm milljónum evra, eða um 700 milljónum króna, og verkefnið stendur í fjögur ár frá 1. janúar 2027. Að því koma tuttugu samstarfsaðilar í tíu löndum.  


Fyrir Eim er verkefnið mikilvægt skref í að efla samstarf um nýjar lausnir sem styðja við bætta nýtingu auðlinda, orkuskipti og verðmætasköpun. Samningurinn var undirritaður af Ottó Elíassyni fyrir hönd verkefnisins áður en Hildur Arna Magnúsdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Eims 1. október síðastliðinn. 


Markmið DEPLOY-PED er að styðja samfélög við að nýta eigin auðlindir betur, auka sjálfbærni og draga úr hæði á innfluttum orkugjöfum. Verkefnið byggir á hugmyndafræði um orkujákvætt hérað (e. Positive Energy District), þar sem samfélag framleiðir meiri endurnýjanlega orku en það notar yfir árið. Slík verkefni í Evrópu hafa hingað til verið smá og afmörkuð, oftast eitt hverfi í senn. DEPLOY-PED er ætlað að þróa aðferðafræðina áfram og færa hana upp á heilu sveitarfélögin og byggðarlögin, auk þess að sannreyna hana við ólíkar aðstæður. 


Sex sýnisverkefni verða unnin í Leonding í Austurríki, á Samsø og í Lyngby-Taarbæk í Danmörku, í Žďár nad Sázavou í Tékklandi, í Saint John í Kanada og í Húnaþingi vestra. Fimm borgir og héruð til viðbótar aðlaga aðferðina að eigin aðstæðum, þar á meðal Lviv í Úkraínu, Gjakova í Kósovó og Cascais í Portúgal. 


Lífgas í dreifbýli í Húnaþingi vestra 


Íslenska sýnisverkefnið snýr að möguleikum lífgasframleiðslu í dreifbýli. Orkusamfélag Steingerðar, félag kúabænda í Húnaþingi vestra, vinnur verkefnið í samstarfi við Eim. Markmiðið er að hópur kúabúa hafi að verkefninu loknu þá þekkingu og þau gögn sem þarf til að geta staðið saman að uppbyggingu lífgasstöðvar sem breytir mykju í metan og áburð. Með því skapast tækifæri til að draga úr notkun innfluttrar dísilolíu og tilbúins áburðar. 


Íslensk kúabú greiða verulegar fjárhæðir á ári hverju fyrir eldsneyti á dráttarvélar og innfluttur áburður er íþyngjandi kostnaðarliður fyrir mörg bú. Með verkefninu verður kannað hvernig hægt er að nýta auðlindir búanna betur og skapa verðmæti úr mykju. 


Engin lífgasstöð hefur verið byggð og staðsetning hennar hefur ekki verið ákveðin. Á verkefnistímanum er stefnt að því að móta tæknilega útfærslu, rekstrarlíkan og fjármögnun sem getur staðið undir slíkri uppbyggingu. RARIK tekur þátt í verkefninu sem dreifiveita. 


Íslensku þátttakendurnir þrír fá rúmar 1,3 milljónir evra í sinn hlut, eða um fjórðung af heildarstyrknum. 


„Það er mikilvægt að samningurinn sé nú frágenginn eftir langt umsóknar- og samningaferli. Með verkefninu fær Húnaþing vestra tækifæri til að þróa eigin lausnir í orkumálum til jafns við þátttökusvæðin í Evrópu. Þar er ekki aðeins horft til tæknilegra lausna heldur einnig að byggja upp þekkingu, samstarf og raunhæfan grundvöll fyrir framtíðarrekstur,“ segir Ottó Elíasson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eims, sem undirritaði samninginn fyrir hönd verkefnisins. 


Hildur Arna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Eims, segir verkefnið mikilvægt framhald af vinnu Eims við bætta nýtingu auðlinda og orkuskipti. 


„Það er ánægjulegt að samningurinn sé kominn í höfn og að verkefnið sé nú á leið í framkvæmd. DEPLOY-PED snýst ekki aðeins um nýja tækni heldur um hvernig samfélög geta nýtt eigin auðlindir til að skapa verðmæti, styrkja atvinnulíf og auka sjálfbærni í heimabyggð. 

Fyrir Eim er þetta mikilvægt tækifæri til að leiða alþjóðlegt samstarf sem getur skilað raunverulegum ávinningi fyrir íslensk sveitarfélög og fyrirtæki. Við viljum að Ísland taki þátt í að móta lausnir framtíðarinnar, ekki aðeins innleiða þær eftir á. Fyrir Húnaþing vestra felast í þessu raunveruleg tækifæri til að byggja upp þekkingu og leggja grunn að framtíðarlausnum sem geta styrkt rekstrargrundvöll kúabúa.“ segir Hildur. 


Eimur hefur um árabil tekið þátt í evrópskum samstarfsverkefnum á sviði sjálfbærni, hringrásarhagkerfis og auðlindanýtingar, meðal annars RECET og ICEWATER, sem bæði eru styrkt af LIFE-áætlun Evrópusambandsins. DEPLOY-PED er styrkt af Horizon Europe, rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins. Með DEPLOY-PED tekur félagið næsta skref og leiðir alþjóðlegt samstarf sem miðar að því að þróa lausnir sem geta styrkt orkuskipti, aukið sjálfbærni samfélaga og skapað ný tækifæri til verðmætasköpunar bæði á Íslandi og víðar í Evrópu.


Nánari upplýsingar veitir Hildur Arna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Eims, á netfanginu hildur@eimur.is. 


Deila frétt

28. september 2026
Orka var rauður þráður á Hönnunarþingi sem fór fram á Húsavík um helgina. Eimur tók þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem orka, nýsköpun, auðlindanýting og sjálfbærni voru skoðuð frá ólíkum sjónarhornum.
7. september 2026
Tíunda Norræna lífgasráðstefnan (e. Nordic Biogas Conference) var haldin í Reykjavík dagana 2. til 4. september, á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár í samstarfi helstu aðila í lífgasiðnaði Norðurlandanna fimm, og ráðstefnustaðurinn færist milli landanna á ári hverju, frá því hún var fyrst haldin í Helsinki árið 2006. Þetta var í annað sinn sem hún er haldin hér á landi, en Ísland hýsti hana síðast árið 2014. Um tvö hundruð þátttakendur sóttu ráðstefnuna, og þar á meðal voru sveitarfélög, orkufyrirtæki, tæknibirgjar, fjárfestar, ráðgjafar, vísindafólk og fulltrúar landbúnaðarins. Sigurður Líndal Þórisson, sviðsstjóri sjálfbærra viðskipta hjá Eimi , flutti erindi í málstofu um landbúnað ásamt Sveini Aðalsteinssyni, framkvæmdastjóra Orkídeu. Útgangspunktur erindisins var sá að við fyrstu sýn virðist Ísland vera síðasta landið sem þarf á lífgasi að halda, enda húshitun og raforka að mestu úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Samgöngur, landbúnaður og orkukostnaður í dreifbýli segja hins vegar aðra sögu. Í erindinu var farið yfir tvær ólíkar leiðir að sama marki: uppbyggingu á einum stað við Dysnes í Eyjafirði og dreifða nálgun í Húnaþingi vestra, þar sem Orkusamfélag Steingerðar byggir á samstarfi 34 kúabænda . Sigurður fór yfir rekstrarforsendurnar eins og þær blasa við í dag, þar sem tekjurnar liggja að minna leyti í sölu á metani, heldur frekar í hliðgjöldum fyrir lífrænan úrgang og í meltunni sem til verður við gerjunina og nýtist sem áburður. Hindranirnar eru fremur skipulagslegar en tæknilegar, því aðilar máls bíða hver eftir öðrum meðan forystu og stefnumótun ríkisins skortir. Erindinu lauk á endurtekningu sameiginlegrar áskorunar Eims og Orkídeu til tveggja ráðuneyta frá því í maí, um að ráðist verði í tvö tilraunaverkefni í landbúnaðartengdri metan vinnslu, bæði fyrir norðan og sunnan. Þátttaka í ráðstefnum af þessu tagi skiptir miklu máli fyrir verkefni sem eru enn í mótun. Þar fæst samanburður við þau lönd sem eru komin lengra, tengsl myndast við tæknibirgja og mögulega samstarfsaðila í umsóknum, og ekki síst er þetta tækifæri til að koma íslenskum aðstæðum á framfæri. Þær eru sérstakar og þær rata ekki inn í norræna umræðu nema einhver mæti og segi frá þeim.
31. ágúst 2026
Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims og hefur störf 1. október næstkomandi. Hildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd. Hildur er með M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði (Management Engineering) frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU), m.a. með áherslu á nýsköpun og stjórnun, og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Eims. Ég sé gríðarleg tækifæri á Norðurlandi til að skapa ný verðmæti með því að nýta betur þær auðlindir, þekkingu og kraft sem þegar er til staðar á svæðinu. Eimur gegnir mikilvægu hlutverki við að leiða saman fólk, þekkingu og hugmyndir og hjálpa til við að breyta tækifærum í raunveruleg verkefni. Hjá Eimi starfar öflugur hópur fólks með mikla sérþekkingu og metnað. Ég hlakka til að byggja áfram á því góða starfi sem þegar hefur verið unnið, og vinna með starfsfólki, bakhjörlum og samstarfsaðilum Eims að því að skapa ný tækifæri og verðmæti á Norðurlandi“. Frá stjórn Eims: „Við erum ákaflega ánægð með ráðningu Hildar í starf framkvæmdastjóra Eims. Við erum sannfærð um að reynsla hennar, þekking og leiðtogahæfileikar muni nýtast félaginu vel. Með ráðningunni tekur við nýr kafli í starfsemi Eims, þar sem áfram verður lögð áhersla á að tengja saman fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og þekkingu sem mun styðja við verkefni sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á Norðurlandi.“ Starfið var auglýst síðastliðið vor og Mögnum ráðningaskrifstofa aðstoðaði Eim við ráðningarferlið.