Breski sendiherrann á Íslandi heimsótti Eim

Jane Stevens, sendiherra Bretlands á Íslandi, heimsótti Eim á nýrri aðalskrifstofu félagsins á Skiptagötu 9 á Akureyri.
Í heimsókninni kynnti Eimur starfsemi sína og verkefni á sviði orkuskipta, sjálfbærni og bætta nýtingu auðlinda á Norðurlandi. Rætt var um alþjóðlegt samstarf og mikilvægi þess að tengja saman staðbundna þekkingu og reynslu frá öðrum löndum við þróun nýrra lausna í orku- og auðlindanýtingu.
Meðal þess sem kynnt var var Vatnalíf / ICEWATER, þar sem Eimur hefur þróað færanlegan hreinsigám til forhreinsunar á fráveituvatni frá matvælaiðnaði. Verkefnið sýnir hvernig hægt er að þróa nýjar lausnir með atvinnulífinu og skapa tækifæri til verðmætasköpunar úr auðlindum sem annars færu til spillis. Eimur hefur unnið verkefnið í góðu samstarfi við Kjarnafæði/Norðlenska á Húsavík og er stolt af þeim árangri sem náðst hefur við þróun og prófun gámsins.
Einnig var rætt um möguleika lífgasframleiðslu í landbúnaði og hvernig kúabændur geta nýtt mykju til framleiðslu á eldsneyti. Í Bretlandi eru dæmi um slíka nýtingu og var rætt um hvernig sú reynsla gæti nýst við þróun sambærilegra lausna hér á landi. Lífgas og orkuskipti í landbúnaði voru einnig meðal umræðuefna á viðburði Eims um orkuskipti í landbúnaði fyrr á þessu ári.
Þessi umræða tengist jafnframt DEPLOY-PED, nýju evrópsku samstarfsverkefni sem Eimur leiðir. DEPLOY-PED er styrkt af Horizon Europe og að verkefninu koma tuttugu samstarfsaðilar í tíu löndum. Eitt af sex sýnisverkefnum þess verður unnið í Húnaþingi vestra, þar sem sjónum verður beint að möguleikum lífgasframleiðslu í dreifbýli. Verkefnið hefst í janúar 2027 og stendur í fjögur ár.
Heimsóknin var jafnframt tækifæri til að ræða mikilvægi þess að tengja saman staðbundna þekkingu og alþjóðlegt samstarf til að þróa nýjar lausnir í orku- og auðlindanýtingu.
Það var einstaklega ánægjulegt að taka á móti sendiherra Bretlands á Íslandi og kynna starfsemi og áherslur Eims. Hún sýndi verkefnum okkar mikinn áhuga og það sköpuðust áhugaverðar umræður um tækifæri í orkuskiptum og nýsköpun. Samtalið styrkti tengsl okkar og skapar vonandi tækifæri til frekara samstarfs um málefni sem skipta báðar þjóðir miklu máli. segir Hildur Arna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Eims.
Jane Stevens tók við embætti sendiherra Bretlands á Íslandi í september síðastliðnum. Hún hefur starfað lengi í bresku utanríkisþjónustunni og hefur meðal annars sinnt málefnum loftslagsmála og orku.
Deila frétt









