Fara í efni

Eimur á orkuráðstefnu í Tallinn

Eimur á orkuráðstefnu í Tallinn

Skúli Gunnar Árnason, verkefnastjóri RECET flytur erindi á ráðstefnu í Tallinn
Skúli Gunnar Árnason, verkefnastjóri RECET flytur erindi á ráðstefnu í Tallinn

Í síðustu viku fór Eimur sem staðgengill Umhverfis-, orku og loftlagsráðuneytisins á orkuráðstefnu Norður- og Eystrasaltslandanna (e. Nordic-Baltic Energy Conference 2023) sem haldin var í Tallin, Eistlandi dagana 11.-12. desember sl.

Skúli Gunnar Árnason, verkefnastjóri RECET hélt þar erindi undir yfirskriftinni “Energy policy on the local level. Planning and implementing energy actions with local authorities”.  Á ráðstefnunni kynnti Skúli verkefnið Rural Europe for the Clean Energy Transition (RECET), sem nýlega hlaut styrk sem nemur um 1,5 milljónum evra (225 M ISK) úr LIFE styrktaráætlun Evrópusambandsins. Í erindi sínu talaði Skúli um markmið þess verkefnis, þ.e. að stuðla að orkuskiptum og áætlanagerð í orkuskiptum í dreifðum byggðum. Erindinu var vel tekið og bárust áhugaverðar spurningar úr sal ásamt því að ráðstefnugestir tengdu margir við þau vandamál sem fylgja dreifðum byggðum og hlökkuðu til að sjá árangur verkefnisins og hvort það gæti nýst í þeirra eigin heimabyggð.

Fjölmörg erindi voru flutt á ráðstefnunni m.a. um breyttar Evrópu tilskipanir með hertum markmiðum um hlutfall endurnýtanlegra orkugjafa af heildarorkunni, RED, neðanjarðar orkugeymslumöguleika bæði fyrir vetni og fyrir vatn (pumped storage) ásamt því að erindi voru flutt um vetni og hlutverk þess í orkublöndu framtíðar.