25. janúar 2023
Hádegisfræðsla: Að rata í frumkvöðlaumhverfinu

Eimur í samstarfið við SSNE & SSNV standa að vikulegum fræðsluerindum öll þriðjudagshádegi fram til 21. mars fyrir frumkvöðla og öll þau sem eru forvitin um nýsköpunarheiminn.
Næsta erindi verður þriðjudaginn 31. janúar kl. 12:00:
Að rata í frumkvöðlaumhverfinu.
RATA býður verðandi, nýjum og núverandi frumkvöðlum í spjall á netinu og fara yfir stuðningsumhverfi frumkvöðla.
- Svava Björk Ólafsdóttir, meðstofnandi RATA.
Erindin verða haldin á Teams kl. 12:00 alla þriðjudaga og er ráðgert að hvert erindi verði ekki lengra en 30 mínútur. Í kjölfar hvers erindis gefst hlustendum kostur á að spyrja spurninga.
✍️Nauðsynlegt er að skrá sig til að fá fundarboð: https://www.ssne.is/.../formb.../index/index/hadegisfraedsla
Þátttaka er ókeypis!
Deila frétt

Yfirskrift viðburðarins er Framtíðin á Bakka – Samvinna, sjálfbærni og sóknarfæri og er liður í að efla umræðu og samstöðu um framtíðarsýn fyrir atvinnuuppbyggingu á Norðurlandi. Meðal fundarefna verður: • Hvernig orka, varmi og innviðir skapa ný tækifæri á Bakka • Hvernig hringrásarhagkerfi getur stutt við atvinnuþróun og alþjóðlega ímynd Íslands • Hvernig samfélagið getur tekið virkan þátt í sjálfbærri uppbyggingu Dagskrá: Húsið opnar kl. 12:00 – Skráning og súpuhlaðborð fyrir gesti á Fosshótel Húsavík Ráðstefna kl. 13:00 – 17:00 Fundarliður 1: Bakki í sókn – Tækifæri og uppbygging á grænum grunni Fundarliður 2: Grunnstoðir Bakka – orka, innviðir og samkeppnishæfni Fundarliður 3: Hvert stefnum við? – Framtíðarsýn Bakka til næstu kynslóða (Nánari dagskrá verður birt þegar nær dregur) Boðið verður upp á leiðsögn um svæðið á Bakka fyrir hádegi frá kl. 10:30 - 12:00 þann 20. nóvember og er sú ferð opin öllum. Rútan fer frá Fosshótel á Húsavík og er nauðsynlegt að skrá sig því það er takmarkað pláss. Ráðstefnan er opin öllum en skráning er nauðsynleg - www.eimur.is/bakkiradstefna

Um liðna helgi tók Eimur þátt í Hönnunarþingi Hraðsins á Húsavík, sem nú var haldið í þriðja sinn. Hönnunarþing er hátíð hönnunar og nýsköpunar þar sem m.a. skapandi greinar og frumkvöðlastarf mætast á fjölbreyttan hátt, en í ár var sjónum beint sérstaklega að mat og ólíkum snertiflötum hönnunar og matarhandverks. Á dagskránni mátti finna fyrirlestra frumkvöðla og hönnuða, sýningar, sköpunarverk matreiðslufólks, tónlistaratriði og nýstárleg verkefni sem öll vörpuðu ljósi á hvernig hugmyndaflug, hönnun og framtíðarsýn geta skapað einstaka upplifun.







