Fara í efni

Orkuskipti og sveitarfélög - hlekkur á fund

Orkuskipti og sveitarfélög - hlekkur á fund

Íslensk nýorka, Eimur, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra  og Vestfjarðastofa standa fyrir sameiginlegum viðburði í dag, þriðjudaginn  29. ágúst kl. 13:00. Viðburðurinn verður í beinu streymi á TEAMS frá Hótel KEA á Akureyri og ber yfirskriftina: Orkuskipti og sveitarfélög. Viðburðurinn markar upphafið að þriggja ára verkefni sem miðar að því að efla getu sveitarfélaga og samfélaga í dreifðum byggðum Evrópu, til að takast á við orkuskipti.

>>> SMELLTU HÉR TIL AÐ TENGJAST FUNDI <<<

Dagskrá:

Hilmar Gunnlaugsson, Sókn Lögmannsstofa       
Tekjumöguleikar sveitarfélaga af orkumannvirkjum 

Alexis Chatzimpiros, Samsø Energiakademi        
Reynsla af uppbyggingu vindorku og öðrum orkugjöfum á Samsö

Anna Margrét Kornelíusdóttir, Íslensk Nýorka   
Rural Europe for the Clean Energy Transition (RECET verkefnið) - Styrkt af LIFE-áætlun ESB

Fundarstjóri er Ottó Elíasson, rannsókna- og þróunarstjóri hjá Eimi.