Fara í efni

Hacking Norðurland

Hacking Norðurland er lausnamót sem fer fram dagana 15.-18. apríl 2021 á Norðurlandi. Unnið verður með sjálfbæra nýtingu auðlinda svæðisins út frá orku, vatn og mat. Markmið lausnamótsins er að efla frumkvöðlastarf og sköpunarkraft á svæðinu og þannig stuðla að nýjum viðskiptatækifærum og verkefnum. Lausnamótinu er ekki síður ætlað að vekja athygli á því öfluga frumkvöðlasamfélagi sem er á Norðurlandi. Hacking Norðurland er samstarfsverkefni Hacking Hekla, Eims, Nordic Food in Tourism, SSNE, SSNV og Nýsköpun í norðri. Íslandsbanki styrkir verkefnið.

Lausnamótið fer að stærstum hluta til fram á netinu á samsköpunarlausninni Hugmyndaþorp sem þróuð er af sprotafyrirtækinu Austan mána í samstarfi við Hacking Hekla. Þátttaka er því ekki háð staðsetningu og er öllum velkomið að taka þátt. Þátttakendur fá tækifæri til að kynnast nýtingu auðlinda á Norðurlandi, tengjast nýju fólki og eflast í að vinna ný verkefni út frá áskorunum á svæðinu. Lausnamótið hefst 15. apríl með opnunarviðburði og vefstofu þar sem rætt verður um þau tækifæri sem auðlindir svæðisins bjóða upp á. Föstudaginn 16. apríl hefst svo lausnamótið sjálft sem stendur í 48 klukkustundir. Samstarfsteymi Hacking Norðurland mun ferðast á milli frumkvöðlasetra á svæðinu meðan á lausnamótinu stendur og geta þátttakendur nærri þeim setrum nýtt sér möguleikann á að vinna að hugmyndum sínum þar. Lausnamótið endar sunnudaginn 18. apríl með lokaviðburði þar sem dómnefnd velur þrjú bestu verkefnin.

Besta verkefnið hlýtur svo verðlaun upp á 500.000 kr. 

Fjöldi aukavinninga er einnig í boðið frá frumkvöðlum á Norðurlandi

Fylgið viðburðinum á Facebook!

Skráning fer fram á vefsíðu Hugmyndaþorps Austan Mána.