Aðgerðabanki RECET


Aðgerðabanki RECET er hagnýtt verkfæri fyrir íslensk sveitarfélög við gerð aðgerðaáætlana í loftslags- og orkuskiptamálum. Bankinn inniheldur 49 aðgerðir sem auðvelda markvissa stefnumótun og framkvæmd í átt að aukinni sjálfbærni.

Heimasíða verkefnisins

Hagnýtt verkfæri fyrir gerð aðgerðaáætlana

Aðgerðabanki RECET er hagnýtt og aðgengilegt verkfæri sem sniðið er að þörfum sveitarfélaga á Íslandi við gerð aðgerðaáætlana í orkuskiptum og loftslagsmálum.


Bankinn er safn 49 aðgerða sem nýtast sem grunnur að heildstæðum loftslagsáætlunum og ná yfir orkuskipti, orkunýtni, breyttar ferðavenjur, fræðslu og aukna sjálfbærni í rekstri sveitarfélaga.


Markmið aðgerðabankans er að einfalda sveitarfélögum vinnu við mótun og innleiðingu aðgerðaáætlana og styðja þau við að uppfylla lögbundnar skyldur í loftslagsmálum. Lögð er áhersla á skýra framsetningu, hagnýtar leiðbeiningar og raunhæfar tillögur að útfærslu aðgerða.


Skýr uppbygging og tenging við landsmarkmið

Í bankanum er hver aðgerð sett fram með:

  • skýru markmiði
  • hugmyndum að framkvæmd
  • tillögu að ábyrgðaraðila
  • flokkun innan stjórnsýslu sveitarfélags


Einnig er leitast við að tengja aðgerðir við aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum á Stjórnarráð Íslands (co2.is), til að stuðla að betri samfellu milli markmiða ríkis og sveitarfélaga.


Aðgerðabankinn er ekki tæmandi en spannar breitt svið. Aðgerðir eru mis umfangsmiklar; sumar má innleiða með einföldum hætti innan stjórnsýslunnar en aðrar krefjast víðtækara samstarfs og fjárfestinga.


Unnið í samstarfi við sveitarfélög

Aðgerðabankinn var unninn af Eimur, SSNE og Vestfjarðastofa í kjölfar vinnustofa með fulltrúum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og Vestfjörðum árin 2024–2025.


Aðgerðirnar byggja því beint á þörfum, reynslu og áherslum starfsfólks og stjórnenda sveitarfélaga á landsbyggðinni.


Verkefnið er hluti af RECET (Rural Europe for the Clean Energy Transition), sem styður orkuskipti í dreifðum byggðum og er styrkt af LIFE styrktaráætlun Evrópusambandsins.


Aðgengi og notkun

Aðgerðabankann er hægt að skoða beint á vefnum eða hlaða niður á Excel-formi, á íslensku og ensku. Þannig geta sveitarfélög aðlagað efnið að eigin stefnumótun og innleiðingu.


Aðgerðabankinn er öllum opinn og frjáls til afnota.

Ef þið nýtið bankann í eigin vinnu viljum við gjarnan heyra af því, og endilega hafa samband við ottoel@eimur.is.

17. febrúar 2026
Hagnýtt verkfæri fyrir markvissa aðgerðaáætlun
20. janúar 2026
Í fréttabréfinu er farið yfir þann árangur sem náðst hefur innan verkefnisins á síðustu misserum og varpað ljósi á fjölbreytt og metnaðarfull verkefni samstarfsaðila víðs vegar um Evrópu. Helstu atriði frá íslensku samstarfsaðilunum: Á Íslandi hafa Eimur, SSNE og Vestfjarðastofa unnið með sveitarfélögum á sínum svæðum að gerð svæðisbundinna áætlana fyrir orkuskipti og loftslagsmál. Á Norðurlandi eystra liggur nú fyrir sam eiginleg loftslagsáætlun allra sveitarfélaga SSNE. Í þeirri vinnu var meðal annars nýttur aðgerðabanki RECET, sem er afrakstur vinnustofa sem Eimur og SSNE héldu haustið 2024. Á Vestfjörðum var farin sú leið að flétta orkuskipta- og loftslagsmál inn í svæðisskipulagsgerð, sem nú er í samráðsferli. Vestfjarðastofa hefur haft forgöngu um innleiðingu græns bókhaldskerfis fyrir sveitarfélög á svæðinu, sem auðveldar eftirfylgni og mat á árangri aðgerða í rauntíma. Á tímabilinu voru haldnir nokkrir viðburðir, þar á meðal: Alþjóðleg ráðstefna í Hofi í maí 2025, skipulögð af Eimi í samstarfi við Íslenska Nýorku, Nordic Energy Research og Umhverfis- og orkustofnun, undir yfirskriftinni Akureyri Energy Seminar. Vefþing um orkuskipti smábáta í apríl 2025, haldið af Eimi og Vestfjarðastofu. Eimur birti einnig olíumælaborð á tímabilinu sem er byggt á greiningu Eims og Eflu á olíusölu eftir landsvæðum á árunum 2010-2020. Á næstu vikum verður aðgerðabanki RECET gerður opinber. 🔗 Hægt er að lesa fréttabréfið á netinu eða sækja PDF-útgáfu hér: https://www.recetproject.eu/recetnewsletter-2 Um RECET RECET er samstarfsverkefni fimm landa og fjölda sveitarfélaga víðs vegar um Evrópu, með Ísland í fararbroddi. Verkefnið miðar að því að efla getu sveitarfélaga og atvinnulífs til að takast á við orkuskipti og móta markvissar orkuskiptaáætlanir fyrir svæðin. RECET er styrkt af LIFE-styrktaráætlun Evrópusambandsins, sem leggur áherslu á umhverfis- og loftslagsmál.
3. júlí 2025
Eimur kynnir með stolti gagnvirkt olíumælaborð
Skoða fleiri tengdar fréttir

Nánari upplýsingar um verkefnið veita:

Ottó Elíasson á netfangið: ottoel@eimur.is