20. janúar 2026
Fréttabréf RECET er komið út!

Annað tölublað RECET fréttabréfsins er nú komið út
Í fréttabréfinu er farið yfir þann árangur sem náðst hefur innan verkefnisins á síðustu misserum og varpað ljósi á fjölbreytt og metnaðarfull verkefni samstarfsaðila víðs vegar um Evrópu.
Helstu atriði frá íslensku samstarfsaðilunum:
- Á Íslandi hafa Eimur, SSNE og Vestfjarðastofa unnið með sveitarfélögum á sínum svæðum að gerð svæðisbundinna áætlana fyrir orkuskipti og loftslagsmál.
- Á Norðurlandi eystra liggur nú fyrir sam eiginleg loftslagsáætlun allra sveitarfélaga SSNE. Í þeirri vinnu var meðal annars nýttur aðgerðabanki RECET, sem er afrakstur vinnustofa sem Eimur og SSNE héldu haustið 2024.
- Á Vestfjörðum var farin sú leið að flétta orkuskipta- og loftslagsmál inn í svæðisskipulagsgerð, sem nú er í samráðsferli.
- Vestfjarðastofa hefur haft forgöngu um innleiðingu græns bókhaldskerfis fyrir sveitarfélög á svæðinu, sem auðveldar eftirfylgni og mat á árangri aðgerða í rauntíma.
- Á tímabilinu voru haldnir nokkrir viðburðir, þar á meðal:
- Alþjóðleg ráðstefna í Hofi í maí 2025, skipulögð af Eimi í samstarfi við Íslenska Nýorku, Nordic Energy Research og Umhverfis- og orkustofnun, undir yfirskriftinni Akureyri Energy Seminar.
- Vefþing um orkuskipti smábáta í apríl 2025, haldið af Eimi og Vestfjarðastofu.
- Eimur birti einnig olíumælaborð á tímabilinu sem er byggt á greiningu Eims og Eflu á olíusölu eftir landsvæðum á árunum 2010-2020.
- Á næstu vikum verður aðgerðabanki RECET gerður opinber.
🔗 Hægt er að lesa fréttabréfið á netinu eða sækja PDF-útgáfu hér:
Um RECET
RECET er samstarfsverkefni fimm landa og fjölda sveitarfélaga víðs vegar um Evrópu, með Ísland í fararbroddi. Verkefnið miðar að því að efla getu sveitarfélaga og atvinnulífs til að takast á við orkuskipti og móta markvissar orkuskiptaáætlanir fyrir svæðin. RECET er styrkt af LIFE-styrktaráætlun Evrópusambandsins, sem leggur áherslu á umhverfis- og loftslagsmál.
Deila frétt

Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims og hefur störf 1. október næstkomandi. Hildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd. Hildur er með M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði (Management Engineering) frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU), m.a. með áherslu á nýsköpun og stjórnun, og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Eims. Ég sé gríðarleg tækifæri á Norðurlandi til að skapa ný verðmæti með því að nýta betur þær auðlindir, þekkingu og kraft sem þegar er til staðar á svæðinu. Eimur gegnir mikilvægu hlutverki við að leiða saman fólk, þekkingu og hugmyndir og hjálpa til við að breyta tækifærum í raunveruleg verkefni. Hjá Eimi starfar öflugur hópur fólks með mikla sérþekkingu og metnað. Ég hlakka til að byggja áfram á því góða starfi sem þegar hefur verið unnið, og vinna með starfsfólki, bakhjörlum og samstarfsaðilum Eims að því að skapa ný tækifæri og verðmæti á Norðurlandi“. Frá stjórn Eims: „Við erum ákaflega ánægð með ráðningu Hildar í starf framkvæmdastjóra Eims. Við erum sannfærð um að reynsla hennar, þekking og leiðtogahæfileikar muni nýtast félaginu vel. Með ráðningunni tekur við nýr kafli í starfsemi Eims, þar sem áfram verður lögð áhersla á að tengja saman fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og þekkingu sem mun styðja við verkefni sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á Norðurlandi.“ Starfið var auglýst síðastliðið vor og Mögnum ráðningaskrifstofa aðstoðaði Eim við ráðningarferlið.








