16. janúar 2026
Eimur árið 2025 - Nýárspistill framkvæmdastjóra

Eimur, félag um bætta nýtingu auðlinda á Norðurlandi, lagði sitt af mörkum á árinu 2025 til að ýta undir verðmætasköpun, aukna sjálfbærni og nýsköpun á Norðurlandi.
Árið 2025 var jafnframt fyrsta heila starfsár félagsins á Norðurlandi vestra og höfum við unnið markvisst að því að byggja upp verkefni og staðþekkingu til að styðja framþróun í landshlutanum.
Árið 2025 var jafnframt fyrsta heila starfsár félagsins á Norðurlandi vestra og höfum við unnið markvisst að því að byggja upp verkefni og staðþekkingu til að styðja framþróun í landshlutanum.
Eftirfarandi verkefni stóðu uppúr:
Grænir iðngarðar á Bakka
- Eimur leiddi samningaviðræður f.h. Akureyrarbæjar við gagnaver AtNorth um nýtingu glatvarma frá gagnaverinu við Hlíðarvelli á Akureyri.
- Afar fjölsótt ráðstefna um framtíðina á Bakka haldin 20. nóvember s.l. með ráðamönnum, fulltrúum þings og sveitarstjórna, atvinnulífsins og áhugasamra fyrirtækja um uppbyggingu á Bakka og almennings á Húsavík.
- Útkoma skýrslu verkefnastjóra Græns iðngarðs um þróun svæðisins á Bakka, áskoranir og niðurstöður.
Sniglarækt og kortlagning hjárennslis í hitaveitum
- Frábær kynning um sniglarækt og framreiðsla á Hönnunarþingi Hraðsins á Húsavíka, í september 2025.
- Afar vel sótt námskeiðaröð um sniglarækt með Peter Monaghan, sem við stóðum fyrir á Norðurlandi vestra og eystra haustið 2025.
- Samstarf við Mirru Payson SIT nema, Norðurorku, Skagafjarðarveitur um kortlagningu á hjárennsli hitaveitna á Norðurlandi
RECET
- Vefþing í apríl sl. um orkuskipti smábáta í sjávarútvegi haldið með Vestfjarðastofu
- Alþjóðleg ráðstefna haldin í Hofi í byrjun maí um áskoranir orkuskipta í dreifðum byggðum haldin með Nordic Energy Research, Umhverfis- og orkustofnun og Íslenskri Nýorku
- Samstarf við SIT nema Inbal Armony, sem kom saman mælaborði um olíusölu eftir landshlutum birt, byggða á greiningu Eims og Eflu á olíusölu eftir landsvæðum á árunum 2010-2020
- Þróaður aðgerðabanki í orkuskiptum og loftslagsmálum fyrir sveitarfélög byggðan á reynslu Eims, SSNE og Vestfjarðastofu af vinnustofum um orkuskipti og loftslagsmál.
- Stofnun orkusamfélags Kelduhverfis.
ICEWATER
- Samningur við Iðnver um leigu á færanlegu hreinsivirki fyrir fráveituvatn
- Unnið hörðum höndum að hönnun færanlegs hreinsivirkis fyrir fráveituvatn
- Samkomulag við Kjarnafæði/Norðlenska um uppsetningu á færanlegu hreinsivirki fyrir fráveituvatn við sláturhús þeirra á Húsavík.
Metanver á stórum og smáum skala
- Unnum rekstrar- og fjármögnunarlíkan fyrir metanver, með mögulega staðsetningu á Dysnesi við Eyjafjörð og kynntum fyrir helsta úrgang.
- Hófum virkt samtal við Akureyrarbæ sem einn helsta úrgangshafa svæðisins um mikilvægi þessarar uppsetningar.
- Fjölsótt ráðstefna haldin með kollegum okkar í Orkídeu á Hótel Selfossi í júní s.l. um lífgas og áburðarmál.
- Við höfum rætt við marga kúabændur um þau fjölbreyttu tækifæri til aukinnar rekstarhagkvæmni sem felast í kúamykju, bæði með því að lækka áburðar- og eldsneytiskostnað í gegnum metanvinnslu.
Nýting hauggass í Stekkjarvík
- Unnum mat á leiðum til að nýtingar hauggass frá Stekkjarvík í samstarfi við Norðurá bs. sem rekur urðunarstaðinn í Stekkjarvík, þangað sem mest af okkar heimilissorpi fer til urðunar.
Eimur þakkar sínum fjölmörgu samstarfsaðilum fyrir gjöfult ár og hlakkar til að takast á við 2026!
- Ottó Elíasson, framkvæmdastjóri Eims
Deila frétt

Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims og hefur störf 1. október næstkomandi. Hildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd. Hildur er með M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði (Management Engineering) frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU), m.a. með áherslu á nýsköpun og stjórnun, og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Eims. Ég sé gríðarleg tækifæri á Norðurlandi til að skapa ný verðmæti með því að nýta betur þær auðlindir, þekkingu og kraft sem þegar er til staðar á svæðinu. Eimur gegnir mikilvægu hlutverki við að leiða saman fólk, þekkingu og hugmyndir og hjálpa til við að breyta tækifærum í raunveruleg verkefni. Hjá Eimi starfar öflugur hópur fólks með mikla sérþekkingu og metnað. Ég hlakka til að byggja áfram á því góða starfi sem þegar hefur verið unnið, og vinna með starfsfólki, bakhjörlum og samstarfsaðilum Eims að því að skapa ný tækifæri og verðmæti á Norðurlandi“. Frá stjórn Eims: „Við erum ákaflega ánægð með ráðningu Hildar í starf framkvæmdastjóra Eims. Við erum sannfærð um að reynsla hennar, þekking og leiðtogahæfileikar muni nýtast félaginu vel. Með ráðningunni tekur við nýr kafli í starfsemi Eims, þar sem áfram verður lögð áhersla á að tengja saman fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og þekkingu sem mun styðja við verkefni sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á Norðurlandi.“ Starfið var auglýst síðastliðið vor og Mögnum ráðningaskrifstofa aðstoðaði Eim við ráðningarferlið.








