13. janúar 2026
Eimur hlýtur tvo styrki vegna verkefnis um sniglarækt

Eimur hefur hlotið tvo styrki að upphæð 500 þúsund krónur hvorn, annars vegar frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra og hins vegar frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra, til áframhaldandi þróunar sniglaræktarverkefnisins, en næsti áfangi þess er námsferð til Írlands.
Verkefnið miðar að því að þróa sniglarækt sem vistvæna og sjálfbæra hliðarbúgrein í íslenskum landbúnaði, með sérstakri áherslu á nýtingu glatvarma og lífrænna hliðarstrauma sem annars fara til spillis. Markmiðið er að byggja upp þekkingu, meta fýsileika ræktunar við íslenskar aðstæður og skapa ný tækifæri til verðmætasköpunar í dreifðum byggðum.
Styrkirnir styðja við næsta áfanga verkefnisins sem felur meðal annars í sér staðnám á Írlandi, þar sem íslenskir bændur, ráðgjafar og verkefnisstjóri munu kynnast starfandi sniglabúum og hagnýtum aðferðum í sniglarækt. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins og erlenda sérfræðinga og fellur vel að áherslum sóknaráætlana landshlutanna um nýsköpun, sjálfbærni og fjölbreyttara atvinnulíf.
Jafnframt hlaut Ísponica styrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra til verkefnisins HringrásHús: Innovating Food Systems, þar sem sniglarækt er skoðuð sem hluti af hringrásarlausnum í matvælaframleiðslu. Í því verkefni er meðal annars unnið með Inis Escargot á Írlandi, sem einnig er samstarfsaðili Eims í sniglaræktarverkefninu og viðkomustaður námsferðarinnar. Verkefnin styðja þannig hvort annað með miðlun þekkingar og þróun sjálfbærra lausna fyrir jákvæða byggðaþróun.
Eimur þakkar Uppbyggingarsjóðum Norðurlands vestra og eystra fyrir stuðninginn.