17. febrúar 2026

Nýr aðgerðabanki styður sveitarfélög í loftslagsaðgerðum

Hagnýtt verkfæri fyrir markvissa aðgerðaáætlun

Aðgerðabanki RECET er hagnýtt verkfæri sniðið að þörfum sveitarfélaga á Íslandi við gerð aðgerðaáætlana í orkuskiptum og loftslagsmálum. Bankinn er safn aðgerða sem nýtast sem grunnur að heildstæðum aðgerðaáætlunum í loftslagsáætlunum með alls 49 aðgerðum á sviði orkuskipta, orkunýtni, breyttra ferðavenja, fræðslu og aukinnar sjálfbærni í rekstri sveitarfélaga.


Markmið aðgerðabankans er að auðvelda sveitarfélögum að uppfylla lögbundna skyldu sína um gerð aðgerðaáætlana í loftslagsmálum, með skýrri framsetningu og tillögum að útfærslum á einstökum aðgerðum.


Í aðgerðabankanum er hver aðgerð sett fram með lýsingu á markmiði, hugmyndum að framkvæmd, tillögu að ábyrgðaraðila og flokkun innan stjórnsýslu sveitarfélags. Einnig er leitast við að tengja aðgerðirnar við aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum (co2.is), en mjög hefur skort á samfellu milli markmiða ríkisins og sveitarfélaga í loftslagsmálum.


Aðgerðabankinn er ekki tæmandi, en spannar þó drjúgt svið. Aðgerðirnar eru líka mis flókanar í innleiðingu, en sumar er hægt að innleiða með mjög einföldum hætti í stjórnsýslunni, en aðrar krefjast samstarfs fleiri aðila og eru dýrari í framkvæmd.


Unnið í samstarfi við sveitarfélögin

Aðgerðabankinn var unninn af Eimi, SSNE og Vestfjarðastofu í kjölfar vinnustofa sem haldnar voru með fulltrúum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og Vestfjörðum árin 2024 og 2025. Aðgerðirnar byggja því með beinum hætti á þörfum og reynslu starfsfólks og stjórnenda sveitarfélaga á landsbyggðinni. Þessi vinna er hluti af RECET-verkefninu (Rural Europe for the Clean Energy Transition) sem styður orkuskipti í dreifðum byggðum, og styrkt er af LIFE styrktaráætlun Evrópusambandsins.


Aðgerðabankann er bæði hægt að skoða beint á vefnum eða hlaða niður á Excel-formi, á íslensku og ensku, sem auðveldar sveitarfélögum að aðlaga efnið að eigin vinnslu og innleiðingu.


Aðgerðabankann má nálgast hér: www.eimur.is/adgerdabanki, og er hann er öllum opinn og frjáls til afnota.


Ef þið nýtið bankann í eigin vinnu viljum við gjarnan heyra af því, og endilega hafa samband við ottoel@eimur.is.


Deila frétt

28. september 2026
Orka var rauður þráður á Hönnunarþingi sem fór fram á Húsavík um helgina. Eimur tók þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem orka, nýsköpun, auðlindanýting og sjálfbærni voru skoðuð frá ólíkum sjónarhornum.
31. ágúst 2026
Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims og hefur störf 1. október næstkomandi. Hildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd. Hildur er með M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði (Management Engineering) frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU), m.a. með áherslu á nýsköpun og stjórnun, og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Eims. Ég sé gríðarleg tækifæri á Norðurlandi til að skapa ný verðmæti með því að nýta betur þær auðlindir, þekkingu og kraft sem þegar er til staðar á svæðinu. Eimur gegnir mikilvægu hlutverki við að leiða saman fólk, þekkingu og hugmyndir og hjálpa til við að breyta tækifærum í raunveruleg verkefni. Hjá Eimi starfar öflugur hópur fólks með mikla sérþekkingu og metnað. Ég hlakka til að byggja áfram á því góða starfi sem þegar hefur verið unnið, og vinna með starfsfólki, bakhjörlum og samstarfsaðilum Eims að því að skapa ný tækifæri og verðmæti á Norðurlandi“. Frá stjórn Eims: „Við erum ákaflega ánægð með ráðningu Hildar í starf framkvæmdastjóra Eims. Við erum sannfærð um að reynsla hennar, þekking og leiðtogahæfileikar muni nýtast félaginu vel. Með ráðningunni tekur við nýr kafli í starfsemi Eims, þar sem áfram verður lögð áhersla á að tengja saman fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og þekkingu sem mun styðja við verkefni sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á Norðurlandi.“ Starfið var auglýst síðastliðið vor og Mögnum ráðningaskrifstofa aðstoðaði Eim við ráðningarferlið.
26. ágúst 2026
Hlutverk dreifbýlissvæða í orkuskiptum og grænni umbreytingu Evrópu