5. febrúar 2026
Guðrún Huld ráðin til Eims

Brátt gengur til liðs við okkur Guðrún Huld Gunnarsdóttir en hún tekur við starfi verkefnastjóra markaðs- og kynningarmála hjá Eimi.
Guðrún er með BS-gráðu í viðskiptafræði með áherslu á markaðssamskipti og samfélagsmiðla og stundar nú meistaranám í markaðsfræði. Hún er jafnframt með D-vottun í verkefnastjórnun. Menntun hennar og starfsferill endurspegla sterkan grunn í stefnumótun, markaðshugsun, skipulagi og skapandi útfærslu.
Síðast starfaði Guðrún hjá Nova sem rekstrarstjóri á Akureyri, þar sem hún bar ábyrgð á daglegum rekstri, teymisstjórnun og þjónustuupplifun viðskiptavina. Hún hefur yfir 25 ára reynslu af viðburðarhaldi og hefur stýrt bæjarhátíðinni Mærudagar á Húsavík frá árinu 2018.
Auk þess á og rekur Guðrún listdansskólann Steps Dancecenter, þar sem hún hefur byggt upp faglegt og skapandi starf. Þar hefur hún öðlast víðtæka reynslu í vörumerkjauppbyggingu, markaðssetningu, rekstri og verkefnastjórnun í skapandi umhverfi.
Með bakgrunn í grafískri hönnun, markaðsfræðum og rekstri kemur Guðrún með skýra og heildstæða nálgun á markaðs- og kynningamál, þar sem áhersla er lögð á samræmda ímynd, markvissa verkefnastjórnun og skapandi lausnir sem styðja við markmið og stefnu Eims.
"Það er gríðarlega mikilvægt fyrir félag eins og Eim, sem er í eigu opinberra aðila, að miðla starfi sínu með skýrum og lifandi hætti. Kolfinna María hefur leikið lykilhlutverk í að efla sýnileika félagsins undanfarin ár og sinnt því starfi af einurð og list. Við því erum afskaplega heppin að fá Guðrúnu Huld til að taka við keflinu sem hefur til að bera menntun og mikla reynslu á þessu sviði", segir Ottó Elíasson framkvæmdastjóri Eims.
Guðrún mun hefja störf 19. febrúar næstkomandi og bjóðum við hana velkomna í hópinn. Jafnframt viljum við þakka Kolfinnu fyrir frábært samstarf síðustu fjögur ár og óska henni góðs gengis á nýjum vettvangi.

Starfið var auglýst þann 5. desember sl. og bárust 21 umsóknir. Ráðningarferlið var unnið í samstarfi við ráðningafyrirtækið Mögnum.
Deila frétt

Vilt þú leiða alþjóðlegt samstarfsverkefni og taka þátt í að móta framtíð sjálfbærrar orku og samfélagsþróunar í Evrópu? Eimur leitar að öflugum verkefnastjóra til að leiða nýtt og metnaðarfullt Evrópuverkefni, DEPLOY-PED, sem félagið stýrir í samstarfi við 19 aðila í 10 löndum. Um er að ræða einstakt tækifæri til að leiða umfangsmikið alþjóðlegt þróunarverkefni sem hefur það að markmiði að styðja samfélög við að nýta eigin auðlindir betur, auka sjálfbærni og draga úr háð þeirra á innfluttum orkugjöfum. Verkefnið byggir á hugmyndafræði um orkujákvæð héruð (e. Positive Energy Districts), þar sem samfélög stefna að því að framleiða meiri endurnýjanlega orku en þau nota yfir árið. Verkefnið er til fjögurra ára, frá 1. janúar 2027 til 31. desember 2030, og felur í sér samstarf við sérfræðinga og stofnanir víðs vegar um Evrópu. Fjölbreytt og krefjandi starf Verkefnastjóri ber ábyrgð á daglegri samræmingu og utanumhaldi verkefnisins í nánu samstarfi við alþjóðlega samstarfsaðila. Meðal verkefna eru samskipti og samvinna við samstarfsaðila, eftirfylgni með verk- og kostnaðaráætlunum, skipulagning funda og viðburða, upplýsingamiðlun og gerð framvinduskýrslna. Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun og reynslu af verkefnastjórnun, sem býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og góðri skipulagshæfni. Reynsla af alþjóðlegu samstarfi og Evrópuverkefnum er kostur, sem og áhugi á orku- og sjálfbærnimálum. Starfsstöð er á Akureyri, en einnig kemur til greina að verkefnastjóri starfi frá öðrum stað á Norðurlandi. Tækifæri til að hafa áhrif Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni, alþjóðlegt tengslanet og tækifæri til að vinna að lausnum sem stuðla að sjálfbærari framtíð. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Eim og samstarfsaðila þess, þar sem nýjar hugmyndir, þekking og reynsla verða nýttar til að skapa raunveruleg verðmæti fyrir samfélög. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér starfið og sækja um. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Arna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Eims, í gegnum netfangið hildur@eimur.is .