30. janúar 2026

Samvinna um hreinsun fráveitu frá sláturhúsi Kjarnafæðis Norðlenska á Húsavík

Tækifæri til hringrásar og bættrar nýtingar auðlinda

Eimur, Kjarnafæði Norðlenska og Orkuveita Húsavíkur ætla að vinna saman að uppsetningu og tímabundnum rekstri færanlegs hreinsivirkis við sláturhús Kjarnafæðis Norðlenska á Húsavík. Samvinna sem þessi er mikilvægur þáttur í því að gera verkefnið að veruleika og hraða innleiðingu lausna fyrir hreinsun iðnaðarfráveitu á Íslandi.


Verkefnið er hluti af LIFE-ICEWATER , sem er stýrt af Umhverfis- og Orkustofnun, og hefur það að markmiði að sýna í verki hvernig bæta megi meðhöndlun fráveituvatns frá matvælavinnslu og draga úr álagi á fráveitukerfi og viðtaka.


Markmið verkefnisins er þó ekki einungis að bæta hreinsun fráveituvatns, heldur einnig að fanga verðmæt efni sem hingað til hafa farið til spillis með fráveitunni og oft endað út í sjó. Með hreinsivirkinu verður lífrænt efni, svo sem fita og prótein, skilin frá vatninu og tekin til frekari greiningar og nýtingar.


„Kjarnafæði Norðlenska leggur mikla áherslu á ábyrga nýtingu auðlinda og að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar. Þetta samstarf við Eim og Orkuveitu Húsavíkur er mikilvægt skref í þá átt, þar sem við getum bæði bætt hreinsun fráveitu frá sláturhúsinu og skapað tækifæri til hringrásar og verðmætasköpunar. Verkefnið sýnir vel hvernig samvinna ólíkra aðila getur flýtt innleiðingu nýrra lausna og stuðlað að sjálfbærari matvælaframleiðslu á Íslandi", segir Ágúst Torfi forstjóri Kjarnafæði Norðlenska.


Fita frá vinnslunni verður síuð frá og mun fyrirtækið Gefn taka á móti henni og vinna áfram í lífdísil, sem styrkir tengsl verkefnisins við innlend orkuskipti og sjálfbæra eldsneytisframleiðslu. Próteinríkt efni úr fráveitunni gæti jafnframt skapað grundvöll fyrir nýja nýtingarmöguleika, til dæmis í áburð, fóður eða aðrar lausnir. Verkefnið opnar þannig á tækifæri til nýsköpunar og verðmætasköpunar með hringrásarhugsun að leiðarljósi, þar sem úrgangur verður að auðlind.


Reynsla og gögn sem safnast í verkefninu munu nýtast við áframhaldandi þróun lausna fyrir hreinsun iðnaðarfráveitu á Íslandi og styðja við innleiðingu vatnaáætlunar og sjálfbærari rekstur matvælafyrirtækja. 


Ljósmynd með frétt - Markaðsstofa Norðurlands


Deila frétt

28. september 2026
Orka var rauður þráður á Hönnunarþingi sem fór fram á Húsavík um helgina. Eimur tók þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem orka, nýsköpun, auðlindanýting og sjálfbærni voru skoðuð frá ólíkum sjónarhornum.
7. september 2026
Tíunda Norræna lífgasráðstefnan (e. Nordic Biogas Conference) var haldin í Reykjavík dagana 2. til 4. september, á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár í samstarfi helstu aðila í lífgasiðnaði Norðurlandanna fimm, og ráðstefnustaðurinn færist milli landanna á ári hverju, frá því hún var fyrst haldin í Helsinki árið 2006. Þetta var í annað sinn sem hún er haldin hér á landi, en Ísland hýsti hana síðast árið 2014. Um tvö hundruð þátttakendur sóttu ráðstefnuna, og þar á meðal voru sveitarfélög, orkufyrirtæki, tæknibirgjar, fjárfestar, ráðgjafar, vísindafólk og fulltrúar landbúnaðarins. Sigurður Líndal Þórisson, sviðsstjóri sjálfbærra viðskipta hjá Eimi , flutti erindi í málstofu um landbúnað ásamt Sveini Aðalsteinssyni, framkvæmdastjóra Orkídeu. Útgangspunktur erindisins var sá að við fyrstu sýn virðist Ísland vera síðasta landið sem þarf á lífgasi að halda, enda húshitun og raforka að mestu úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Samgöngur, landbúnaður og orkukostnaður í dreifbýli segja hins vegar aðra sögu. Í erindinu var farið yfir tvær ólíkar leiðir að sama marki: uppbyggingu á einum stað við Dysnes í Eyjafirði og dreifða nálgun í Húnaþingi vestra, þar sem Orkusamfélag Steingerðar byggir á samstarfi 34 kúabænda . Sigurður fór yfir rekstrarforsendurnar eins og þær blasa við í dag, þar sem tekjurnar liggja að minna leyti í sölu á metani, heldur frekar í hliðgjöldum fyrir lífrænan úrgang og í meltunni sem til verður við gerjunina og nýtist sem áburður. Hindranirnar eru fremur skipulagslegar en tæknilegar, því aðilar máls bíða hver eftir öðrum meðan forystu og stefnumótun ríkisins skortir. Erindinu lauk á endurtekningu sameiginlegrar áskorunar Eims og Orkídeu til tveggja ráðuneyta frá því í maí, um að ráðist verði í tvö tilraunaverkefni í landbúnaðartengdri metan vinnslu, bæði fyrir norðan og sunnan. Þátttaka í ráðstefnum af þessu tagi skiptir miklu máli fyrir verkefni sem eru enn í mótun. Þar fæst samanburður við þau lönd sem eru komin lengra, tengsl myndast við tæknibirgja og mögulega samstarfsaðila í umsóknum, og ekki síst er þetta tækifæri til að koma íslenskum aðstæðum á framfæri. Þær eru sérstakar og þær rata ekki inn í norræna umræðu nema einhver mæti og segi frá þeim.