20. mars 2026

Vefþing um orkuskipti í landbúnaði

Hvaða tækifæri felast í orkuskiptum í landbúnaði?

Eimur og Orkidea í gegnum Evrópuverkefnin RECET og Value4Farm standa fyrir vefþingi um orkuskipti í landbúnaði þann 9. apríl næstkomandi, þar sem sjónum verður beint að stöðu og framtíð orkuskipta í einni af lykilgreinum íslensks samfélags og atvinnulífs. Vefþingið hefst kl. 13 og klárast kl. 15:15. 


Markmið þingsins er að varpa ljósi á þau tækifæri sem felast í auknu orkusjálfstæði greinarinnar. Sérstök áhersla verður lögð á raunhæfar lausnir og þróun sem þegar er hafin, bæði hér á landi og erlendis. 

Á þinginu verður fjallað um þær lykilspurningar sem snerta orkuskipti í landbúnaði; hvaða hvatar og regluverk muni hafa áhrif á umbreytinguna og hvaða tæknilausnir standa til boða. Meðal þeirra lausna sem verða til umfjöllunar eru rafmagns- og metanvæðing landbúnaðartækja, sem og framleiðsla og nýting metans sem orkugjafa. 


Þingið mun jafnframt draga fram alþjóðlega reynslu og dæmi um hvernig orkuskipti í landbúnaði eru að þróast annars staðar, ásamt því að varpa ljósi á íslenskar aðstæður og tækifæri. Sérfræðingar og fulltrúar úr atvinnulífi og rannsóknum munu miðla þekkingu sinni og reynslu, með það að markmiði að styðja við upplýsta umræðu. 

Í allri umræðu verður lögð áhersla á að nálgast málefnið af raunsæi og skilningi á rekstrarumhverfi bænda í dag. Orkuskipti eru ekki aðeins tæknilegt viðfangsefni heldur einnig samfélagslegt verkefni sem snýr að fæðuöryggi, samkeppnishæfni og sjálfbærni til framtíðar. 


Vefþingið sameinar erlenda og innlenda fyrirlesara og verður að hluta til á ensku, til að tryggja að bæði íslensk og alþjóðleg reynsla komi fram.


Vefþingið er opið öllum áhugasömum að kostnaðarlausu og nánari dagskrá og skráning verður kynnt síðar. 


Smelltu hér til að skrá þig








Deila frétt

28. september 2026
Orka var rauður þráður á Hönnunarþingi sem fór fram á Húsavík um helgina. Eimur tók þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem orka, nýsköpun, auðlindanýting og sjálfbærni voru skoðuð frá ólíkum sjónarhornum.
7. september 2026
Tíunda Norræna lífgasráðstefnan (e. Nordic Biogas Conference) var haldin í Reykjavík dagana 2. til 4. september, á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár í samstarfi helstu aðila í lífgasiðnaði Norðurlandanna fimm, og ráðstefnustaðurinn færist milli landanna á ári hverju, frá því hún var fyrst haldin í Helsinki árið 2006. Þetta var í annað sinn sem hún er haldin hér á landi, en Ísland hýsti hana síðast árið 2014. Um tvö hundruð þátttakendur sóttu ráðstefnuna, og þar á meðal voru sveitarfélög, orkufyrirtæki, tæknibirgjar, fjárfestar, ráðgjafar, vísindafólk og fulltrúar landbúnaðarins. Sigurður Líndal Þórisson, sviðsstjóri sjálfbærra viðskipta hjá Eimi , flutti erindi í málstofu um landbúnað ásamt Sveini Aðalsteinssyni, framkvæmdastjóra Orkídeu. Útgangspunktur erindisins var sá að við fyrstu sýn virðist Ísland vera síðasta landið sem þarf á lífgasi að halda, enda húshitun og raforka að mestu úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Samgöngur, landbúnaður og orkukostnaður í dreifbýli segja hins vegar aðra sögu. Í erindinu var farið yfir tvær ólíkar leiðir að sama marki: uppbyggingu á einum stað við Dysnes í Eyjafirði og dreifða nálgun í Húnaþingi vestra, þar sem Orkusamfélag Steingerðar byggir á samstarfi 34 kúabænda . Sigurður fór yfir rekstrarforsendurnar eins og þær blasa við í dag, þar sem tekjurnar liggja að minna leyti í sölu á metani, heldur frekar í hliðgjöldum fyrir lífrænan úrgang og í meltunni sem til verður við gerjunina og nýtist sem áburður. Hindranirnar eru fremur skipulagslegar en tæknilegar, því aðilar máls bíða hver eftir öðrum meðan forystu og stefnumótun ríkisins skortir. Erindinu lauk á endurtekningu sameiginlegrar áskorunar Eims og Orkídeu til tveggja ráðuneyta frá því í maí, um að ráðist verði í tvö tilraunaverkefni í landbúnaðartengdri metan vinnslu, bæði fyrir norðan og sunnan. Þátttaka í ráðstefnum af þessu tagi skiptir miklu máli fyrir verkefni sem eru enn í mótun. Þar fæst samanburður við þau lönd sem eru komin lengra, tengsl myndast við tæknibirgja og mögulega samstarfsaðila í umsóknum, og ekki síst er þetta tækifæri til að koma íslenskum aðstæðum á framfæri. Þær eru sérstakar og þær rata ekki inn í norræna umræðu nema einhver mæti og segi frá þeim.