26. ágúst 2026

Hlutverk sveitarfélaga í grænni umbreytingu til umræðu á lokamálþingi RECET verkefnisins

Hlutverk dreifbýlissvæða í orkuskiptum og grænni umbreytingu Evrópu

Mánudaginn 22. september verður haldið rafrænt alþjóðlegt málþing á vegum RECET-verkefnisins, þar sem fjallað verður um mikilvægt hlutverk sveitarfélaga í orkuskiptum og grænni umbreytingu í Evrópu.

Málþingið er lokaviðburður verkefnisins og fer fram á ensku á netinu.


Dreifbýlissvæði gegna lykilhlutverki við að ná loftslagsmarkmiðum Evrópu fyrir árið 2030 og markmiðinu um kolefnishlutleysi árið 2050. Stór hluti endurnýjanlegrar orkuframleiðslu á sér stað í dreifbýli og því eru sveitarfélög í lykilstöðu þegar kemur að skipulagsmálum, leyfisveitingum og staðbundinni þróun. Á sama tíma standa mörg smærri sveitarfélög frammi fyrir áskorunum vegna takmarkaðs mannafla, þröngs fjárhagsramma og takmarkaðs aðgengis að sérfræðiþekkingu.


Um málþingið

Á málþinginu verður leitast við að svara spurningum á borð við:

  • Hvaða hlutverki eiga sveitarfélög að gegna í grænni umbreytingu?
  • Eru sveitarfélög og stjórnsýsla dreifbýlissvæða í stakk búin til að takast á við verkefnið?
  • Hvernig má efla samráð og þátttöku sveitarfélaga til að hraða loftslagsaðgerðum?


Sérfræðingar og framkvæmdaraðilar víðs vegar að úr Evrópu munu deila reynslu sinni og miðla af lærdómi frá landsbyggðarsvæðum þar sem unnið hefur verið að orkuskiptum og sjálfbærri þróun.

Á meðal þeirra sem halda erindi er Ottó Elíasson, framkvæmdastjóri Eims, sem fjallar um stuðning við sveitarfélög í dreifbýli við gerð loftslags- og orkuáætlana. Hann mun jafnframt deila reynslu Eims af samstarfi við sveitarfélög að orkuskiptum og grænni umbreytingu.


Helstu umræðuefni

Meðal þess sem verður til umfjöllunar eru:

  • Hlutverk sveitarfélaga í dreifbýli við uppbyggingu endurnýjanlegrar orku.
  • Áskoranir smærri sveitarfélaga hvað varðar getu, mannafla og sérþekkingu.
  • Reynslan af starfi RECET-verkefnisins á Íslandi, í Svíþjóð, á Spáni og í Slóveníu.
  • Hagnýtar leiðir til að efla þátttöku og samráð við íbúa og hagsmunaaðila.
  • Mikilvægi trausts, einfaldra lausna og staðbundinnar ábyrgðar í orkuskiptum.



Um RECET-verkefnið

RECET er samstarfsverkefni sem er styrkt af LIFE-áætlun Evrópusambandsins. Markmið verkefnisins er að styðja fimm evrópsk svæði við að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og efla getu sveitarfélaga og samfélaga til að stuðla að hreinum orkuskiptum með staðbundnum lausnum.

Eimur hefur tekið þátt í verkefninu ásamt innlendum og erlendum samstarfsaðilum, með það að markmiði að styrkja getu sveitarfélaga og samfélaga til að taka virkan þátt í orkuskiptum og grænni umbreytingu.


Fyrir hverja?

Málþingið hentar sérstaklega:

  • Kjörnum fulltrúum og öðrum stefnumótendum á sveitarstjórnar- og svæðisstigi.
  • Skipulagsfulltrúum og starfsfólki sem vinnur að loftslags- og orkumálum.
  • Fagfólki á sviði byggðaþróunar og þróunar dreifbýlissvæða.
  • Rannsakendum og öðrum sem starfa að málefnum endurnýjanlegrar orku og landnýtingar.


Skráning

Þátttaka er öllum opin og án endurgjalds, en nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram.


Skráning fer fram á viðburðarsíðu Nordregio:

 https://nordregio.org/events/supporting-local-authorities-in-europes-green-transition/


Nánari upplýsingar um RECET-verkefnið má finna á heimasíðu þess:

 https://recet.project.eu/


Hér má sjá dagskrá málþingsins


Deila frétt

28. september 2026
Orka var rauður þráður á Hönnunarþingi sem fór fram á Húsavík um helgina. Eimur tók þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem orka, nýsköpun, auðlindanýting og sjálfbærni voru skoðuð frá ólíkum sjónarhornum.
7. september 2026
Tíunda Norræna lífgasráðstefnan (e. Nordic Biogas Conference) var haldin í Reykjavík dagana 2. til 4. september, á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár í samstarfi helstu aðila í lífgasiðnaði Norðurlandanna fimm, og ráðstefnustaðurinn færist milli landanna á ári hverju, frá því hún var fyrst haldin í Helsinki árið 2006. Þetta var í annað sinn sem hún er haldin hér á landi, en Ísland hýsti hana síðast árið 2014. Um tvö hundruð þátttakendur sóttu ráðstefnuna, og þar á meðal voru sveitarfélög, orkufyrirtæki, tæknibirgjar, fjárfestar, ráðgjafar, vísindafólk og fulltrúar landbúnaðarins. Sigurður Líndal Þórisson, sviðsstjóri sjálfbærra viðskipta hjá Eimi , flutti erindi í málstofu um landbúnað ásamt Sveini Aðalsteinssyni, framkvæmdastjóra Orkídeu. Útgangspunktur erindisins var sá að við fyrstu sýn virðist Ísland vera síðasta landið sem þarf á lífgasi að halda, enda húshitun og raforka að mestu úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Samgöngur, landbúnaður og orkukostnaður í dreifbýli segja hins vegar aðra sögu. Í erindinu var farið yfir tvær ólíkar leiðir að sama marki: uppbyggingu á einum stað við Dysnes í Eyjafirði og dreifða nálgun í Húnaþingi vestra, þar sem Orkusamfélag Steingerðar byggir á samstarfi 34 kúabænda . Sigurður fór yfir rekstrarforsendurnar eins og þær blasa við í dag, þar sem tekjurnar liggja að minna leyti í sölu á metani, heldur frekar í hliðgjöldum fyrir lífrænan úrgang og í meltunni sem til verður við gerjunina og nýtist sem áburður. Hindranirnar eru fremur skipulagslegar en tæknilegar, því aðilar máls bíða hver eftir öðrum meðan forystu og stefnumótun ríkisins skortir. Erindinu lauk á endurtekningu sameiginlegrar áskorunar Eims og Orkídeu til tveggja ráðuneyta frá því í maí, um að ráðist verði í tvö tilraunaverkefni í landbúnaðartengdri metan vinnslu, bæði fyrir norðan og sunnan. Þátttaka í ráðstefnum af þessu tagi skiptir miklu máli fyrir verkefni sem eru enn í mótun. Þar fæst samanburður við þau lönd sem eru komin lengra, tengsl myndast við tæknibirgja og mögulega samstarfsaðila í umsóknum, og ekki síst er þetta tækifæri til að koma íslenskum aðstæðum á framfæri. Þær eru sérstakar og þær rata ekki inn í norræna umræðu nema einhver mæti og segi frá þeim.
31. ágúst 2026
Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims og hefur störf 1. október næstkomandi. Hildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd. Hildur er með M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði (Management Engineering) frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU), m.a. með áherslu á nýsköpun og stjórnun, og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Eims. Ég sé gríðarleg tækifæri á Norðurlandi til að skapa ný verðmæti með því að nýta betur þær auðlindir, þekkingu og kraft sem þegar er til staðar á svæðinu. Eimur gegnir mikilvægu hlutverki við að leiða saman fólk, þekkingu og hugmyndir og hjálpa til við að breyta tækifærum í raunveruleg verkefni. Hjá Eimi starfar öflugur hópur fólks með mikla sérþekkingu og metnað. Ég hlakka til að byggja áfram á því góða starfi sem þegar hefur verið unnið, og vinna með starfsfólki, bakhjörlum og samstarfsaðilum Eims að því að skapa ný tækifæri og verðmæti á Norðurlandi“. Frá stjórn Eims: „Við erum ákaflega ánægð með ráðningu Hildar í starf framkvæmdastjóra Eims. Við erum sannfærð um að reynsla hennar, þekking og leiðtogahæfileikar muni nýtast félaginu vel. Með ráðningunni tekur við nýr kafli í starfsemi Eims, þar sem áfram verður lögð áhersla á að tengja saman fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og þekkingu sem mun styðja við verkefni sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á Norðurlandi.“ Starfið var auglýst síðastliðið vor og Mögnum ráðningaskrifstofa aðstoðaði Eim við ráðningarferlið.