31. ágúst 2023

Upptaka frá málstofu um orkuskipti og sveitarfélög

Íslensk nýorka, Eimur, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra og Vestfjarðastofa stóðu fyrir sameiginlegum viðburði, þriðjudaginn  29. ágúst sl. Viðburðurinn var í beinu streymi frá Hótel KEA á Akureyri og bar yfirskriftina:  Orkuskipti og sveitarfélög.  Viðburðurinn markaði upphafið að þriggja ára verkefni sem miðar að því að efla getu sveitarfélaga og samfélaga í dreifðum byggðum Evrópu, til að takast á við orkuskipti.

 

Dagskrá:
📢  Hilmar Gunnlaugsson , Sókn Lögmannsstofa (min 03:00)
- Tekjumöguleikar sveitarfélaga af orkumannvirkjum

📢  Alexis ChatzimpirosSamsø Energiakademi  (min 34:10)
- Reynsla af uppbyggingu vindorku og öðrum orkugjöfum á Samsö

📢  Anna Margret Korneliusdottir , Íslensk Nýorka (min 1:01:10)
- Rural Europe for the Clean Energy Transition (RECET verkefnið) - Styrkt af LIFE-áætlun ESB

Fundarstjóri var  Ottó Elíasson , rannsókna- og þróunarstjóri hjá Eimi


Deila frétt

Eftir Kolfinna María Níelsdóttir 10. apríl 2025
RECET verkefnið og Net Zero Islands Network standa fyrir þessum viðburði, þar sem sérfræðingar, stefnumótendur og hagsmunaaðilar koma saman til að ræða og stuðla að orkuskiptum á eyjum og í dreifðum byggðum. Ráðstefnan er einstakt tækifæri til að miðla þekkingu, skoða nýjar lausnir og efla tengslanet. Dagskráin samanstendur af framsöguerindum og umræðum sem miða að því að styðja við sjálfbæra þróun og grænna samfélag. Ókeypis er á ráðstefnuna sem fer einnig fram í streymi - skráning fer fram hér: https://www.recetproject.eu/events/akureyrienergyseminar Um RECET: RECET (Rural Europe for the Clean Energy Transition) er samstarfsverkefni fimm landa og tuga sveitarfélaga um alla Evrópu, með Ísland í fararbroddi. Verkefnið miðar að því að efla getu sveitarfélaga í dreifðum byggðum í Evrópu og atvinnulífsins til að takast á við orkuskipti og smíða orkuskiptaáætlanir fyrir svæðin. RECET er styrkt af LIFE styrktaráætlun Evrópusambandsins sem leggur áherslu á umhverfis- og loftslagsmál. Um Net Zero Islands Network: Net Zero Islands Network gegnir lykilhlutverki í þróun grænna og sjálfbærra orkulausna fyrir eyjar og afskekkt svæði. Markmið netsins er meðal annars að auðvelda miðlun þekkingar milli eyja og afskekktra svæða, skapa fleiri atvinnutækifæri og kanna möguleika á kolefnisneikvæðum lausnum. Norræna orkurannsóknarstofnunin (Nordic Energy Research) hefur umsjón með verkefninu. 
9. apríl 2025
Nýtt evrópskt samstarf um nýsköpun og þekkingarmiðlun
2. apríl 2025
Um 80 manns tóku þátt í fyrsta fundi í ICEWATER verkefninu, sem haldinn var dagana 24. og 25. mars 2025 í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur í Elliðaárdalnum. Fundurinn markaði upphaf þessa metnaðarfulla verkefnis, sem miðar að því að flýta fyrir og bæta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi.