8. desember 2025
Laust starf hjá Eimi

VERKEFNASTJÓRI MARKAÐS- OG KYNNINGARMÁLA
Eimur leitar að öflugum og hugmyndaríkum einstaklingi til að vinna að kynningarmálum, miðlun og viðburðahaldi á vegum félagsins. Viðkomandi kemur að fjölmörgum og krefjandi verkefnum og verður hluti af skemmtilegum vinnustað.
Verkefnastjóri vinnur náið með starfsfólki og samstarfsaðilum Eims.
Um tímabundið starf er að ræða, út árið 2026 með möguleika á framlengingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón markaðs- og kynningarmála fyrir Eim
- Efnissköpun og miðlun gegnum vef og samfélagsmiðla
- Markaðsgreiningar, stefnumótun og eftirfylgni
- Skipulag og framkvæmd viðburða
- Fjölbreytt samskipti við samstarfsaðila og aðra hagaðila
- Skrifstofustjórn
- Stuðningur við gerð bókhalds
- Vinna með teyminu að þróun nýrra verkefna á starfssvæði Eims
- Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum vinnustaðarins
- Menntunar og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af upplýsingamiðlun, markaðssetningu og verkefnastjórnun
- Góð þekking á vefumsjón, samfélagsmiðlum og stafrænni markaðssetningu
- Reynsla af greinarskrifum, gerð kynningarefnis og miðlunar
- Hæfni til að koma fram og halda kynningar er kostur
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
- Góð almenn tölvufærni og hæfni til að tileinka sér nýjungar
- Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
- Rík hæfni í samskiptum og samstarfi, vönduð og öguð vinnubrögð
Starfstöð verkefnastjóra er á Akureyri. Starfið krefst ferðalaga um starfssvæðið og býður upp á sveigjanlegan vinnutíma.
Eimur er samstarfsverkefni sem snýr að bættri nýtingu auðlinda á Norðurlandi með verðmætasköpun, sjálfbærni og nýsköpun að leiðarljósi. Að verkefninu standa Landsvirkjun, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE), Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV), Norðurorka og Orkuveita Húsavíkur.
Sótt er um starfið á www.mognum.is
Nánari upplýsingar veita Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is og Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is
Umsóknarfrestur er til 18. desember 2025
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Deila frétt

Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims og hefur störf 1. október næstkomandi. Hildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd. Hildur er með M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði (Management Engineering) frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU), m.a. með áherslu á nýsköpun og stjórnun, og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Eims. Ég sé gríðarleg tækifæri á Norðurlandi til að skapa ný verðmæti með því að nýta betur þær auðlindir, þekkingu og kraft sem þegar er til staðar á svæðinu. Eimur gegnir mikilvægu hlutverki við að leiða saman fólk, þekkingu og hugmyndir og hjálpa til við að breyta tækifærum í raunveruleg verkefni. Hjá Eimi starfar öflugur hópur fólks með mikla sérþekkingu og metnað. Ég hlakka til að byggja áfram á því góða starfi sem þegar hefur verið unnið, og vinna með starfsfólki, bakhjörlum og samstarfsaðilum Eims að því að skapa ný tækifæri og verðmæti á Norðurlandi“. Frá stjórn Eims: „Við erum ákaflega ánægð með ráðningu Hildar í starf framkvæmdastjóra Eims. Við erum sannfærð um að reynsla hennar, þekking og leiðtogahæfileikar muni nýtast félaginu vel. Með ráðningunni tekur við nýr kafli í starfsemi Eims, þar sem áfram verður lögð áhersla á að tengja saman fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og þekkingu sem mun styðja við verkefni sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á Norðurlandi.“ Starfið var auglýst síðastliðið vor og Mögnum ráðningaskrifstofa aðstoðaði Eim við ráðningarferlið.








