15. febrúar 2023
Frumkvöðlahádegið

Deila frétt

Vilt þú leiða alþjóðlegt samstarfsverkefni og taka þátt í að móta framtíð sjálfbærrar orku og samfélagsþróunar í Evrópu? Eimur leitar að öflugum verkefnastjóra til að leiða nýtt og metnaðarfullt Evrópuverkefni, DEPLOY-PED, sem félagið stýrir í samstarfi við 19 aðila í 10 löndum. Um er að ræða einstakt tækifæri til að leiða umfangsmikið alþjóðlegt þróunarverkefni sem hefur það að markmiði að styðja samfélög við að nýta eigin auðlindir betur, auka sjálfbærni og draga úr háð þeirra á innfluttum orkugjöfum. Verkefnið byggir á hugmyndafræði um orkujákvæð héruð (e. Positive Energy Districts), þar sem samfélög stefna að því að framleiða meiri endurnýjanlega orku en þau nota yfir árið. Verkefnið er til fjögurra ára, frá 1. janúar 2027 til 31. desember 2030, og felur í sér samstarf við sérfræðinga og stofnanir víðs vegar um Evrópu. Fjölbreytt og krefjandi starf Verkefnastjóri ber ábyrgð á daglegri samræmingu og utanumhaldi verkefnisins í nánu samstarfi við alþjóðlega samstarfsaðila. Meðal verkefna eru samskipti og samvinna við samstarfsaðila, eftirfylgni með verk- og kostnaðaráætlunum, skipulagning funda og viðburða, upplýsingamiðlun og gerð framvinduskýrslna. Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun og reynslu af verkefnastjórnun, sem býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og góðri skipulagshæfni. Reynsla af alþjóðlegu samstarfi og Evrópuverkefnum er kostur, sem og áhugi á orku- og sjálfbærnimálum. Starfsstöð er á Akureyri, en einnig kemur til greina að verkefnastjóri starfi frá öðrum stað á Norðurlandi. Tækifæri til að hafa áhrif Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni, alþjóðlegt tengslanet og tækifæri til að vinna að lausnum sem stuðla að sjálfbærari framtíð. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Eim og samstarfsaðila þess, þar sem nýjar hugmyndir, þekking og reynsla verða nýttar til að skapa raunveruleg verðmæti fyrir samfélög. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér starfið og sækja um. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Arna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Eims, í gegnum netfangið hildur@eimur.is .








