11. ágúst 2021

Norðanátt kynnir Vaxtarrými

Norðanátt kynnir Vaxtarrými fyrir frumkvöðla, ný fyrirtæki og nýsköpun innan rótgróinna fyrirtækja á Norðurlandi. Vaxtarrými er átta vikna viðskiptahraðall með fókus á sjálfbærni, mat, vatn og orku þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki og vaxa með vindinn í bakið.

Opnað verður fyrir umsóknir í hraðalinn 16. ágúst og lýkur umsóknarfresti 20. september. Í framhaldinu verða valin sex til átta teymi til þátttöku. Verkefnið er byggt upp að fyrirmynd viðskiptahraðla en þó sérhannað með þarfir þátttöku fyrirtækjanna í huga og hafa þau þannig áhrif á þá fræðslu sem stendur þeim til boða. Teymin hitta reynslumikla leiðbeinendur, frumkvöðla, fjárfesta og stjórnendur fyrirtækja á Norðurlandi og víða á ráðgjafafundum, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli. Vaxtarrými hefst 4. október og lýkur 26. nóvember og fer fram á netinu. Jafnframt hittast teymin fjórum sinnum meðan á verkefninu stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Norðurlandi. 

Leitað er eftir öflugum fyrirtækjum og verkefnum sem eru komin af hugmyndastigi og vilja nýta Norðanáttina til að vaxa. 

Samstarfsverkefnið Norðanátt er hreyfiafl sem miðar að því að skapa kraftmikið umhverfi á Norðurlandi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Norðanátt samanstendur af viðburðum sem styðja við frumkvöðla með hugmyndir á ólíkum stigum. Fyrsti viðburðurinn er Vaxtarrými sem fer fram í haust og miðar að því að efla þau fyrirtæki sem eru nú þegar komin af stað. Í byrjun næsta árs fer fram vinnusmiðja sem styður við bakið á frumkvöðlum á fyrstu stigum og verður hún auglýst í nóvember. Í framhaldinu verður haldið Stefnumót fjárfesta á Norðurlandi þar sem fjárfestar og frumkvöðlar koma saman og kynnast öflugri nýsköpun og fjárfestatækifærum á svæðinu. Að verkefninu Norðanátt koma Eimur, SSNV, SSNE, Nýsköpun í norðri og RATA. Hópurinn vinnur í anda nýrrar klasastefnu, þvert á stofnanir samfélagsins og hraðar framþróun og nýsköpun.


Deila frétt

6. nóvember 2026
Jane Stevens, sendiherra Bretlands á Íslandi, heimsótti Eim á nýrri aðalskrifstofu félagsins á Skiptagötu 9 á Akureyri. Í heimsókninni kynnti Eimur starfsemi sína og verkefni á sviði orkuskipta, sjálfbærni og bætta nýtingu auðlinda á Norðurlandi. Rætt var um alþjóðlegt samstarf og mikilvægi þess að tengja saman staðbundna þekkingu og reynslu frá öðrum löndum við þróun nýrra lausna í orku- og auðlindanýtingu. Meðal þess sem kynnt var var Vatnalíf / ICEWATER , þar sem Eimur hefur þróað færanlegan hreinsigám til forhreinsunar á fráveituvatni frá matvælaiðnaði. Verkefnið sýnir hvernig hægt er að þróa nýjar lausnir með atvinnulífinu og skapa tækifæri til verðmætasköpunar úr auðlindum sem annars færu til spillis. Eimur hefur unnið verkefnið í góðu samstarfi við Kjarnafæði/Norðlenska á Húsavík og er stolt af þeim árangri sem náðst hefur við þróun og prófun gámsins. Einnig var rætt um möguleika lífgasframleiðslu í landbúnaði og hvernig kúabændur geta nýtt mykju til framleiðslu á eldsneyti. Í Bretlandi eru dæmi um slíka nýtingu og var rætt um hvernig sú reynsla gæti nýst við þróun sambærilegra lausna hér á landi. Lífgas og orkuskipti í landbúnaði voru einnig meðal umræðuefna á viðburði Eims um orkuskipti í landbúnaði fyrr á þessu ári. Þessi umræða tengist jafnframt DEPLOY-PED , nýju evrópsku samstarfsverkefni sem Eimur leiðir. DEPLOY-PED er styrkt af Horizon Europe og að verkefninu koma tuttugu samstarfsaðilar í tíu löndum. Eitt af sex sýnisverkefnum þess verður unnið í Húnaþingi vestra, þar sem sjónum verður beint að möguleikum lífgasframleiðslu í dreifbýli. Verkefnið hefst í janúar 2027 og stendur í fjögur ár. Heimsóknin var jafnframt tækifæri til að ræða mikilvægi þess að tengja saman staðbundna þekkingu og alþjóðlegt samstarf til að þróa nýjar lausnir í orku- og auðlindanýtingu. Það var einstaklega ánægjulegt að taka á móti sendiherra Bretlands á Íslandi og kynna starfsemi og áherslur Eims. Hún sýndi verkefnum okkar mikinn áhuga og það sköpuðust áhugaverðar umræður um tækifæri í orkuskiptum og nýsköpun. Samtalið styrkti tengsl okkar og skapar vonandi tækifæri til frekara samstarfs um málefni sem skipta báðar þjóðir miklu máli. segir Hildur Arna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Eims. Jane Stevens tók við embætti sendiherra Bretlands á Íslandi í september síðastliðnum. Hún hefur starfað lengi í bresku utanríkisþjónustunni og hefur meðal annars sinnt málefnum loftslagsmála og orku.
3. nóvember 2026
Vilt þú leiða alþjóðlegt samstarfsverkefni og taka þátt í að móta framtíð sjálfbærrar orku og samfélagsþróunar í Evrópu? Eimur leitar að öflugum verkefnastjóra til að leiða nýtt og metnaðarfullt Evrópuverkefni, DEPLOY-PED, sem félagið stýrir í samstarfi við 19 aðila í 10 löndum. Um er að ræða einstakt tækifæri til að leiða umfangsmikið alþjóðlegt þróunarverkefni sem hefur það að markmiði að styðja samfélög við að nýta eigin auðlindir betur, auka sjálfbærni og draga úr háð þeirra á innfluttum orkugjöfum. Verkefnið byggir á hugmyndafræði um orkujákvæð héruð (e. Positive Energy Districts), þar sem samfélög stefna að því að framleiða meiri endurnýjanlega orku en þau nota yfir árið. Verkefnið er til fjögurra ára, frá 1. janúar 2027 til 31. desember 2030, og felur í sér samstarf við sérfræðinga og stofnanir víðs vegar um Evrópu. Fjölbreytt og krefjandi starf Verkefnastjóri ber ábyrgð á daglegri samræmingu og utanumhaldi verkefnisins í nánu samstarfi við alþjóðlega samstarfsaðila. Meðal verkefna eru samskipti og samvinna við samstarfsaðila, eftirfylgni með verk- og kostnaðaráætlunum, skipulagning funda og viðburða, upplýsingamiðlun og gerð framvinduskýrslna. Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun og reynslu af verkefnastjórnun, sem býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og góðri skipulagshæfni. Reynsla af alþjóðlegu samstarfi og Evrópuverkefnum er kostur, sem og áhugi á orku- og sjálfbærnimálum. Starfsstöð er á Akureyri, en einnig kemur til greina að verkefnastjóri starfi frá öðrum stað á Norðurlandi. Tækifæri til að hafa áhrif Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni, alþjóðlegt tengslanet og tækifæri til að vinna að lausnum sem stuðla að sjálfbærari framtíð. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Eim og samstarfsaðila þess, þar sem nýjar hugmyndir, þekking og reynsla verða nýttar til að skapa raunveruleg verðmæti fyrir samfélög.  Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér starfið og sækja um. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Arna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Eims, í gegnum netfangið hildur@eimur.is .