11. september 2025

Vilt þú fræðast um sniglarækt? Fræðsluviðburðir á Norðurlandi í október

Sniglarækt sem ný aukabúgrein á Íslandi

Eimur hefur hrundið af stað verkefninu „Sniglarækt, sjálfbær nýting glatvarma“, sem hefur það meginmarkmið að kynna og innleiða sniglarækt sem raunhæfan, sjálfbæran og nýskapandi valkost fyrir bændur á Íslandi. Verkefnið er svar við vaxandi þörf í íslenskum landbúnaði fyrir fjölbreyttari atvinnumöguleika og aukna verðmætasköpun í dreifbýli.

 

Sniglar – verðmæt og fjölbreytt afurð

Sniglar hafa reynst arðbær atvinnugrein víða í Evrópu, þar sem þeir eru eftirsóttir sem lúxusmatvara. Auk þess bjóða þeir upp á fjölbreytta möguleika til nýtingar; afurðir úr sniglum geta nýst sem hágæða próteinfóður fyrir fiskeldi, slím þeirra er eftirsótt innihaldsefni í snyrtivörur og skeljar þeirra má mala og nýta í áburð.


Fræðsluviðburðir í október

Fyrsti hluti verkefnisins felur í sér opna fræðsluviðburði á Norðurlandi, þar sem sérfræðingurinn og sniglabóndinn Peter Monaghan frá írsku sniglaræktinni Inis Escargot kynnir aðferðir og tækni sem henta íslenskum aðstæðum, en sérstaða Íslands í orku- og umhverfismálum skapar einstaka möguleika til að þróa vörur sem falla vel að kröfum nútíma neytenda.


Á fundunum verður meðal annars farið yfir:

  • Hvernig hægt er að nýta glatvarma úr hitaveitulögnum til arðbærrar framleiðslu
  • Sniglar sem lúxusmatvara á alþjóðamarkaði
  • Nýting á afurðum snigla í fiskeldi, snyrtivörur og áburð
  • Tækifæri til fjölbreyttari atvinnusköpun í dreifbýli


Viðburðirnir eru sérstaklega ætlaðir bændum, frumkvöðlum og öllum þeim sem hafa áhuga á sjálfbærri nýsköpun í landbúnaði.

 

📍 Fræðsluviðburðir um sniglarækt verða haldnir á eftirfarandi stöðum:

  • Hvammstangi – 14. október kl. 12:00 – 16:00 · Hlaðan, Hvammstanga
  • Sauðárkrókur – 15. október kl. 17:00 – 21:00 · 1238 safnið, Sauðárkróki
  • Þingeyjarsveit – 16. október kl. 10:00 - 14:00 · Sel Hótel, Þingeyjarsveit
  • Akureyri – 16. október kl. 16:00 – 18:00 · Drift EA, Akureyri


Boðið verður upp á léttar veitingar á viðburðunum.
Skráning og þátttaka á fræðsluviðburðum er
ókeypis.


Smelltu hér til að skrá þig


Hagnýtt námskeið í sniglarækt á Írlandi – vorið 2026

Að loknum fræðsluviðburðum geta þátttakendur sótt um að taka þátt í hagnýtu námskeiði í sniglarækt á Írlandi. Vorið 2026 fá sex aðilar tækifæri til að taka þátt í þessari vikulöngu ferð, sem er einstakt tækifæri til að kynnast greininni í reynd.

Á námskeiðinu munu þátttakendur fá innsýn í alla þætti sniglaræktar – frá uppbyggingu og rekstri sniglabúa til markaðsmála og afurðasölu. Þannig öðlast þeir bæði djúpa og raunhæfa reynslu sem getur lagt grunn að eigin ræktun á Íslandi.


Hefur þú áhuga á að vita meira? Hafðu samband við Sigurð Líndal á netfangið s.lindal@eimur.is


Verkefnið er styrkt af Lóu - nýsköpunarsjóð.


Deila frétt

28. september 2026
Orka var rauður þráður á Hönnunarþingi sem fór fram á Húsavík um helgina. Eimur tók þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem orka, nýsköpun, auðlindanýting og sjálfbærni voru skoðuð frá ólíkum sjónarhornum.
7. september 2026
Tíunda Norræna lífgasráðstefnan (e. Nordic Biogas Conference) var haldin í Reykjavík dagana 2. til 4. september, á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár í samstarfi helstu aðila í lífgasiðnaði Norðurlandanna fimm, og ráðstefnustaðurinn færist milli landanna á ári hverju, frá því hún var fyrst haldin í Helsinki árið 2006. Þetta var í annað sinn sem hún er haldin hér á landi, en Ísland hýsti hana síðast árið 2014. Um tvö hundruð þátttakendur sóttu ráðstefnuna, og þar á meðal voru sveitarfélög, orkufyrirtæki, tæknibirgjar, fjárfestar, ráðgjafar, vísindafólk og fulltrúar landbúnaðarins. Sigurður Líndal Þórisson, sviðsstjóri sjálfbærra viðskipta hjá Eimi , flutti erindi í málstofu um landbúnað ásamt Sveini Aðalsteinssyni, framkvæmdastjóra Orkídeu. Útgangspunktur erindisins var sá að við fyrstu sýn virðist Ísland vera síðasta landið sem þarf á lífgasi að halda, enda húshitun og raforka að mestu úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Samgöngur, landbúnaður og orkukostnaður í dreifbýli segja hins vegar aðra sögu. Í erindinu var farið yfir tvær ólíkar leiðir að sama marki: uppbyggingu á einum stað við Dysnes í Eyjafirði og dreifða nálgun í Húnaþingi vestra, þar sem Orkusamfélag Steingerðar byggir á samstarfi 34 kúabænda . Sigurður fór yfir rekstrarforsendurnar eins og þær blasa við í dag, þar sem tekjurnar liggja að minna leyti í sölu á metani, heldur frekar í hliðgjöldum fyrir lífrænan úrgang og í meltunni sem til verður við gerjunina og nýtist sem áburður. Hindranirnar eru fremur skipulagslegar en tæknilegar, því aðilar máls bíða hver eftir öðrum meðan forystu og stefnumótun ríkisins skortir. Erindinu lauk á endurtekningu sameiginlegrar áskorunar Eims og Orkídeu til tveggja ráðuneyta frá því í maí, um að ráðist verði í tvö tilraunaverkefni í landbúnaðartengdri metan vinnslu, bæði fyrir norðan og sunnan. Þátttaka í ráðstefnum af þessu tagi skiptir miklu máli fyrir verkefni sem eru enn í mótun. Þar fæst samanburður við þau lönd sem eru komin lengra, tengsl myndast við tæknibirgja og mögulega samstarfsaðila í umsóknum, og ekki síst er þetta tækifæri til að koma íslenskum aðstæðum á framfæri. Þær eru sérstakar og þær rata ekki inn í norræna umræðu nema einhver mæti og segi frá þeim.