Aðgerðabanki

⁠– fyrir sveitarfélög í loftslagsmálum, orkuskiptum og orkunýtni

Aðgerðabanki RECET er hagnýtt verkfæri fyrir sveitarfélög til að móta aðgerðaáætlanir í loftslagsmálum. Þetta geta sveitarfélög nýtt sem grunn að eigin aðgerðaráætlunum eða einfaldlega sem innblástur. Áhersla er lögð á raunhæfar lausnir sem hægt er að aðlaga að mismunandi aðstæðum. Aðgerðirnar spanna flokka orkuskipta, orkunýtni, breyttra ferðavenja, fræðslu og aukna sjálfbærni í rekstri sveitarfélaga.


Markmiðið með aðgerðabankanum er að auðvelda sveitarfélögum gerð aðgerðaáætlana í loftlagsmálum, sem er lögbundin skylda þeirra. Aðgerðabankinn styður við upplýsta ákvarðanatöku og skapa sameiginlegan vettvang fyrir þekkingu og góðar lausnir í þessum efnum.


Í aðgerðabankanum er gefin lýsing á markmiði aðgerðar og hugmynd um það hvernig hrinda má henni í framkvæmd. Þá er tilgreindur mögulegur ábyrgðaraðili og hvernig flokka megi framkvæmd aðgerðarinnar í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Þá er gerð tilraun til að tengja þessar aðgerðir við aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum, sjá co2.is.


Aðgerðabankinn er unninn af Eimi, SSNE og Vestfjarðastofu eftir vinnustofur sem haldnar voru með fulltrúum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og Vestfjörðum 2024 og 2025.


Ef þið nýtið bankann í eigin vinnu viljum við gjarnan heyra af því, og endilega hafa samband við ottoel@eimur.is.

Orkuskipti

Dæmi um aðgerðir eru orkuskipti í skólaakstri, snjallar hleðslulausnir við hafnir og rafvæðing smærri tækja

Skoða aðgerðir

Rekstur sveitarfélags

Dæmi um aðgerðir eru græn innkaupastefna, rafræn þjónusta og svansvottun nýbygginga

Skoða aðgerðir

Breyttar ferðavenjur

Dæmi um aðgerðir eru að auka tíðni almenningssamgangna milli sveitarfélaga, uppbygging hjólastígakerfis milli þéttbýla og samgöngustyrkir fyrir starfsfólk

Skoða aðgerðir

Orkunýtni

Dæmi um aðgerðir eru að draga úr lýsingu á næturna, yfirbreiðslur yfir sundlaugar og birtuorka á tjaldsvæðum

Skoða aðgerðir

Fræðsla

Tillögur að fræðsluefni og sveitarfélagið sem fyrirmynd

Skoða aðgerðir

Hlaða niður aðgerðabanka

Íslenska Enska

Aðgerðabankinn er hluti af vinnu RECET verkefnisins sem styrkt er af LIFE styrktaráætlun Evrópusambandsins sem leggur áherslu á umhverfis- og loftslagsmál. 

Tengiliður Eims er Ottó Elíasson, ottoel@eimur.is
Tengiliður
SSNE er Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, sigurborg@ssne.is
Tengiliður
Vestfjarðastofu er Hjörleifur Finnsson, hjorleifur@vestfirdir.is