Rekstur sveitarfélags
Aðgerðir sem styðja við markvissa innleiðingu orkuskipta í rekstri sveitarfélaga, meðal annars í gegnum innkaup, útboð, ábyrgðarskiptingu og verklag. Aðgerðir í þessum flokki eru 7 og hugsaðar sem innblástur og verkfæri sem sveitarfélög geta aðlagað að sínum aðstæðum.
1. Græn innkaupastefna
Markmið
Lækka kostnað sveitarfélagsins og auðvelda að framfylgja innkaupastefnu með samræmdu innkaupaferli fyrir allar deildir sveitarfélagsins.
Framkvæmd
Skilgreina innkaupastjóra sem ber ábyrgð á því að framfylgja innkaupastefnu sveitarfélagsins. Getur tengst Grænum skrefum sveitarfélaga.
Ábyrgð
T.d. fjármáladeild
Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur
Ábati: Beinn ábati fyrir sveitarfélagið
Aðgerðaráætlun Íslands: Þ.1.B.1
2. Samningar og útboð sem hvetja til orkuskipta
Markmið
Að ýta orkuskiptunum áfram í atvinnulífinu með því að hvetja verktaka til þess að kaupa og nota jarðefnaeldsneytislaus tæki í sinni vinnu.
Framkvæmd
Útfæra útboðsefni og -samninga þannig að verktökum sem nota hreinorkutæki við framkvæmd sé ívilnað. Hluti af innkaupastefnu.
Ábyrgð
T.d. fjármáladeild og framkvæmdadeild
Stjórnsýsluflokkur:
Innri rekstur
Ábati: Samfélagslegur ábati
Aðgerðaráætlun Íslands: S.2.B.2 og Þ.1.B.1
3. Taka þátt og skilgreina ábyrgðaraðila fyrir Græn Skref
Markmið
Gera það auðveldara fyrir starfsmenn sveitarfélagsins að vinna eftir grænum skrefum og stuðla að umhverfisvænni rekstri bæjarins.
Framkvæmd
Taka þátt í og skilgreina teymi sem ber ábyrgð á grænum skrefum sem gæti staðið fyrir fræðslu, leiðbeiningum og ábendingum innan bæjarins og sem starfsmenn bæjarins gætu leitað til eftir aðstoð. Virkja allt starfsfólk til þátttöku.
Ábyrgð
T.d. fjármáladeild og umhverfisdeild
Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur
Ábati: Beinn ábati fyrir sveitarfélagið
Aðgerðaráætlun Íslands: -
4. Innleiðing á rafrænu kerfi fyrir grænt bókhald
Markmið
Fylgjast með orkunotkun og kolefnislosun á beinni ábyrgð sveitarfélaga og auðvelda áætlanagerð um samdrátt í losun.
Framkvæmd
Innleiða rafrænt umhverfisbókhald, en slíkar lausnir eru til sölu á almennum markaði.
Ábyrgð
T.d. umhverfis- og fjármáladeild sveitarfélaga í samvinnu við landshlutasamtök
Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur
Ábati: Beinn ábati fyrir sveitarfélagið
Aðgerðaráætlun Íslands: -
5. Auka rafræna þjónustu
Markmið
Draga úr ferðaþörf með aukinni rafrænni þjónustu hjá opinberum aðilum.
Framkvæmd
Opinberir aðilar, stofnanir bæði ríkis og sveitarfélaga vinna markvisst að því að auka rafræna þjónustu. Krefst stefnumótunar.
Ábyrgð
T.d. þjónustudeild
Stjórnsýsluflokkur: Almenn stjórnsýsla
Ábati: Beinn ábati fyrir sveitarfélagið
Aðgerðaráætlun Íslands: -
6. Svansvottun nýbygginga/nýframkvæmda
Markmið
Draga úr orkunotkun, lækka viðhaldskostnað og auka heilnæmi nýbygginga.
Framkvæmd
Svansvottun bygginga tekur m.a. tillit til orkunotkunar. Svansvottun bygginga hefur almennt í för með sér lægri viðhaldskostnað til lengri tíma.
Ábyrgð
T.d. framkvæmdadeild
Stjórnsýsluflokkur: Almenn stjórnsýsla
Ábati: Samfélagslegur ábati
Aðgerðaráætlun Íslands: -
7. Skipulagning svæða til orkuöflunar
Markmið
Að auka og auðvelda uppbyggingu orkuöflunar á landsvæði sveitarfélagsins með því að skipuleggja og skilgreina svæði þar sem er leyfilegt og/eða ekki leyfilegt að reisa slík mannvirki.
Framkvæmd
Með samráði við íbúa og fleiri deildir bæjarfélagsins, kortleggja og skipuleggja svæði sem henta til orkuöflunar og á sama tíma skipuleggja svæði þar sem slíkt er ekki leyfilegt.
Ábyrgð
T.d. umhverfis- og skipulagsdeild
Stjórnsýsluflokkur: Veitu og orkufyrirtæki
Ábati: Mögulegur beinn ábati
Aðgerðaráætlun Íslands: S.1.B.5






