Breyttar ferðavenjur

Aðgerðir sem hvetja til vistvænni ferðamáta í daglegu lífi, svo sem göngu, hjólreiða, almenningssamgangna og samnýtingar. Markmiðið er að bæta heilsu, minnka losun og skapa mannvænna samfélag. Aðgerðir í þessum flokki eru 12 og hugsaðar sem innblástur og verkfæri sem sveitarfélög geta aðlagað að sínum aðstæðum.

1. Greining á heildstæðu kerfi vistvænna samgangna fyrir landshluta

  • Markmið

    Leggja grunn að bættum tengingum á milli vistvænna ferðamáta og skapa þannig raunhæfa leið til að ferðast um með vistvænum hætti. Skapa umhverfi sem gerir heimilum mögulegt að fækka bílum í rekstri.

  • Framkvæmd

    Hefja greiningu á því sem þarf til að hægt sé að móta heildstætt kerfi vistvænna samgangna milli allra sveitarfélaga innan tiltekins svæðis, t.d. landshluta.

  • Ábyrgð

    t.d. landshlutasamtök í samstarfi við sveitarfélög


Stjórnsýsluflokkur: Skipulagsmál.
Ábati: Mikill samfélagslegur ábati.

Aðgerðaráætlun Íslands: -

 2. Auka tíðni almenningssamgangna milli sveitarfélaga

  • Markmið

    Auka notkun almenningssamgangna, draga úr notkun einkabílsins og þar með lækka kolefnisspor sveitarfélagsins og íbúana.

  • Framkvæmd

    Í samvinnu við nærliggjandi sveitarfélög, skipuleggja möguleikana á almenningssamgöngum milli þeirra með það að markmiði að draga úr fjölda bílferða í einkabíl og þar með lækka kolefnisspor sveitarfélagsins.

  • Ábyrgð

    T.d. skipulagsdeild, umhverfisdeild


Stjórnsýsluflokkur: Skipulagsmál.
Ábati: Mikill samfélagslegur ábati.

Aðgerðaráætlun Íslands: S.5.B.4


3. Tryggja aðgengi fyrir öll að almenningssamgöngum

  • Markmið

    Að útlioka ekki einstaka samfélagshópa frá almenningssamgöngum með því að tryggja aðgengi fyrir öll, óháð ferðamáta, atgervi og aldri.

  • Framkvæmd

    Kortleggja og greina hvar takmarkanir eru í núverandi kerfi með tilliti til ólíkra hópa. Hafa samráð við alla notendur. Útbúa framkvæmdaáætlun í kjölfarið.

  • Ábyrgð

    T.d. umhverfisdeild og framkvæmdadeild


Stjórnsýsluflokkur: Skipulagsmál.
Ábati: Samfélagslegur ábati.

Aðgerðaráætlun Íslands: -


 4. Auðvelda samgöngur á reiðhjólum innan þéttbýlis

  • Markmið

    Að fjölga íbúum sveitarfélagsins sem nota reiðhjól sem samgöngumáta og lækka þannig kolefnisspor ásamt því að auka lífsgæði íbúa.

  • Framkvæmd

    Uppbygging fjölbreyttra samgönguinnviða fyrir hjól í þéttbýli. Byggja upp hjólastígakerfi, endurhanna gatnamót fyrir hjólandi, setja upp umferðarljós fyrir hjólandi, setja upp vandaða hjólastanda hjá starfsstöðvum bæjarins ásamt hjólatyllum og ruslafötum sem eru sérhönnuð fyrir hjólandi vegfarendur. Græn skref eru með áherslur sem snúa að vistvænum samgöngum.

  • Ábyrgð

    T.d. umhverfisdeild


Stjórnsýsluflokkur: Skipulagsmál.
Ábati:  Mikill ábati fyrir sveitarfélagið.

Aðgerðaráætlun Íslands: S.5.B.1


 5. Uppbygging hjólastígakerfis milli þéttbýla

  • Markmið

    Byggja upp vandað hjólastígakerfi milli sveitarfélaga og auðvelda þannig samgöngur út fyrir bæjarmörk á hjólum.

  • Framkvæmd

    Hefja markvissa og faglega greiningu um hvar núverandi hjólaleiðir liggja og hvar best sé að koma nýjum leiðum fyrir. Krefst samtals við öll sveitarfélögin og að þau taki niðurstöðurnar inn í aðalskipulag.


  • Ábyrgð

    T.d. landshlutasamtök í samstarfi við sveitarfélög


Stjórnsýsluflokkur: Skipulagsmál.
Ábati: Mikill ábati fyrir sveitarfélagið.

Aðgerðaráætlun Íslands: S.5.B.1


6. Hjólaskýli við stoppistöðvar almenningssamgangna við þjóðvegi

  • Markmið

    Skapa möguleika fyrir ungmenni og aðra notendur í minni þéttbýlium til að flétta saman hjólandi ferðamáta við almenningssamgöngur ásamt því að búa til möguleika á því að nota vistvæna ferðamáta fyrir lengri ferðir.

  • Framkvæmd

    Hefja sameiginlega greiningu allra sveitarfélaga og landbyggðarstrætó (Vegagerðin) á því hvaða staðir koma til greina. Semja við ríkið um mótframlag við sveitarfélögin til fjármögnunar.

  • Ábyrgð

    Vegagerðin og sveitarfélög


Stjórnsýsluflokkur: Skipulagsmál.
Ábati: Samfélagslegur ábati.

Aðgerðaráætlun Íslands: S.5.B.4


7. Hjólastæði við byggingar sveitarfélagsins

  • Markmið

    Fjölga markvisst hjólandi vegfarendum.

  • Framkvæmd

    Fjölga aðgengilegum hjólastæðum við byggingar sveitarfélagsins.

  • Ábyrgð

    t.d. framkvæmdadeild

Stjórnsýsluflokkur: Skipulagsmál.
Ábati: Mikill samfélagslegur ábati.

Aðgerðaráætlun Íslands: -

8. Bæta vetrarþjónustu fyrir vistvæna ferðamáta

  • Markmið

    Fjölga gangandi og hjólandi vegfarendum yfir vetrartímann.

  • Framkvæmd

    Kortleggja möguleika til að bæta núverandi vetrarþjónustu á helstu göngu- og hjólaleiðum. Rýna sérstaklega svæði við leik- og grunnskóla ásamt stærstu vinnustöðunum.

  • Ábyrgð

    T.d. umhverfisdeild

Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur.
Ábati: Samfélagslegur ábati.

Aðgerðaráætlun Íslands:  -

9. Samgöngustyrkur fyrir starfsfólk

  • Markmið

    Hvetja starfsfólk sveitarfélagsins til þess að hjóla eða ganga í vinnuna með því að bjóða upp á samgöngustyrk.

  • Framkvæmd

    Bjóða starfsfólki uppá samgöngustyrk skv. reglum Skattsins. 

  • Ábyrgð

    T.d. bæjarráð og fjármáladeild


Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur.
Ábati:  Beinn ábati fyrir sveitarfélagið með færri veikindadögum og minni þörf á bílastæðum.

Aðgerðaráætlun Íslands:  -

 10. Vistvænar ferðir starfsfólks á vinnutíma

  • Markmið

    Að fjölga vistvænum ferðum og hvetja starfsfólk sveitarfélaga til þess að nýta sér vistvæna ferðamáta s.s. rafskutlur og reiðhjól fremur en einkabílinn til ferða á vinnutíma.

  • Framkvæmd

    Bjóða starfsfólki uppá afnot af rafhjóli á vinnutíma eða gera sérstaka samninga við rafskutluleigur um inneignir fyrir starfsólk að nýta sér til þess að lækka þröskuldinn fyrir það að nýta sér vistvæna ferðamáta. Tengist Grænum skrefum sveitarfélaga.

  • Ábyrgð

    T.d. umhverfisdeild


Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur.
Ábati:  Beinn ábati fyrir sveitarfélagið með færri veikindadögum og minni þörf á bílastæðum.

Aðgerðaráætlun Íslands:  -

11. Samþætta húsnæðisuppbyggingu við virka ferðamáta og auka þjónustu í göngufæri

  • Markmið

    Stuðla að því að virkir ferðamátar og almenningssamgöngur verði fyrsta ferðaval fólks í daglegu lífi. Fækka bílferðum og draga úr bílaþörf til að sinna daglegum erindum með þjónustu í göngufæri. Draga úr almennri ferðaþörf, stytta ferðir og auka hlutdeild vistvænna ferðamáta. Draga úr kolefnislosun og auka viðnámsþrótt byggðar gagnvart loftslagsbreytingum með samþættu skipulagi byggðar og vistvænna ferðamáta.


  • Framkvæmd

    Rannsaka ferðavenjur og húsnæðisuppbyggingu í landshlutanum. Finna orsakasamhengi og tengja við framtíðaruppbyggingu. Breyta landnotkun í aðalskipulagi þannig að verslun og þjónusta sé staðsett í göngufæri við íbúðabyggð. Einnig er mögulegt að auka heimildir til verslunar- og þjónustu innan ibúðasvæða.

  • Ábyrgð

    Skipulagsdeild


Stjórnsýsluflokkur: Skipulagsmál.
Ábati: Mikill samfélagslegur ábati.

Aðgerðaráætlun Íslands:  -

12. Endurhanna götur fyrir vistvæna ferðamáta og fjölga vist- og göngugötum

  • Markmið

    Fjölga öruggum götum fyrir vistvæna ferðamáta og til að auka hlutdeild þeirra sem nota vistvæna ferðamáta.

  • Framkvæmd

    Breyta aðal- og deiliskipulagi þannig að það heimili vist- og göngugötur. Endurhanna götur sem eru þegar til staðar. Mælt er með að nota leiðbeiningar Skipulagsstofnunar: Mannlíf, byggð og bæjarrými.

  • Ábyrgð

    T.d. skipulags-eða framkvæmdadeild


Stjórnsýsluflokkur: Skipulagsmál
Ábati: Samfélagslegur ábati

Aðgerðaráætlun Íslands:  -