Orkuskipti

Aðgerðir sem styðja við orkuskipti í samgöngum, innviðum og þjónustu sveitarfélaga. Markmiðið er að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og auka hlut endurnýjanlegra orkugjafa með raunhæfum og framkvæmanlegum leiðum. Aðgerðir í þessum flokki eru 16 og hugsaðar sem innblástur og verkfæri sem sveitarfélög geta aðlagað að sínum aðstæðum.

1. Vistvænir bílaleigubílar fyrir starfsfólk

  • Markmið

    Lækka kolefnisspor sveitarfélagsins með því haga samningum þannig að það sé sjálfgefið að starfsfólk sveitarfélagana fái rafbíl/hreinorkubíl þegar þarf að leigja bíl. 

  • Framkvæmd

    Gera samninga við bílaleigur um að þegar starfsfólk sveitarfélagsins þarf að leigja bílaleigubíl, þá sé það sjálfgefið að bíllinn sé rafbíll/hreinorkubíll. Áfram verði hægt að leigja jarðefnaeldsneytisbíl, ef þörf þykir, en að starfsfólk sveitarfélagsins þurfi þá að óska eftir því sérstaklega. Setja í innkaupastefnu.


  • Ábyrgð

    T.d. umhverfisdeild

Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur
Ábati: Samfélagslegur ábati

Aðgerðaráætlun Íslands: Þ.1.B

 2. Rafvæðing bílaflota sveitarfélagsins

  • Markmið

    Draga úr notkun jarðefnaeldsneytis, lækka orkukostnað og draga úr losun CO2.

  • Framkvæmd

    Í hvert sinn sem endurnýja á bifreið skal leitast við að kaupa rafbíl eða hreinorkubifreið. Leyfi til að kaupa bíl sem er ekki hreinorkubifreið þyrfti að rökstyðja.

  • Ábyrgð

    T.d. innkaupastjóri

Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur
Ábati: Beinn ábati fyrir sveitarfélagið með lægri rekstrar- og viðhaldskostnaði

Aðgerðaráætlun Íslands: S.5.C.1 og S.5.C.10


3. Hreinorkutæki í almenningssamgöngum

  • Markmið

    Að lækka kolefnisspor sveitarfélagsins.

  • Framkvæmd

    Þegar uppfærslur, endurnýjanir eða útskipti eiga sér stað á tækjum í almenningssamgöngum þá skal fjárfesta í hreinorkutækjum. Þarf að verða hluti af innkaupastefnu.

  • Ábyrgð

    T.d. umhverfisdeild og framkvæmdadeild

Stjórnsýsluflokkur: Almenn stjórnsýsla
Ábati: Samfélagslegur ábati

Aðgerðaráætlun Íslands: S.5.C.3


 4. Orkuskipti í skólaakstri

  • Markmið

    Draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og þar með losun gróðurhúsalofttegunda.


  • Framkvæmd

    Mörg dreifbýl sveitarfélög reka skólabíla sem henta vel til orkuskipta, t.d. með kaup á rafknúnum smárútum.

  • Ábyrgð

    T.d. framkvæmdadeild

Stjórnsýsluflokkur: Almenn stjórnsýsla
Ábati: Samfélagslegur ábati

Aðgerðaráætlun Íslands: S.5.C.3


 5. Hvatar í gjaldskrá sveitarfélagsins

  • Markmið

    Búa til hvata fyrir íbúa og/eða fyrirtæki til þess að ráðast í orkuskipti 

  • Framkvæmd

    Gefa afslátt af gjöldum (eða styrk á móti gjaldi í stað afsláttar) fyrir frumkvæði í orkuskiptum, s.s. uppsetningu á varmadælum, hleðslustöðvum, rafvæðingu tækja/bíla.

  • Ábyrgð

    T.d. umhverfisdeild


Stjórnsýsluflokkur: Almenn stjórnsýsla
Ábati: Samfélagslegur ábati

Aðgerðaráætlun Íslands: -


6. Hvatning til íbúa til að rafvæða einkabílinn

  • Markmið

    Lækka orkukostnað íbúa og ýta áfram orkuskiptunum.

  • Framkvæmd

    Settur verði upp teljari á heimasíðu sveitarfélagsins sem sýnir hlutfall eða fjölda rafbíla í sveitarfélaginu. Tölur um fjölda hreinorkubifreiða má nálgast hjá Samgöngustofu.


  • Ábyrgð

    T.d. umhverfisdeild


Stjórnsýsluflokkur: Almenn stjórnsýsla
Ábati: Samfélagslegur ábati

Aðgerðaráætlun Íslands: S.5.C


7. Hleðslustöðvar við starfsstöðvar bæjarins

  • Markmið

    Auðvelda starfsfólki sveitarfélagsins að eiga sjálft rafbíl með því að bjóða upp á það að hlaða rafbíl við vinnustaðinn.

  • Framkvæmd

    Getur verið eins einfalt og að fela framkvæmdasviði það verkefni að setja upp slíka stöð. Rafverktakar geta veitt ráðgjöf.

  • Ábyrgð

    T.d. framkvæmdadeild og umhverfisdeild

Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur
Ábati: Samfélagslegur ábati

Aðgerðaráætlun Íslands:  -

8. Fjölga hæg- og hraðhleðslustöðvum 

  • Markmið

    Gera það auðveldara fyrir íbúa og gesti sveitarfélagsins að eiga og hlaða rafbíl með því að bjóða upp á gott net hleðsluinnviða.


  • Framkvæmd

    Skipuleggja þessa innviði m.t.t. annarrar þjónustu og getu rafkerfis til þess að anna hleðslu, kortleggja helstu staði og búa til samþykkt um staðsetningu þeirra.


  • Ábyrgð

    T.d. skipulagsdeild


Stjórnsýsluflokkur: Skipulagsmál
Ábati: Samfélagslegur ábati

Aðgerðaráætlun Íslands: S.5.C.3


9. Útbúa hverfahleðslustövar 

  • Markmið

    Gera það auðveldara fyrir íbúa og gesti við fjölbýli að eiga og hlaða rafbíl 


  • Framkvæmd

    Skipuleggja hverfahleðsluinnviði m.t.t. greiningar á bestu staðsetningu og nálægðar við fjölbýli


  • Ábyrgð

    T.d. skipulagsdeild


Stjórnsýsluflokkur: Veitu og orkufyrirtæki
Ábati: Samfélagslegur ábati

Aðgerðaráætlun Íslands: S.5.C.3


 10. Hleðslunet fyrir flutningabíla

  • Markmið

    Að ýta undir orkuskiptin og rafvæðingu flutningabíla með því að skipuleggja hleðslunet og innviði fyrir þá í samvinnu milli sveitarfélaga.


  • Framkvæmd

    Skipuleggja hleðslunet fyrir flutningabíla, þvert á landamæri sveitarfélaga, með það að markmiði að ýta orkuskiptunum áfram í landflutningum.


  • Ábyrgð

    T.d. skipulagsdeildir, umhverfisdeildir, bæjarráð, veitur


Stjórnsýsluflokkur: Skipulagsmál
Ábati: Samfélagslegur ábati

Aðgerðaráætlun Íslands: S.5.C.11


11. Rafvæðing smærri tækja

  • Markmið

    Draga úr notkun jarðefnaeldsneytis, lækka orkukostnað og draga úr losun CO2.

  • Framkvæmd

    Í hvert sinn sem endurnýja þarf tækjabúnað (t.d. fyrir vinnuskólann) sem gengur fyrir jarðefnaeldsneyti skal kaupa rafknúið tæki.

  • Ábyrgð

    T.d. innkaupastjóri

Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur
Ábati: Beinn ábati fyrir sveitarfélagið með lægri rekstrar- og viðhaldskostnaði

Aðgerðaráætlun Íslands: -


12. Hætta garðslætti á tækjum knúnum jarðefnaeldsneyti

  • Markmið

    Draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og þar með losun gróðurhúsalofttegunda.

  • Framkvæmd

    Ýmist má hætta alfarið slætti á grasi á völdum svæðum innan sveitarfélagsins, t.d. á umferðareyjum, í anda "viljandi villt", eða skipta út bensínsláttuvélum fyrir rafknúin tæki.

  • Ábyrgð

    T.d. umhverfisdeild

Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur
Ábati: Beinn ábati fyrir sveitarfélagið með lægri rekstrar- og viðhaldskostnaði

Aðgerðaráætlun Íslands: -


13. Skipuleggja hafnarsvæði fyrir hleðsluinnviði skipa og flutningabíla

  • Markmið

    Draga úr notkun jarðefnaeldsneytis, ýta undir rafvæðingu báta og vöruflutningabíla og draga úr losun CO2. 


  • Framkvæmd

    Í samvinnu við hafnaryfirvöld og veitur undirbúa og skipuleggja höfn framtíðarinnar með innviðum sem geta flutt orku og hlaðið raf- og hreinorkubáta ásamt vöruflutningabílum.


  • Ábyrgð

    T.d. skipulagsdeild

Stjórnsýsluflokkur: Skipulagsmál
Ábati: Samfélagslegur ábati

Aðgerðaráætlun Íslands: S.6.A.1, S.6.A.2 og S.6.A.3


 14. Snjallar hleðslulausnir við hafnir

  • Markmið

    Draga úr hámarksaflþörf vegna hleðslu rafbáta við hafnir með því að nota sólarsellur og rafhlöður og þar með draga úr fjárfestingarþörf í innviðastækkun og hugsanlega lækka gjöld tengdum afltoppum.


  • Framkvæmd

    Setja upp kerfi sem hvetur eigendur rafbáta til þess að taka þátt í álagsjöfnun með fjárhagslegum hvata á orkuverði til bátaeigenda. Notast við snjallstýringu, sólarsellur og rafhlöður ásamt upplýsingum frá bátaeigendum til þess að ákvarða hagkvæmasta tímann til þess að hlaða bátana.

  • Ábyrgð

    T.d. hafnaryfirvöld og skipulagsdeild


Stjórnsýsluflokkur: Almenn stjórnsýsla
Ábati: Samfélagslegur ábati

Aðgerðaráætlun Íslands: S.6.A.2


15. Stærri hleðsluinnviðir fyrir hafnir, s.s. fyrir skemmtiferðaskip

  • Markmið

    Draga úr mengun og kolefnisspori skemmtiferðaskipa sem eru við hafnir á Íslandi.


  • Framkvæmd

    Skipuleggja hvar á landinu eiga að vera landtengingar fyrir skemmtiferðaskip og varða leið að fjármögnun.

  • Ábyrgð

    T.d. skipulagsdeild, hafnaryfirvöld, veitur

Stjórnsýsluflokkur:  Skipulagsmál
Ábati: Samfélagslegur ábati

Aðgerðaráætlun Íslands: S.6.A.1


16. Nýta fjarvarmaveitu til að hita báta við höfn

  • Markmið

    Draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og losun CO2 með því að bjóða uppá hitaveitu tengingu við hafnir til að kynda báta í stað ljósavéla.

  • Framkvæmd

    Kortleggja og leggja hitaveitu að hafnarsvæði sem bátar gætu nýtt til upphitunar. Skoða tengimöguleika með hafnaryfirvöldum.

  • Ábyrgð

    T.d. skipulagsdeild, hafnaryfirvöld, veitur

Stjórnsýsluflokkur: Skipulagsmál
Ábati: Samfélagslegur ábati

Aðgerðaráætlun Íslands: S.6.A.3


Rekstur sveitarfélags

Sjá aðgerðir