Fræðsla
Aðgerðir sem byggja á fræðslu, miðlun og vitundarvakningu. Með aukinni þekkingu meðal starfsfólks, kjörinna fulltrúa og íbúa skapast betri forsendur fyrir varanlegum breytingum.
1. Fræðsluefni fyrir fyrirtæki um orku og orkuskipti
Markmið
Að miðla þekkingu um orku, orkusparnað og orkuskipti til fyrirtækja með það að marki að ýta undir orkuskiptin og draga úr ómeðvitaðri sóun á orku.
Framkvæmd
Nota fræðsluvettvanga (símenntun, háskóla o.s.frv.) sem þegar eru til fyrir miðlun fræðslu um orku, orkuskipti s.s. rafbíla, varmadælur og lítil sólarorkuver ásamt orkusparandi aðgerðum fyrir bæði rafmagn og heitt vatn.
Ábyrgð
T.d. umhverfisdeild
Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur
Ábati: Samfélagslegur ábati
Aðgerðaráætlun Íslands: Þ.2.A
2. Fræðsluefni fyrir íbúa um orku og orkuskipti
Markmið
Að miðla þekkingu um orku, orkusparnað og orkuskipti til íbúa með það að markmiði að ýta undir orkuskiptin og draga úr ómeðvitaðri sóun á orku.
Framkvæmd
Nota fræðsluvettvanga (símenntun, háskóla o.s.frv.) sem þegar eru til fyrir miðlun fræðslu um orku, orkuskipti s.s. rafbíla, varmadælur og lítil sólarorkuver ásamt orkusparandi aðgerðum fyrir bæði rafmagn og heitt vatn.
Ábyrgð
T.d. umhverfisdeild
Stjórnsýsluflokkur:
Innri rekstur
Ábati:
Samfélagslegur ábati
Aðgerðaráætlun Íslands: Þ.2.A
3. Fræðsluefni í orku og orkuskiptum fyrir starfsfólk sveitarfélgsins og sveitarstjórnar
Markmið
Gera starfsfólk sveitarfélagsins betur í stakk búið til þess að skilja þá umhverfisvænu orkukosti sem eru í boði og vinna markvisst að skilvirkum orkuskiptum.
Framkvæmd
Nota fræðsluvettvanga (símenntun, háskóla o.s.frv.) sem þegar eru til fyrir miðlun fræðslu um orku, orkuskipti til starfsfólks sveitarfélaga og sveitarstjórnar.
Ábyrgð
T.d. umhverfisdeild
Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur
Ábati: Samfélagslegur ábati
Aðgerðaráætlun Íslands: Þ.2.A
4. Sveitarfélagið sem fyrirmynd
Markmið
Fjalla um verkefni sem tengjast orku-, umhverfis eða loftslagsmálum á miðlum og ef við á, bjóða íbúum sveitarfélagsins að koma og skoða (t.d. nýju varmadæluna eða rafmagnsbílinn) og fræðast.
Framkvæmd
Fjalla um verkefni sem tengjast orku-, umhverfis eða loftslagsmálum á miðlum, og ef við þá bjóða íbúum sveitarfélagsins að koma og skoða (t.d. nýju varmadæluna eða rafmagnsbílinn) og spyrja spurninga.
Ábyrgð
T.d. umhverfisdeild
Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur
Ábati: Beinn ábati fyrir sveitarfélagið
Aðgerðaráætlun Íslands: Þ.1.B






