Orkunýtni
Aðgerðir sem miða að því að draga úr orkunotkun og auka hagkvæmni í rekstri bygginga og innviða. Orkunýtni er oft fljótleg leið til að minnka rekstrarkostnað, og draga úr losun ef orkugjafinn er jarðefnaeldsneyti. Aðgerðir í þessum flokki eru 10 og hugsaðar sem innblástur og verkfæri sem sveitarfélög geta aðlagað að sínum aðstæðum.
1. Draga úr lýsingu á næturna
Markmið
Lækka orkunotkun og -kostnað við götulýsingu og lýsingu við opinberar byggingar.
Framkvæmd
Svæði skilgreind þar sem hægt er að draga úr eða slökkva alveg á lýsingu á tilteknum tíma á nóttunni.
Ábyrgð
T.d. framkvæmdadeild
Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur
Ábati: Beinn ábati fyrir sveitarfélagið
Aðgerðaráætlun Íslands: -
2. LED væðing götulýsingar
Markmið
Minnka orkunotkun og kostnað við götulýsingu og lýsingar við opinberar byggingar.
Framkvæmd
LED væða götulýsingu og lýsingu á opinberum byggingum sem átak og/eða þegar reglulegt viðhald á sér stað.
Ábyrgð
T.d. bæjarráð
Stjórnsýsluflokkur:
Innri rekstur.
Ábati: Beinn ábati fyrir sveitarfélagið.
Aðgerðaráætlun Íslands: -
3. Nýting á glatvarma sveitarfélagsins
Markmið
Að draga úr orkusóun og auka nýtingu á glatvarma innan sveitarfélagsins.
Framkvæmd
Haga samningum þannig við fyrirtæki á svæði sveitarfélagsins sem nota mikla orku og eru með mikinn glatvarma að það séu innbygðar kvaðir og/eða hvatar til þess að auðvelt sé að nýta glatvarman og að viðkomandi fyrirtæki taki þátt í því verkefni.
Ábyrgð
T.d. umhverfisdeild og skipulagsdeild
Stjórnsýsluflokkur: Almenn stjórnsýsla.
Ábati: Beinn og samfélagslegur ábati.
Aðgerðaráætlun Íslands: -
4. Styðja við snjallmælavæðingu á raforku
Markmið
Að flýta snjallmælavæðingu sveitarfélagsins fyrir raforku, vatns og hitaveitu með það að markmiði að dreifa álagi á innviði og gefa íbúum kost á því að lækka orkukostnað.
Framkvæmd
Hefja samtal við veitur og þrýsta á að snjallmælavæðing sveitarfélagsins sé sett í forgang.
Ábyrgð
Veitufyrirtæki
Stjórnsýsluflokkur: Veitu og orkufyrirtæki.
Ábati: Beinn ábati fyrir sveitarfélagið
Aðgerðaráætlun Íslands: -
5. Yfirbreiðslur yfir sundlaugar
Markmið
Lækka orkunotkun og -kostnað fyrir sveitarfélagið með því að breiða yfir sundlaugar á nóttunni.
Framkvæmd
Kaupa yfirbreiðslur og setja upp. Hægt er að gera hagkvæmnimat á orkusparnaðinum.
Ábyrgð
T.d. umhverfisdeild og framkvæmdadeild
Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur.
Ábati: Beinn ábati fyrir sveitarfélagið.
Aðgerðaráætlun Íslands: -
6. Þjónustustefna sveitarfélagsins endurskoðuð m.t.t. orkunotkunar
Markmið
Draga úr orkunotkun og notkun jarðefnaeldsneytis.
Framkvæmd
Endurskoða akstursáætlanir t.d. í sorphirðu eða snjómokstri m.t.t. orkunotkunar. Setja inn hvata í útboð um hreinorkutæki. Gæti orðið hluti af innkaupastefnu.
Ábyrgð
T.d. umhverfisdeild og framkvæmdadeild
Stjórnsýsluflokkur: Innri rekstur
Ábati: Samfélagslegur ábati
Aðgerðaráætlun Íslands: -
7. Bæta eftirlit með veitukerfum
Markmið
Draga úr orku og auðlindasóun í veitukerfum.
Framkvæmd
Veitukerfi sveitarfélaga eflir eftirlit, t.d. með uppsetningu snjallmæla og uppsetningu rafrænu eftirlitskerfi. Hægt að sameina með rafrænu bókhaldskerfi fyrir grænt bókhald.
Ábyrgð
Veitufyrirtæki
Stjórnsýsluflokkur: Veitu og orkufyrirtæki.
Ábati: Beinn ábati fyrir sveitarfélagið.
Aðgerðaráætlun Íslands: -
8. Orkusparnaður opinberra bygginga
Markmið
Að draga úr orkunotkun opinberra bygginga og lækka þar með kyndikostnað og kolefnisspor bygginganna, gagnast sérstaklega á köldum svæðum.
Framkvæmd
Gera úttekt á opinberum byggingum sveitarfélagsins, vakta orkunotkun þeirra og ráðast í endurbætur sem stuðla minni orkunotkun. Endurnýjun á gluggakosti og einangrun til að draga úr orkunotkun. Gæti verið hluti af loftslagsbókhaldskerfi.
Ábyrgð
T.d. umhverfisdeild
Stjórnsýsluflokkur: Veitu og orkufyrirtæki.
Ábati: Beinn ábati fyrir sveitarfélagið.
Aðgerðaráætlun Íslands: S.1.B.7
9. Birtuorka og hleðslubankar á tjaldsvæðum
Markmið
Að mæta aukinni orkuþörf á tjaldsvæðum með lausn sem býður upp á orkuframleiðslu á staðnum, þar sem orkuþörfin er og draga þannig úr fjárfestingarkostnaði í styrkingu innviða.
Framkvæmd
Kanna hagkvæmni lítils sólarorkuvers og bera saman við kostnað við að stækka raforkuinnviði til þess að ráða við aukið, mjög árstíðabundið álag.
Ábyrgð
T.d. framkvæmdadeild
Stjórnsýsluflokkur: Almenn stjórnsýsla.
Ábati: Óvissa.
Aðgerðaráætlun Íslands: S.1.B.5
10. Nýting á jarðhita/lághita
Markmið
Að auka nýtingu á jarðvarma til húshitunar til þess að draga úr rafkyndingu.
Framkvæmd
Víða má auka nýtingu á lághita t.a.m. með varmadælum. Kostnaðarmeta aðgerðir og forgangsraða.
Ábyrgð
T.d. umhverfis- og skipulagsdeild
Stjórnsýsluflokkur: Veitu og orkufyrirtæki.
Ábati: Beinn og samfélagslegur ábati fyrir sveitarfélagið.
Aðgerðaráætlun Íslands: S.1.B.6






