26. maí 2026

Ársskýrsla Eims 2025

Ársskýrsla Eims fyrir starfsárið 2025 er nú komin út. Í skýrslunni er farið yfir starfsemi félagsins á árinu ásamt helstu verkefnum, áherslum og árangri í verkefnavinnu og þróun.


Ávarp framkvæmdarstjóra Eims 2025

Eimur, félag um bætta nýtingu auðlinda á Norðurlandi, lagði sitt af mörkum á árinu 2025 til að ýta undir verðmætasköpun, aukna sjálfbærni og nýsköpun á Norðurlandi. Með fjölbreyttum verkefnum höfum við unnið markvisst að því að byggja upp verkefni og staðþekkingu til að styðja framþróun í landshlutanum. Í byrjun ársins réðumst við í stefnumótunarvinnu með stjórn, verkefnastjórn og starfsfólki til að skerpa áherslur og móta hlutverk okkar í ýmsum verkefnum.


Niðurstaðan var að Eimur ætti að beita sér á þremur meginsviðum.

Orkuskipti: Efla og styðja sveitarfélög og atvinnulíf við innleiðingu orkuskiptalausna sem draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og hafa jákvæð áhrif á samfélagið.

Varmaorka: Miðla tækifærum og greiða leið einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélaga til bættrar nýtingar varmaorku og nýsköpunar.

Lífmassi: Draga fram staðbundin og hagkvæm tækifæri til verðmætasköpunar úr lífmassa í sátt við samfélög og umhverfi.

Með þessi stef að leiðarljósi mótum við þátttöku okkar í nýjum verkefnum og sinnum þeim sem við höfum þegar stofnað til.

Þegar kemur að orkuskiptum, er Eimur þátttakandi í RECET verkefninu, sem styrkt er af LIFE styrktaráætlun Evrópusambandsins.

Það snýr fyrst og fremst að því að styðja sveitarfélög við gerð áætlana um orkuskipti og loftslagsmál og miðla nýjustu þekkingu á málaflokknum til hagaðila samfélagsins.


Við héldum m.a. vefþing með kollegum okkar á Vestfjarðarstofu um orkuskipti smábáta, og svo ráðstefnu á Akureyri um orkuskipti í dreifðum byggðum í félagi við NetZero Island Network sem starfrækt er af Nordic Energy Research. Um mitt ár kom svo út opið og aðgengilegt mælaborð um olíusölu á Íslandi eftir sveitarfélögum á árunum 2010-2020, sem byggði á greiningarvinnu frá árinu áður.

Á árinu var líka þróaður aðgerðabanki sveitarfélaga í orkuskiptum sem var lagður til grundvallar í vinnu SSNE og Eims með sveitarfélögunum á Norðurlandi eystra við gerð aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum fyrir svæðið á haustmánuðum.


Ýmis verkefni getum við fellt undir varmaorku. Þar má nefna sniglarækt á Íslandi, en fá verkefni hafa vakið jafn mikla athygli nærumhverfisins og fjölmiðla. Hugmyndin er að nýta vannýtta varmaorku, t.d. hitaveituhjárennsli til sveita, til að rækta matsnigla en þeir þykja lostæti í Frakklandi og á Spáni. Við höfum til þessa afar góð skilyrði og viljum færa þessa hugmynd nær framkvæmd og buðum uppá fræðslu frá fyrstu hendi.

Við hófum samstarf við írska sniglaræktandann Peter Monaghan hjá Inis Escargot, og fengum hann til að halda fyrirlestraröð á Hvammstanga, Sauðárkróki, Akureyri og við Mývatn. Þessir viðburðir voru afar vel sóttir og mikill hugur í mörgum að reyna fyrir sér í sniglarækt. Vonandi sjáum við þessa búgrein verða til á landinu á næstu árum.


Annað stórt verkefni tengt varmaorku sneri að glatvarma gagnaversins AtNorth á Akureyri. Eimur leiddi samningaviðræður fyrir hönd Akureyrarbæjar um nýtingu glatvarmans frá gagnaveri AtNorth sem skilyrði fyrir stækkun lóðar félagsins á Akureyri. Sá samningur var undirritaður með pompi og prakt í byrjun júlí við á lóð gagnaversins á Akureyri.

Á grundvelli þess samnings ber AtNorth að afhenda glatvarmann í aðgengilegu formi á lóðamörkum endurgjaldslaust. Þetta er eftir því sem við komumst næst, í fyrsta skipti sem samningar eru gerðir um hliðarstrauma frá tiltekinni starfsemi, áður en hún hefst. Slíkir samningar eru vannýtt tæki af hálfu sveitarfélaga til að ýta undir verðmætasköpun frá starfsemi innan marka þess og bæta nýtingu auðlinda.

Undir lífmassa falla fjölmörg verkefni. Fyrst ber að nefna ICEWATER sem einnig er stutt af LIFE styrktaráætluninni.

Í því verkefni ætlum við hjá Eimi, í samvinnu við Orkuveitu Húsavíkur, Kjarnafæði/Norðlenska og Iðnver að koma upp færanlegu hreinsivirki fyrir fráveituvatn í næstu sláturtíð haustið 2026 við sláturhús Kjarnafæði/Norðlenska á Húsavík.


Á árinu 2025 var gámurinn hannaður og samningar gerðir um smíði hans. Samstarfsaðilar okkar í Iðnver munu flytja hann inn og leigja Eimi til afnota. Með uppsetningu hans viljum við sýna fram á að hægt er með einföldum hætti að hreinsa fráveituvatn frá matvælaiðnaði og sækja í það fitu og lífmassa sem nýta má til verðmætasköpunar. Við vinnum þann hluta í samstarfi við nýsköpunarfyrirtækið Gefn, sem ætlar að framleiða lífdísil úr fitunni sem við sækjum í vatnið.


Fyrri hluta árs var gert rekstrar- og fjármögnunarlíkan fyrir metanvinnslu á Dysnesi við Eyjafjörð sem nýta myndi lífrænan heimilisúrgang og sláturúrgang sem í dag fer til moltugerðar, í bland við kúamykju frá bændum, og framleiða úr því metangas. Okkar niðurstöður eru þær að ef markaður er fyrir hreinsað metangas frá vinnslunni, mætti lækka hliðgjöld á lífrænum heimilisúrgangi, sem væri mikill akkur fyrir heimi og fyrirtæki á svæðinu.

Bændur fengju svo aftur til sín meltu, gerjaða mykju og lífúrgang, sem er næringarríkari og auðleystari fyrir nytjaplöntur en ógerjuð mykja sem bændur dreifa á tún sín í dag. Við erum sannfærð um að slíkt fyrirkomulag geti verið þjóðhagslega hagkvæmt, enda geti hlotist af þessu samdráttur í innflutningi á bæði eldsneyti og áburði. Það er hinsvegar á brattan að sækja fyrir lífeldsneyti þessi misserin, sem verður að teljast furðulegt enda eru liggja þarna okkar nærtækustu tækifæri til innlendrar eldsneytisframleiðslu.


Að lokum vil ég hafa örfá orð um verkefnið um uppbyggingu grænna iðngarða á Bakka við Húsavík. Við hjá Eimi höfum fóstrað þetta verkefni síðan 2023 og slógum botninn í beina þátttöku okkar í því í nóvember 2025 með glæsilegri ráðstefnu á Fosshóteli á Húsavík, undir yfirskriftinni Framtíðin á Bakka.

Viðburðurinn sem haldinn var í góðu samstarfi við Norðurþing, Landsvirkjun og Íslandsstofu var afar vel sóttur en á bilinu 250-300, fulltrúar stjórnvalda, fyrirtækja, heimamanna og fjölbreyttra verkefna sem vilja byggja upp á Bakka komu þar saman. Gerður var afar góður rómur að efni og skilaboðum ráðstefnunnar. Það gaf ráðstefnunni aukna vigt að fá ávörp forsætis- og atvinnuvegaráðherra en þær töluðu fyrir uppyggingu atvinnutækifæra þar sem hringrás og fullnýting auðlinda verður í fyrirrúmi og rímar við nýútkomna atvinnustefnu stjórnvalda. Það er gott leiðarstef fyrir iðnþróun á 21. öldinni. Við skiljum stolt við verkefnið um græna iðngarða á Bakka, en það er gott dæmi um gjöfult samstarf sem við áttum mikinn þátt í að þroska í réttar áttir.


Áfram veginn og megi árið 2026 verða Norðurlandi gjöfult og gott.


Ottó Elíasson, framkvæmdarstjóri


Smelltu hér til að lesa ársskýrslu Eims 2025



Deila frétt

28. september 2026
Orka var rauður þráður á Hönnunarþingi sem fór fram á Húsavík um helgina. Eimur tók þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem orka, nýsköpun, auðlindanýting og sjálfbærni voru skoðuð frá ólíkum sjónarhornum.
7. september 2026
Tíunda Norræna lífgasráðstefnan (e. Nordic Biogas Conference) var haldin í Reykjavík dagana 2. til 4. september, á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár í samstarfi helstu aðila í lífgasiðnaði Norðurlandanna fimm, og ráðstefnustaðurinn færist milli landanna á ári hverju, frá því hún var fyrst haldin í Helsinki árið 2006. Þetta var í annað sinn sem hún er haldin hér á landi, en Ísland hýsti hana síðast árið 2014. Um tvö hundruð þátttakendur sóttu ráðstefnuna, og þar á meðal voru sveitarfélög, orkufyrirtæki, tæknibirgjar, fjárfestar, ráðgjafar, vísindafólk og fulltrúar landbúnaðarins. Sigurður Líndal Þórisson, sviðsstjóri sjálfbærra viðskipta hjá Eimi , flutti erindi í málstofu um landbúnað ásamt Sveini Aðalsteinssyni, framkvæmdastjóra Orkídeu. Útgangspunktur erindisins var sá að við fyrstu sýn virðist Ísland vera síðasta landið sem þarf á lífgasi að halda, enda húshitun og raforka að mestu úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Samgöngur, landbúnaður og orkukostnaður í dreifbýli segja hins vegar aðra sögu. Í erindinu var farið yfir tvær ólíkar leiðir að sama marki: uppbyggingu á einum stað við Dysnes í Eyjafirði og dreifða nálgun í Húnaþingi vestra, þar sem Orkusamfélag Steingerðar byggir á samstarfi 34 kúabænda . Sigurður fór yfir rekstrarforsendurnar eins og þær blasa við í dag, þar sem tekjurnar liggja að minna leyti í sölu á metani, heldur frekar í hliðgjöldum fyrir lífrænan úrgang og í meltunni sem til verður við gerjunina og nýtist sem áburður. Hindranirnar eru fremur skipulagslegar en tæknilegar, því aðilar máls bíða hver eftir öðrum meðan forystu og stefnumótun ríkisins skortir. Erindinu lauk á endurtekningu sameiginlegrar áskorunar Eims og Orkídeu til tveggja ráðuneyta frá því í maí, um að ráðist verði í tvö tilraunaverkefni í landbúnaðartengdri metan vinnslu, bæði fyrir norðan og sunnan. Þátttaka í ráðstefnum af þessu tagi skiptir miklu máli fyrir verkefni sem eru enn í mótun. Þar fæst samanburður við þau lönd sem eru komin lengra, tengsl myndast við tæknibirgja og mögulega samstarfsaðila í umsóknum, og ekki síst er þetta tækifæri til að koma íslenskum aðstæðum á framfæri. Þær eru sérstakar og þær rata ekki inn í norræna umræðu nema einhver mæti og segi frá þeim.
31. ágúst 2026
Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims og hefur störf 1. október næstkomandi. Hildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd. Hildur er með M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði (Management Engineering) frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU), m.a. með áherslu á nýsköpun og stjórnun, og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Eims. Ég sé gríðarleg tækifæri á Norðurlandi til að skapa ný verðmæti með því að nýta betur þær auðlindir, þekkingu og kraft sem þegar er til staðar á svæðinu. Eimur gegnir mikilvægu hlutverki við að leiða saman fólk, þekkingu og hugmyndir og hjálpa til við að breyta tækifærum í raunveruleg verkefni. Hjá Eimi starfar öflugur hópur fólks með mikla sérþekkingu og metnað. Ég hlakka til að byggja áfram á því góða starfi sem þegar hefur verið unnið, og vinna með starfsfólki, bakhjörlum og samstarfsaðilum Eims að því að skapa ný tækifæri og verðmæti á Norðurlandi“. Frá stjórn Eims: „Við erum ákaflega ánægð með ráðningu Hildar í starf framkvæmdastjóra Eims. Við erum sannfærð um að reynsla hennar, þekking og leiðtogahæfileikar muni nýtast félaginu vel. Með ráðningunni tekur við nýr kafli í starfsemi Eims, þar sem áfram verður lögð áhersla á að tengja saman fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og þekkingu sem mun styðja við verkefni sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á Norðurlandi.“ Starfið var auglýst síðastliðið vor og Mögnum ráðningaskrifstofa aðstoðaði Eim við ráðningarferlið.