28. maí 2026

Frumsýning á ICEWATER gáminum vakti mikinn áhuga

Mikil þátttaka var á frumsýningu ICEWATER gámsins þar sem gestir frá iðnaði, stjórnsýslu, stofnunum og fyrirtækjum kynntu sér nýstárlegar lausnir í meðhöndlun iðnaðarfrárennslis og verðmætasköpun úr fráveitu frá matvælaiðnaði.

Mikill áhugi var á frumsýningu ICEWATER gámsins sem fram fór í gær, en um 60 gestir frá iðnaði, stjórnsýslu, stofnunum og fyrirtækjum sóttu viðburðinn. Þar gafst gestum tækifæri til að kynna sér nýja lausn sem snýr að formeðhöndlun iðnaðarfrárennslis og verðmætasköpun úr fráveitu frá matvælaiðnaði.


Verkefnið er samstarfsverkefni Eims og Iðnvers undir merkjum ICEWATER og miðar að því að þróa hagkvæmar og sjálfbærar lausnir sem draga úr álagi á fráveitukerfi, bæta nýtingu auðlinda og skapa verðmæti úr lífrænum efnum sem annars færu til spillis.

Á viðburðinum var farið yfir þróun verkefnisins, tæknina á bak við gáminn og hvernig hægt er að aðskilja fitur, olíur og önnur lífræn efni úr frárennslisvatni áður en það fer inn í hefðbundið fráveitukerfi. Gestir fengu jafnframt að sjá tæknina í virkni og ræða möguleika hennar fyrir íslenskan iðnað, umhverfismál og hringrásarhagkerfið.


Pétur Blöndal, eigandi Iðnvers, opnaði viðburðinn og bauð gesti velkomna áður en dagskráin hófst.

Í framhaldinu fóru Ottó Elíasson og Karen Mist Kristjánsdóttir yfir þróun verkefnisins, samstarfið á bak við það og hönnun gámsins.

Í kynningu þeirra kom meðal annars fram hvernig verkefnið tengist markmiðum um bætta nýtingu auðlinda, sjálfbærni og nýsköpun á Norðurlandi. Einnig var farið yfir hvernig tæknin getur stuðlað að minni álagi á fráveitukerfi og aukinni nýtingu lífrænna efna úr iðnaðarvatni.

Katrín Lilja Sigurðardóttir, eða Sprengju-Kata, hélt svo fræðandi fyrirlestur um efnafræðina á bak við hreinsiferlið og útskýrði meðal annars hvernig olíur, fitur og lífræn efni eru aðskilin úr frárennslisvatni með þriggja þrepa efnameðhöndlun og DAF-loftfleytingu.

Trevor Gent tók síðan við og sýndi gestum með lifandi hætti hvernig aðskilnaður óhreininda úr vatni fer fram í kerfinu. Sýningin vakti mikla athygli og skapaðist fjörug umræða meðal gesta um möguleika tækninnar fyrir íslenskan iðnað og umhverfismál.


Að loknum erindum var gestum boðið að skoða gáminn sjálfan, ræða við verkefnateymið og njóta léttra veitinga.

ICEWATER verkefnið snýr að því að þróa lausnir sem gera kleift að hreinsa iðnaðarfrárennsli fyrr í ferlinu, draga úr álagi á fráveitukerfi og skapa verðmæti úr þeim efnum sem falla til í ferlinu, meðal annars með nýtingu fitu í lífdísilframleiðslu og seyru í orkuframleiðslu. 


Deila frétt

28. september 2026
Orka var rauður þráður á Hönnunarþingi sem fór fram á Húsavík um helgina. Eimur tók þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem orka, nýsköpun, auðlindanýting og sjálfbærni voru skoðuð frá ólíkum sjónarhornum.
7. september 2026
Tíunda Norræna lífgasráðstefnan (e. Nordic Biogas Conference) var haldin í Reykjavík dagana 2. til 4. september, á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár í samstarfi helstu aðila í lífgasiðnaði Norðurlandanna fimm, og ráðstefnustaðurinn færist milli landanna á ári hverju, frá því hún var fyrst haldin í Helsinki árið 2006. Þetta var í annað sinn sem hún er haldin hér á landi, en Ísland hýsti hana síðast árið 2014. Um tvö hundruð þátttakendur sóttu ráðstefnuna, og þar á meðal voru sveitarfélög, orkufyrirtæki, tæknibirgjar, fjárfestar, ráðgjafar, vísindafólk og fulltrúar landbúnaðarins. Sigurður Líndal Þórisson, sviðsstjóri sjálfbærra viðskipta hjá Eimi , flutti erindi í málstofu um landbúnað ásamt Sveini Aðalsteinssyni, framkvæmdastjóra Orkídeu. Útgangspunktur erindisins var sá að við fyrstu sýn virðist Ísland vera síðasta landið sem þarf á lífgasi að halda, enda húshitun og raforka að mestu úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Samgöngur, landbúnaður og orkukostnaður í dreifbýli segja hins vegar aðra sögu. Í erindinu var farið yfir tvær ólíkar leiðir að sama marki: uppbyggingu á einum stað við Dysnes í Eyjafirði og dreifða nálgun í Húnaþingi vestra, þar sem Orkusamfélag Steingerðar byggir á samstarfi 34 kúabænda . Sigurður fór yfir rekstrarforsendurnar eins og þær blasa við í dag, þar sem tekjurnar liggja að minna leyti í sölu á metani, heldur frekar í hliðgjöldum fyrir lífrænan úrgang og í meltunni sem til verður við gerjunina og nýtist sem áburður. Hindranirnar eru fremur skipulagslegar en tæknilegar, því aðilar máls bíða hver eftir öðrum meðan forystu og stefnumótun ríkisins skortir. Erindinu lauk á endurtekningu sameiginlegrar áskorunar Eims og Orkídeu til tveggja ráðuneyta frá því í maí, um að ráðist verði í tvö tilraunaverkefni í landbúnaðartengdri metan vinnslu, bæði fyrir norðan og sunnan. Þátttaka í ráðstefnum af þessu tagi skiptir miklu máli fyrir verkefni sem eru enn í mótun. Þar fæst samanburður við þau lönd sem eru komin lengra, tengsl myndast við tæknibirgja og mögulega samstarfsaðila í umsóknum, og ekki síst er þetta tækifæri til að koma íslenskum aðstæðum á framfæri. Þær eru sérstakar og þær rata ekki inn í norræna umræðu nema einhver mæti og segi frá þeim.
31. ágúst 2026
Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims og hefur störf 1. október næstkomandi. Hildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd. Hildur er með M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði (Management Engineering) frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU), m.a. með áherslu á nýsköpun og stjórnun, og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Eims. Ég sé gríðarleg tækifæri á Norðurlandi til að skapa ný verðmæti með því að nýta betur þær auðlindir, þekkingu og kraft sem þegar er til staðar á svæðinu. Eimur gegnir mikilvægu hlutverki við að leiða saman fólk, þekkingu og hugmyndir og hjálpa til við að breyta tækifærum í raunveruleg verkefni. Hjá Eimi starfar öflugur hópur fólks með mikla sérþekkingu og metnað. Ég hlakka til að byggja áfram á því góða starfi sem þegar hefur verið unnið, og vinna með starfsfólki, bakhjörlum og samstarfsaðilum Eims að því að skapa ný tækifæri og verðmæti á Norðurlandi“. Frá stjórn Eims: „Við erum ákaflega ánægð með ráðningu Hildar í starf framkvæmdastjóra Eims. Við erum sannfærð um að reynsla hennar, þekking og leiðtogahæfileikar muni nýtast félaginu vel. Með ráðningunni tekur við nýr kafli í starfsemi Eims, þar sem áfram verður lögð áhersla á að tengja saman fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og þekkingu sem mun styðja við verkefni sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á Norðurlandi.“ Starfið var auglýst síðastliðið vor og Mögnum ráðningaskrifstofa aðstoðaði Eim við ráðningarferlið.