11. júní 2026

Rannsókn á áhrifum hitastigs á metanframleiðslu úr búfjáráburði

Skiptineminn Hannah Foley rannsakaði hvernig nýta mætti jarðhita til að auka metanframleiðslu úr búfjáráburði og efla lífgasframleiðslu á Íslandi.

Verkefnið var unnið í samstarfi við Eim og veitir mikilvæga innsýn í möguleika sjálfbærra orkulausna í landbúnaði.

Hannah Foley

Nýverið var unnið rannsóknarverkefni í samstarfi við Eim og bæinn Bessastaðir þar sem skoðuð voru áhrif hitastigs á metanframleiðslu í fljótandi búfjáráburði og hvort nýta mætti jarðhita til að auka lífgasframleiðslu hér á landi. 


Metan sem myndast úr búfjárúrgangi getur verið veruleg uppspretta gróðurhúsalofttegunda þegar það sleppur út í andrúmsloftið frá óyfirbyggðum hauggeymslum. 

Með því að innleiða söfnunarkerfi er hins vegar hægt að nýta metanið sem endurnýjanlega orkugjafa. Í verkefninu voru framkvæmdar vettvangsmælingar, hitastigsvöktun og líkanagreining á metanframleiðslu þar sem bornar voru saman hefðbundnar aðstæður í íslenskum hauggeymslum og aðstæður þar sem nýttur var jarðhiti til upphitunar. 


Niðurstöður verkefnisins benda til þess að jarðvarmi geti aukið metanframleiðslu verulega og þar með styrkt möguleika á aukinni lífgasframleiðslu og nýtingu endurnýjanlegrar orku. 


Verkefnið var unnið af skiptinemanum Hannah Foley sem stundar nám í efnafræði við Davidson College í Bandaríkjunum. 


Hún dvaldi á Íslandi vorið 2026 sem hluti af náminu SIT Study Abroad þar sem áhersla er lögð á loftslagsbreytingar og málefni norðurslóða. Á meðan á dvölinni stóð kynnti hún sér áhrif loftslagsbreytinga á norðurslóðum og þær áskoranir og lausnir sem unnið er að á sviði umhverfis- og orkumála. 


Verkefnið gaf henni tækifæri til að sameina bakgrunn sinn í efnafræði við hagnýtar rannsóknir á sviði sjálfbærni og endurnýjanlegrar orku.


Á meðan á fimm vikna rannsóknarverkefninu stóð öðlaðist Hannah dýrmæta reynslu af því að beita efnafræðilegri þekkingu á raunveruleg viðfangsefni. Að hennar sögn var sérstaklega áhugavert að sjá hvernig endurnýjanleg orkukerfi geta bæði dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda og skapað verðmæta orkugjafa á borð við metan. 


Einnig vakti það áhuga hennar hvernig hugtök úr varmafræði og efnahvörfafræði eru nýtt til að hámarka skilvirkni orkukerfa. Hún segist hafa notið samstarfsins við starfsfólk Eims og aðila á Bessastöðum afar vel og fengið mikilvæga innsýn í þau tækifæri til rannsókna, nýsköpunar og þróunar sem skapast í samstarfsverkefnum á borð við þau sem unnin eru innan Eims. 


Reynslan hafi aukið áhuga hennar á rannsóknum á endurnýjanlegri orku og mikilvægu hlutverki efnafræðinnar í þróun sjálfbærari framtíðar.


Eimur þakkar Hannah kærlega fyrir gott samstarf.


Hér má finna aðra frétt um hjáveitufrárennsli á Norðurlandi

Hitavituhjárennsli á Norðurlandi

Deila frétt

28. september 2026
Orka var rauður þráður á Hönnunarþingi sem fór fram á Húsavík um helgina. Eimur tók þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem orka, nýsköpun, auðlindanýting og sjálfbærni voru skoðuð frá ólíkum sjónarhornum.
7. september 2026
Tíunda Norræna lífgasráðstefnan (e. Nordic Biogas Conference) var haldin í Reykjavík dagana 2. til 4. september, á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár í samstarfi helstu aðila í lífgasiðnaði Norðurlandanna fimm, og ráðstefnustaðurinn færist milli landanna á ári hverju, frá því hún var fyrst haldin í Helsinki árið 2006. Þetta var í annað sinn sem hún er haldin hér á landi, en Ísland hýsti hana síðast árið 2014. Um tvö hundruð þátttakendur sóttu ráðstefnuna, og þar á meðal voru sveitarfélög, orkufyrirtæki, tæknibirgjar, fjárfestar, ráðgjafar, vísindafólk og fulltrúar landbúnaðarins. Sigurður Líndal Þórisson, sviðsstjóri sjálfbærra viðskipta hjá Eimi , flutti erindi í málstofu um landbúnað ásamt Sveini Aðalsteinssyni, framkvæmdastjóra Orkídeu. Útgangspunktur erindisins var sá að við fyrstu sýn virðist Ísland vera síðasta landið sem þarf á lífgasi að halda, enda húshitun og raforka að mestu úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Samgöngur, landbúnaður og orkukostnaður í dreifbýli segja hins vegar aðra sögu. Í erindinu var farið yfir tvær ólíkar leiðir að sama marki: uppbyggingu á einum stað við Dysnes í Eyjafirði og dreifða nálgun í Húnaþingi vestra, þar sem Orkusamfélag Steingerðar byggir á samstarfi 34 kúabænda . Sigurður fór yfir rekstrarforsendurnar eins og þær blasa við í dag, þar sem tekjurnar liggja að minna leyti í sölu á metani, heldur frekar í hliðgjöldum fyrir lífrænan úrgang og í meltunni sem til verður við gerjunina og nýtist sem áburður. Hindranirnar eru fremur skipulagslegar en tæknilegar, því aðilar máls bíða hver eftir öðrum meðan forystu og stefnumótun ríkisins skortir. Erindinu lauk á endurtekningu sameiginlegrar áskorunar Eims og Orkídeu til tveggja ráðuneyta frá því í maí, um að ráðist verði í tvö tilraunaverkefni í landbúnaðartengdri metan vinnslu, bæði fyrir norðan og sunnan. Þátttaka í ráðstefnum af þessu tagi skiptir miklu máli fyrir verkefni sem eru enn í mótun. Þar fæst samanburður við þau lönd sem eru komin lengra, tengsl myndast við tæknibirgja og mögulega samstarfsaðila í umsóknum, og ekki síst er þetta tækifæri til að koma íslenskum aðstæðum á framfæri. Þær eru sérstakar og þær rata ekki inn í norræna umræðu nema einhver mæti og segi frá þeim.