21. maí 2026

Laust starf hjá Eimi

EIMUR auglýsir starf framkvæmdastjóra

EIMUR leitar að drífandi og framsýnum framkvæmdastjóra til að leiða og þróa starfsemi félagsins á komandi árum. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á sjálfbærni, orkuskiptum, nýsköpun og grænni atvinnuuppbyggingu.


Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins, stefnumótun, verkefnaþróun og samskiptum við fjölbreyttan hóp samstarfsaðila og hagaðila. Starfið felur jafnframt í sér öflun nýrra verkefna, verkefnastjórnun og kynningu á starfsemi EIMS bæði innanlands og erlendis.

EIMUR er samstarfsverkefni sem vinnur að bættri nýtingu orkuauðlinda og aukinni grænni nýsköpun á Norðurlandi. Að verkefninu standa Landsvirkjun, Norðurorka, Orkuveita Húsavíkur, Rarik, SSNE og SSNV.


Markmið EIMS eru meðal annars að stuðla að aukinni verðmætasköpun með stuðningi við nýsköpun og hátækni, efla græna atvinnuuppbyggingu, bæta nýtingu auðlinda og styðja við innleiðingu hringrásarhagkerfis. Þá vinnur EIMUR að því að auka möguleika Norðurlands til að takast á við áskoranir samtímans og styrkja svæðið sem leiðandi afl í samspili orku, umhverfis og samfélags.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með daglegum rekstri
  • Stefnumótun og áætlanagerð
  • Ábyrgð á öflun nýrra verkefna
  • Verkefnastjórnun og eftirfylgni
  • Samskipti og tengsl við hagaðila
  • Markaðssetning og kynning á starfseminni
  • Ýmis önnur fjölbreytt verkefni



Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur
  • Reynsla af stjórnun og rekstri
  • Þekking og áhugi á orkumálum er kostur
  • Reynsla af þátttöku í Evrópuverkefnum er kostur
  • Áhugi og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu og vinnubrögð
  • Leiðtogahæfni og drifkraftur
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Reynsla innan opinberrar stjórnsýslu er kostur
  • Góð tungumálakunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti



Starfsstöð framkvæmdastjóra er á Norðurlandi og er kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2026.

Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá á íslensku ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda til starfsins.

Sótt er um starfið hjá Mögnum ráðningar.


Deila frétt

28. september 2026
Orka var rauður þráður á Hönnunarþingi sem fór fram á Húsavík um helgina. Eimur tók þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem orka, nýsköpun, auðlindanýting og sjálfbærni voru skoðuð frá ólíkum sjónarhornum.
31. ágúst 2026
Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims og hefur störf 1. október næstkomandi. Hildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd. Hildur er með M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði (Management Engineering) frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU), m.a. með áherslu á nýsköpun og stjórnun, og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Eims. Ég sé gríðarleg tækifæri á Norðurlandi til að skapa ný verðmæti með því að nýta betur þær auðlindir, þekkingu og kraft sem þegar er til staðar á svæðinu. Eimur gegnir mikilvægu hlutverki við að leiða saman fólk, þekkingu og hugmyndir og hjálpa til við að breyta tækifærum í raunveruleg verkefni. Hjá Eimi starfar öflugur hópur fólks með mikla sérþekkingu og metnað. Ég hlakka til að byggja áfram á því góða starfi sem þegar hefur verið unnið, og vinna með starfsfólki, bakhjörlum og samstarfsaðilum Eims að því að skapa ný tækifæri og verðmæti á Norðurlandi“. Frá stjórn Eims: „Við erum ákaflega ánægð með ráðningu Hildar í starf framkvæmdastjóra Eims. Við erum sannfærð um að reynsla hennar, þekking og leiðtogahæfileikar muni nýtast félaginu vel. Með ráðningunni tekur við nýr kafli í starfsemi Eims, þar sem áfram verður lögð áhersla á að tengja saman fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og þekkingu sem mun styðja við verkefni sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á Norðurlandi.“ Starfið var auglýst síðastliðið vor og Mögnum ráðningaskrifstofa aðstoðaði Eim við ráðningarferlið.
26. ágúst 2026
Hlutverk dreifbýlissvæða í orkuskiptum og grænni umbreytingu Evrópu