22. apríl 2026

Frumsýning á ICEWATER gámnum

Frá hugmynd til hringrásar 

Eimur og Iðnver standa fyrir viðburði miðvikudaginn 27. maí n.k. þar sem ICEWATER gámurinn verður frumsýndur á Íslandi. Viðburðurinn fer fram hjá Iðnver að Tunguhálsi 10 í Reykjavík og er opinn öllum sem hafa áhuga á nýsköpun og lausnum þegar kemur að meðhöndlun fráveitu frá iðnaði.


ICEWATER gámurinn er færanleg hreinsistöð sem Eimur hefur hannað til að meðhöndla ferlavatn frá matvælaiðnaði. Lausnin er sérstaklega þróuð með það að markmiði að formeðhöndla fráveituvatn áður en henni er veitt áfram í fráveitukerfin og nýta þau verðmæti sem felast í frárennslinu.


Með þessari nálgun er mögulegt að skapa verðmæti í formi lífmassa og orku, sem annars færu forgörðum. Með því að sækja þessi efni úr fráveitunni áður en hún er leidd út í sjó, má bæði draga úr umhverfisáhrifum og stuðla að aukinni hringrás í iðnaði.


Á viðburðinum verður kynning á verkefninu og gámnum. Einnig verða kynntar niðurstöður tilrauna sem hafa verið framkvæmdar í tengslum við verkefnið.

Þá verður farið yfir áframhaldandi þróun verkefnisins, þar á meðal vistferilsgreiningu (LCA), tækifæri í áburðarframleiðslu og möguleika á lífgasframleiðslu úr seyru.


Viðburðurinn er kjörið tækifæri fyrir fagfólk, samstarfsaðila og aðra áhugasama til að kynna sér nýja og umhverfisvæna lausn sem getur haft jákvæð áhrif á rekstur og sjálfbærni í matvælaiðnaði og öðrum greinum.


Skráning á viðburðinn fer fram á eftirfarandi hlekk hér að neðan.



Skráning á viðburð

Deila frétt

31. ágúst 2026
Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims og hefur störf 1. október næstkomandi. Hildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd. Hildur er með M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði (Management Engineering) frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU), m.a. með áherslu á nýsköpun og stjórnun, og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Eims. Ég sé gríðarleg tækifæri á Norðurlandi til að skapa ný verðmæti með því að nýta betur þær auðlindir, þekkingu og kraft sem þegar er til staðar á svæðinu. Eimur gegnir mikilvægu hlutverki við að leiða saman fólk, þekkingu og hugmyndir og hjálpa til við að breyta tækifærum í raunveruleg verkefni. Hjá Eimi starfar öflugur hópur fólks með mikla sérþekkingu og metnað. Ég hlakka til að byggja áfram á því góða starfi sem þegar hefur verið unnið, og vinna með starfsfólki, bakhjörlum og samstarfsaðilum Eims að því að skapa ný tækifæri og verðmæti á Norðurlandi“. Frá stjórn Eims: „Við erum ákaflega ánægð með ráðningu Hildar í starf framkvæmdastjóra Eims. Við erum sannfærð um að reynsla hennar, þekking og leiðtogahæfileikar muni nýtast félaginu vel. Með ráðningunni tekur við nýr kafli í starfsemi Eims, þar sem áfram verður lögð áhersla á að tengja saman fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og þekkingu sem mun styðja við verkefni sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á Norðurlandi.“ Starfið var auglýst síðastliðið vor og Mögnum ráðningaskrifstofa aðstoðaði Eim við ráðningarferlið.
26. ágúst 2026
Hlutverk dreifbýlissvæða í orkuskiptum og grænni umbreytingu Evrópu
2. júlí 2026
Alþjóðleg viðurkenning á framlagi RECET til sjálfbærrar orkuframtíðar